Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Qupperneq 20
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949
að kjósa tvo fulltrúa til að vinna að framgangi
málsins í samvinnu við tvo fulltrúa frá F. 1. I.“
Voru í nefndina kjörnir Þorsteinn Sigurðsson
og Sveinbjörn Jónsson. Félag ísl. iðnregenda hef-
ir tilnefnt af sinni hálfu, þá H. J. Hólmjárn og
Pál S. Pálsson og til vara Jóh. Ól. Jónsson og
Grím Bjarnason.*)
Frumvarp um iðnmálastjóra.
Frá löggjafarnefnd var samþ. svohljóðandi:
„10. Iðnþingið lýsir vonbrigðum yfir því, hvaða
afgreiðslu frumvarp til laga um iðnaðarmála-
stjóra og framleiðsluráð fékk hjá síðasta Al-
þingi, og beinir þeim tilmælum til ríkisstjórnar
og Aiþingis, að málið verði tekið upp aftur og
frumvarpið samþykkt með þeim breytingum.
sem stjórn Sambandsins fór fram á.“
Fjárhagsáætlun.
fyrir árið 1949 var lögð fram af fjárhagsnefnd
og samþykkt samhljóða:
Tekjur:
Skattur frá sambandsfélögunum kr. 11.700.oo
Tillag frá ríkissjóði............ kr. 50.000.oo
Tekjur vegna afgr. Iðnaðarritsins kr. 5.000.oo
Aðrartekjur...................... kr. 1.300.OO
Tekjuhalli ...................... kr. 30.000.oo
Kr. 98.000.oo
Gjöld:
Kaup starfsfólks ................ kr. 75.000.oo
Húsal., hiti, ljós og ræst........kr. 4.000.oo
Burðargjöld, sími o. fl.......... kr. 2.500.OO
Ýms kostn. samandreginn.......... kr. 12.000.oo
Ritföng, pappír o. fl............ kr. 1.500.OO
Kostn. v. Norræna iðnþ. áætlaður kr. 3.000.oo
Kr. 98.000.oo
I sambandi við þessa áætlun var samþ. eftir-
farandi tillaga frá fjármálanefnd.
„10. Iðnþingið skorar á næsta Alþingi að
hækka framlag til Landssambands iðnaðar-
manna fyrir árið 1949 úr 50 þús. í 100 þús.
Þingið felur stjórn Sambandsins að reyna að
fá hækkaða f járveitingu til starfsemi iðnráðanna
og leggur til að henni verði falin skipting fjár-
*) Frumv. til laga fyrir iðnbanka er nú sent ráðh.
38
ins milli iðnráðanna, enda verði upphæðin ekki
lægri en 15.000 krónur.“
Þessi viðaukatillaga var samþ. samhljóða.
„Þingið felur fjármálanefnd þingsins að hafa
tal af iðnaðarmálaráðherra og fjármálaráðherra
um hækkun styrks til Sambandsins, og síðar við
fjárveitinganefnd Alþingis, þegar það kemur
saman.“
Fulltrúar á næsta norræna iðnþingi voru
kosnir: Helgi H. Eiríksson, Rvík; Sveinbj. Jóns-
son, Rvík; Vigfús Friðriksson, Akureyri; Magn-
ús Bergsson, Vestm.eyjum; Sigurður Guðmunds-
son, ísafirði; Magnús Kjartansson. Hafnarfirði;
Indriði Helgason, Akureyri; Guðm. H. Guð-
mundsson, Reykjavík.
Til vara: Jóhann P. Guðmundsson, Norðfirði;
Einar Gíslason, Rvík; Jóhann B. Guðnason.
Akranesi; Guðjón Magnússon, Hafnarfirði.
Kosning trúnaðarmanna.
Úr stjórninni höfðu verið dregnir Helgi H.
Eiríksson og Tómas Vigfússon, en þeir voru báðir
endurkosnir. Stjórn Landssambands iðnaðarm.
skipa nú: Helgi H. Eiríksson, forseti; Einar Gisla-
son, varaforseti; Guðm. H. Guðmundsson, gjald-
keri; Guðjón Magnússon, ritari og Tómas Víg-
fússon, vararitari.
1 varastjórn voru kosnir: Ársæll Árnason, Þór-
oddur Hreinsson, Júlíus Björnsson, Vigfús Sig-
urðsson, Ragnar Þórarinsson.
Endurskoðendur: Þorleifur Gunnarsson, Ás-
geir Stefánsson, til vara: Kristólína Krag, Bror
Westerlund.
Þingslit.
Á þriðjudagskvöld 28. sept. kl. 9, bauð Iðn-
aðarmannafélag Reykjavikur og Trésmiðafélag
Reykjavíkur, þingfulltrúum til kaffidrykkju.
Iðnaðarmálaráðherrann, Emil Jónsson, var
viðstaddur og ávarpaði samkvæmið. — Margar
fleiri ræður voru fluttar og þátttakendur hinir
ánægðustu. Miðvikudaginn 29. sept. kl. 10 var
þinginu slitið og þann sama dag kl. 4 var þingfull-
trúum boðið að skoða hin nýju húsakynni Bún-
aðarbankans.