Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Qupperneq 15

Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Qupperneq 15
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949 Hinn 10. maí barst svo stjórn Landssambands- ins bréf frá Meistarafélagi skipasmiða í Reykja- vík. Skipasmiðafélagi Hafnarfjarðar og Sveina- félagi skipasmiða í Reykjavík, út af smíði á nóta- bátum erlendis. I bréfinu er þess getið að ríkis- stjórnin hafi ákveðið að senda héðan skipasmíða- eik til Finnlands. og láta smíða þar nótabáta fyr- ir íslenzka útvegsmenn, og á það bent, að á sama tíma séu innlendar skipasmíðastöðvar atvinnu- litlar vegna efnisskorts. I bréfinu er þess óskað að stjórn Landssam- bandsins boði skipasmiði í Reykjavík og nágrenni til fundar um málið. Stjórn Landssambandsins ákvað að verða við þessari ósk, og var fundur þessi haldinn í Baðstofunni, fimmtudaginn 13. maí, og á hann boðaðir skipasmiðir úr Reykja- vík, Hafnarfirði, Keflavík, Njarðvíkum og frá Akranesi, en þaðan mætti enginn. Ennfremur var stjórn Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík og upplýsinganefndin boðuð á fundinn. Á fundi þessum komu fram ýmsar upplýsingar varðandi þetta mál og lýstu skipasmiðir óánægju sinni út af smíði bátanna erlendis, og upplýstu að við smíði bátanna innanlands myndi sparast um 30 þús. kr. í erlendum gjaldeyri á hvert nótabátapar en auk þess væri alkunnugt að erlendir nóta- bátar hefðu reynst lélegri en íslenzkir, og væri það viðurkennt af útvegsmönnum. Hinsvegar upplýstist það og, að heppilegast væri að skipa- smiðir hefðu með sér heildarsamtök, sem útvegs- menn gætu snúið sér til, um smíði á skipum og bátum, svo að þeir þyrftu ekki að leita til hinna mörgu skipasmíðastöðva eða einstaklinga um slíkt, en samtökin miðluðu svo vinnunni eftir því sem heppilegast þætti. Það kom og í Ijós, að skipasmiðir hafa átt við mikla erfiðleika að stríða um innflutning á nauðsynlegu efni, sumir ekki fengið eins eyris innflutning á árinu 1947. Eftir tillögu forseta voru kosnar þrjár nefnd- ir til þess að ræða við viðskiptamálaráðherra og viðskiptanefnd og eins til að undirbúa stofnun Landssambands skipasmiða. Hinn 3. júní var annar fundur haldinn með sömu aðilum. Forseti Landssambandsins las upp tillögur að greinargerð um bátasmíðar hérlendis, og samandregna áætlun um efnisþörf frá 15 skipasmíðastöðvum á yfirstandandi ári, er hvort- tveggja skyldi sent viðskiptamálaráðherra, fjár- hagsráði, viðskiptanefnd og Landssambandi ísl. útvegsmanna. Tillögur þessar voru samþykktar og skrifstofu Landssambands iðnaðarmanna falið að afgreiða þær til hlut'aðeigandi aðila. Þann 26. júlí s.l. barst svo Landssambandinu bréf frá fjárhagsráði, þar sem það viðurkennir að hafa móttekið framangreindar tillögur og greinargerð, og m. a. bendir á hvort ekki sé rétt að viðræður fari fram milli samtaka iðnaðar- manna og útgerðarmanna í þeim tilgangi, að samkomulag fengist um að áætla nótabátaþörf næsta árs og þeirri áætlun verði fullnægt með smíði bátanna innanlands. Taldi Fjárhagsráð æskilegt að viðræður þessar færu fram sem fyrst þar sem undirbúningur innflutningsáætl- unar næsta árs væri hafinn, og nauðsynlegt að upplýsingar um þetta kæmu sem fyrst. Afrit af bréfi þessu var strax sent nefnd þeirri, er annast átti um stofnun landssambands skipa- smiða og hefir hún rætt um þetta við Lands- samband útvegsmanna, og samkvæmt þeim við- ræðum lagt fram áætlun um efnisþörf á næsta ári, er send hefir verið Fjárhagsráði. Nefndin hefir einnig boðað til fundar um stofn- un Landssambands skipasmiða 29. sept. n. k. 28. Frá einstaklingum innan hinna ýmsu fé- laga í Landsambandi iðnaðarmanna bárust kvartanir út af hækkun á tryggingargjöldum iðnaðarmanna. Út af þessu sendi stjórn Sambandsins öllum Sambandsfélögunum bréf, þar sem boðin var fram aðstoð um leiðréttingu á þessu, ef þess væri óskað. Fá svör hafa borist við þessu ennþá. 29. Norræna félagið og Norges Hándverker- forbund gengust fyrir námskeiði norrænna iðnaðarmanna, er haldið var í Noregi 3. til 10. júlí. Landsambandi iðnaðarmanna var gefinn kostur á að senda þangað íslenzka iðnmeistara, og að tilstuðlan þess fóru til Noregs 6 iðnmeist- arar. Fararstjóri var Sveinbjörn Jónsson. 33

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.