Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Síða 17

Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Síða 17
Iðnaðarritið 3- 4. XXII. 1949 36. Tekjur Sambandsins á árinu 1947 hafa verið: Sambandsgjöldin kr. 20.oo á hvern Sam- bandsfélaga, og 50 þús. kr. framlag frá ríkissjóði. Reykjavík í sept. 1948, Helgi H. Eiríksson, Guðm. H. Þorláksson. Mál rædd og afgreidd Upptaka nýrra Sambandsfélaga: Klæðskerameistarafélag Reykjavíkur og ná- grennis og Meistarafélagi prentmyndasmiða, voru einróma samþykkt til upptöku í Landssam- bandið. Nýjar iðngreinar: Eftir tillögu skipulagsnefndar gat þingið ekki mælt með því að viðgerðir skrifstofuvéla verði viðurkend sem sérstök iðngrein. Samþykkt var álit sömu nefndar að Sam- bandsstjórnin afli sér nákvæmari uppiýsinga um hvernig er háttað námi og skiftingu starfa á hinum Norðurlöndunum, þannig að erindi garð- yrkjumanna hér, um að garðyrkja verði lögfest sem iðngrein fái afgreiðslu á næsta Iðnþingi. Ennfremur frá sömu nefnd um erindi Mjólk- urfræðingafélags Islands: Einnig var samþykkt tillaga sömu nefndar, að Sambandsstjórnin leiti álits Búnaðarfélags Islands um erindi Mjólkur- fræðingafélags íslands, Félags ísl. kjötiðnaðar- manna og Félags garðyrkjumanna um hvort þessi störf skuli lögfest sem sérstakar iðngreinir. Merki fyrir iðnaðarmenn: Tillöguuppdráttur milliþinganefndar var sam- þykktur með samhljóða atkvæðum. Tillöguuppdráttur að heiðursmerki Sambands- ins, ásamt reglugerð fyrir veitingu þess, var hvorttveggja samþykkt með samhljóða atkvæð- um. Varnir gegn elds- og slyshættu. Skrifstofa Sambandsins hefir safnað ýmsum gögnum um þetta efni, sem er orðið mikið safn, og unnið verður úr síðar. Um þetta efni var svohljóðandi ályktun alls- herjarnefndar samþykkt samhljóða: „10. Iðnþingið telur mikla þörf á því að unnið verði áfram að söfnun gagna um varnir gegn eldsvoða og slysum og hraða því sem mést að unnið verði úr þeim gögnum. Þingið telur eðli- legt og sjálfsagt að hafa samvinnu um þetta við tryggingarstofnanir ríkisins, tryggingafélög- in, Slysavarnafélagið, samtök verkamanna og atvinnurekenda, eftirlitsmenn með vélum og vérksmiðjum og aðra, sem til greina geta komið í þessu sambandi. Þingið telur nauðsynlegt að koma á almennri fræðslu um hvernig megi forðast slys og ikveikj- ur, og að allir möguleikar verði notaðir til að koma slikri fræðslu út til almennings, svo sem skólar, útvarp, blöð og tímarit, smábæklingar, sem dreift væri í hús, handbækur fyrir verk- stjóra og fyrirtæki, auglýsingaspjöld á vinnu- stöðum og almannafæri o. s. frv. Til þess að standast kostnað við þessa starf- semi telur þingið eðlilegt að ríkið og þau samtök og stofnanir, sem að ofan eru nefndar, leggi fram fé til starfseminnar, þar sem það er allra hagur, bæði einstaklinga og þjóðarinnar í heild, að tak- ast megi að draga úr slysum og eldsvoðum svo sem frekast er unnt.“ Samþykkt um gervi-iðnaðarmenn. „10. Iðnþingið vítir harðlega þá linkind, er íslenzk yfirvöld hafa sýnt í ýmsum tilfellum í framkvæmd aðgerða gegn brotum á lögum um iðju og iðnað frá 1. júlí 1937, sérstaklega hvað viðvíkur 14., 15. og 16. gr. Jafnframt beinir þingið þeirri áskorun til allra sambandsfélaga og iðnráða á landinu, að vera vel á verði um, að lög þessi séu ekki brotin.“ Þá felur þingið sambandsstjórn að beita öll- um áhrifum sínum til aðstoðar sambandsfélögun- um í þessum málum, hvenær sem sambandsfélag óskar slíkrar aðstoðai\“ Iðnsýningar. Frá allsherjarnefnd var samþ. samhljóða svo- hljóðandi tillaga: „10. Iðnþingið telur mjög æskilegt að iðn- sýning verði haldin sumarið 1949 t. d. í sam- bandi við fyrirhugað yrkiskólaþing, og felur Sambandsstjórn að stuðla að því, að undirbún- ingi verði haldið áfram. 35

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.