Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 12

Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 12
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII, 1949 Alþýðusamband Islands, Bandálag starfs- manna r'ikis og bæja, Farmanna- og fiski- mannasamband Islands, Félag ísl. iðnrek- enda,Landssamband iðnaðarmanna, Lands- samband isl. útvegsmanna, Sjómannafélag Reykjavíkur, Stéttarsamb. bænda, Verzl- unarmannafélag Reykjavíkur (launþega- deld) og Vinnuveitendafélag Islands. Er þess hér með eindregið óskað, að þér veljið einn fulltrúa af yðar hálfu til þess að sækja ráðstefnu þessa og tilkynnið ráðu- neytinu ékki siðan en 10. þ. m. hvern þér hafið valið sem fulltrúa.“ Stjórn Landssambandsins kaus Tómas Vigfús- son sem fulltrúa. Ráðstefna þessi hélt marga fundi, en um árangurinn hefir það opinbera enga skýrslu gefið. I 16. Iðnskóli í sveitum. Þann 28. febr. 1948, sendi iðnaðarmálanefnd efri deildar Alþingis Sambandsstjórninni til um- sagnar frumvarp til laga um iðnskóla í sveit. Frumvarp þetta er töluvert breytt frá því sem það var flutt á síðasta þingi, og því um nýtt frum- varp að ræða. Umsögn Landssambandsstjórnar um frum- varpið er svona: Iðnaðarmálanefnd efri deildar Alþingis hefir óskað umsagnar Landssambands iðnaðarmanna um frumvarp til laga um iðnskóla í sveit, þskj. 340. Eins og segir í bréfi nefndarinnar, er frum- varp þetta mjög breytt frá því, sem það var í fyrra. 1 umsögn vorri um það frumvarp tókum vér fram, að vér erum sammála flutningsmönn- um frumvarpsins um það, að það vantaði iðn- lærða menn í sveitirnar, einkum til húsbygginga, en tókum jafnframt fram, að eins og það frum- varp var, þá gerði það ekki ráð fyrir að aldir yrðu upp iðnaðarmenn í sveitunum, heldur menn, sem hefðu fengið dálitla nasasjón af því, sem iðnaðarmenn þurfa að vita, án þess að kunna neitt til hlýtar. Þetta frumvarp, sem hér iiggur fyrir, byggir á sama grundvelli hvað þetta snert- ir, og umræddur skóli getur því ekki útskrifað 30 iðnaðarmenn, þótt mikil bót sé frá fyrra frum- varpinu, þar sem nemendum er nú ætlað að kynnast einni iðn á tveim árum, í stað 5—6 iðn- greina á sama tíma áður. Ef þeir sem í sveitum búa, svo og háttvirt Alþingi, telja nægilegt að þeir, sem eiga að bera ábyrgð á byggingum sveit- anna hafi miklu minni kunnáttu og æfingu í starfi sínu, en heimiluð er í kaupstöðum, þá verður það að vera þeirra mál. En hinu mótmæl- um vér alveg, að frambærilegt sé að halda því fram, að unglingar í sveitum séu það öruggari námsmenn en unglingar í kaupstöðum, að þeir nái jafn mikilli kunnáttu og leikni á tveim árum og hinir síðarnefndu á fjórum. Vinnutími húsa- smíðanema mun að jafnaði vera 8800 stundir yfir námstímann, og skólanámstundir 1350 Skv. 8. gr. frumvarpsins er ætlast til að vinnutími nemenda skólans sé 7 tímar á dag á sumrin og 4 y2 að vetrinum. Sé miðað við 6 mánaða sum- ar, verða það 2x7x144 -þ 2x4]/óxl44 = 3312 vinnustundir, (sumarfrí og jólafrí frátalið), eða 3/8 af vinnutíma hinna, og skólanám 2x214x144 = 720 stundir, eða rúmlega helmingur af skóla- námi hinna. Vér verðum því að mótmæla ákv. 4. gr. frumvarpsins um að próf frá skólanum jafngildi sveinsprófi í húsasmíði. Hjálagt fylgir ályktun frá aðalfundi Trésmiða- félags Reykjavíkur, sem oss hefir verið sent til fyrirgreiðslu. Vér viljum taka undir það, sem þar er bent á, að ódýrara muni verða fyrir ríkis- sjóð, og fullt eins hagkvæmt fyrir nemendurna, að flýta svo byggingu iðnskólahúss í Reykjavík og heimavistum þar, að hann geti tekið að sér að halda námskeið þau, sem fyrirhuguð eru með frumvarpinu, ef löggjafarþing þjóðarinnar sam- þykkir, að láta þau nægja fyrir sveitirnar. Trésmiðafélag Reykjavíkur gerði einnig álykt- un um málið á aðalfundi 28. febr. 1948, þar sem frumvarpinu er mótmælt. Frumvarp þetta dagaði uppi á Alþingi 1948. 17. Fulltrúi í viðskiptanefnd. Skömmu eftir að Iðnþinginu lauk í fyrra sum- ar, var sameiginlegur fundur haldinn af stjórn Landssambands iðnaðarmanna og stjórn Félags ísl. iðnrekenda til að ræða um skipan fjárhags-

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.