Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 19

Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 19
Iðnaðarritið 3,- 4. XXII. 1949 Guðmundur Helgi Allir þekkja Guðmund H. Guðmundsson, hús- gagnasmíðameistara. Hann hefir lengi ver- ið í stjórn Landssam- bands iðnaðarmanna, formaður Iðnaðar- mannafél. í Reykja- vík síðustu 8 árin, verið lengi í stjórn Iðn- ráðsins og formaður þess síðan Pétur G. Guð- mundsson féll frá. Hann hefir einnig setið öll iðn- þingin síðan 1939 og verið í fjölda nefnda. Við öll þessi trúnaðarstörf hafa iðnaðarmenn, og margir aðrir, kynnst Guðmundi mjög vel og því óþarft að segja mikið frá honum hér. Verk hans tala. Og að þau hafi líkað vel og orðið til farsældar sýndu bezt heimsóknirnar á afmælis- daginn, 13. apr. s.l., blómin, heillaskeytin og minjagripirnir sem honum bárust. Það var glatt á heimilinu langt fram á nótt. Húsfreyjan, Magdalena Runólfsdóttir, virtist bæta þessu vökukvöldi við öll hin vegna iðnaðarmanna, með mestu ánægju. Guðmundur Helgi stofnsetti Húsgagnaverlun Reykjavikur með Jóni Magnússyni, skáldi, árið 1930, og síðan að hann féll frá rekur Guðmundur Helgi fyrirtækið með Þorláki Lúðvíkssyni. Guðmundur hefir látið bæjarmál Reykjavík- ur nokkuð til sín taka undánfarið og verið vara- fulltrúi Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn síðan í ársbyrjun 1946. Ekki væri ólíklegt að Sjálf- stæðismenn fyndu málefnum sínum og þjóðar- innar vel borgið með enn meiri áhrifum Guð- mundar. Og ætíð munu iðnaðarmenn í landinu og iðnaðurinn í heild eiga öruggan hauk í horni þar sem Guðmundur Helgi er. 8. J. Breyting á iönaðarnámslögunum. Samþykkt var samhljóða: „Fari svo að næsta Alþingi samþykki ekki frumvarp til laga um iðnfræðslu, skorar Iðn- þingið á Alþingi, að samþ. eftirfarandi breytingu á lögum um iðnaðarnám, nr. 100 11. júní 1938.“ „Landinu skal skipt í minnst fjögur iðnmála- svæði og séu þrír iðnfulltrúar og þrír til vara í hverju þeirra, skipaðir til 2ja ára í senni. Skal einn fulltrúanna skipaður af iðnaðarmálaráð- herra, annar af iðnráði heimilisbæjar fulltrú- anna og þriðji af iðnaðarmannafélagi sama bæj- ar. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt.“ Frumv. um einkarétt. á Ijósmyndum. Löggjafarnefnd lagði fram á þinginu frv. til laga um einkarétt á ljósmyndum, en það er samhljóða frumv. til samnorrænna laga um þetta efni, er samið var af samtökum ljósmyndara á Norðurlöndum, en Ljósmyndarafélag Islands hafði látið staðsetja það og komið því á fram- færi við stjórn Sambandsins. Frumvarpið var samþ. með breytingum. Fjöldi iðnþinga. Á Iðnþinginu 1947 var samþykkt að Iðnþing skyldi háð á hverju ári í stað annarshvers árs. Nú vildi Sambandsstjórnin breyta þessu aftur, en þess í stað fengi hún heimild til að kalla sam- an þing á hverju ári ef þörf krefði. Þessi tillag var felld og verður 6. gr. Sam- bandslaganna óbreytt áfram. I sambandi við þetta var skorað á Sambands- stjórnina að stilla svo til, að næsta Iðnþing verði haldið á þeim tíma er reglulegt Alþing situr. Um iðnbanka. Frá fjármálanefnd var samþ. samhljóða: „10. Iðnþingið ítrekar fyrri ályktanir sínar um nauðsyn á stofnun Iðnbanka og leggur til, í samræmi við tilmæli iðnaðarmálaráðherra í bréfi til Landssambandsins, dags. 8. júní s.l., að samið verði frumvarp til laga um Iðnbanka og lagt fyrir næsta Alþingi. Jafnframt telur iðnþingið æskilegt að sam- starf verði milli Landssambands iðnaðarmanna og F. 1.1. um lausn þessa máls og samþykkir þvi, 37

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.