Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Blaðsíða 13
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949
ráðs og nauðsyn þess að iðnaðurinn ætti þar
fulltrúa er gætti hagsmuna hans. Þar sem þá
var búið að skipa fjárhagsráð, var samþykkt
að bera fram þá kröfu til ríkisstjórnarinnar að
iðnaðurinn fengi fulltrúa í væntanlegri við-
skiptanefnd. Bréf um þetta var sent ríkisstjórn-
inni 18. júlí.
18. Hagnýting byggingaefnis.
Nokkru eftir að f járhagsráð tók til starfa, setti
það á laggirnar nefnd er athuga skyldi og undir-
búa tillögur um hvernig það byggingaefni, sem
flutt er til landsins verði bezt hagnýtt. Óskað
var eftir því að Landssamband iðnaðarmanna til-
nefndi einn mann í nefndina, og var Guðmundur
Halldórsson, húsasmíðameistari valinn til þess.
Aðrir aðilar að nefndinni voru Verkfræðingafé-
lag Islands og Húsameistarafélag Islands.
Frá sama aðila barst erindi, þar sem óskað
var eftir því að Landssamband iðnaðarmanna
gangi í lið með fjárhagsráði og afli upplýsinga
um áætlaða efnisþörf iðnaðarmanna á árinu
1948. Bréf varðandi þetta var sent til allra sam-
bandsfélaganna og annarra iðnaðarmanna er til
náðist.
Því miður varð árangurinn ekki eins góður og
æskilegt hefði verið.
19. Frv. um iðnaðarm.stjóra og framleiðsluráð.
Þann 4. nóv. 1947, barst Sambandsstjórninni
bréf frá fjárveitinganefnd Alþingis, ásamt frv.
um iðnaðarmálastjóra og framleiðsluráð, flutt
af Gísla Jónssyni, og er óskað eftir umsögn
Landssambands iðnaðarmanna um málið.
Stjórn Landssambandsins ræddi málið á fund-
um, og sendi fjárveitinganefnd Alþingis ýtar-
lega umsögn og breytingartillögur. Síðan hefir
Sambandsstjórn ekkert heyrt um málið.
20. Einkaleyfajsafn.
Þá barst frá ráðuneytinu bréf varðandi til-
nefningu á einum manni í nefnd til að fram-
kvæma nauðsynlegar athuganir og gera tillög-
ur um einkaleyfasafn, samkv. þingsályktun sem
samþykkt var á Alþingi 22. jan. 1947.
Stjórn Landssambands iðnaðarmanna tilnefndi
Helga H. Eiríksson. Nefndin hefir ekki verið
kölluð saman til funda ennþá.
21. Þjóðleikhúsið.
Samkomulag varð um það milli stjórnar
Landsambandsins og húsgagnameistara, að beita
ekki refsiaðgerðum þeim er samþykktar voru á
fundi í Baðstofu iðnaðarmanna 20. apríl 1947
og á síðasta Iðnþingi, meðal annars af því, að
smíði leikhússins stöðvaðist af sjálfu sér vegna
gjaldeyrisskorts og svo af fleiri ástæðum er
fram komu við umræður um málið.
22. Iðnbanki.
Þann 2. febr. 1948, boðaði stjórn Landssam-
bandsins á fund með sér, nefnd þá er kosin var
SKATTHEIMTA
Þessi mynd var fyrir skömmu í
frönsku iðnaðarblaði. Skattheimtu-
mennirnir heimsækja smiðinn og
konu hans. Þessar línur fylgdu:
— Hvað œtlið þið nú að taka af
okkur?
— Það sem eftir er...svo að
þið verðið reglulega hamingjusöm . .
svo að þið megið til að lifa í paradís-
arsælu.
31