Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Blaðsíða 21
Iðnaðarritið 3,- 4. XXII. 1949
Iðnaðarmannafélagið
í Hafnarfirði 20 ára
Þann 13. nóv. s.l. hélt það afmælið hátíðlegt
með fjölmennu hófi í Alþýðuhúsi Hafnarfjarðar.
Hófst það með borðhaldi og margar ræður voru
fluttar og árnaðaróskir en Karlakórinn Þrestir
söng. Að lokum var stiginn dans fram eftir nóttu
og þótti hófið hið prýðilegasta. Félaginu bárust
fjöldi heillaskeyta og minjagripir'frá Landssam-
bandi iðnaðarmanna, Iðnaðarmannafélaginu í
Reykjavík og Trésmiðafélagi Hafnarfjarðar.
Félagið var stofnað 11. nóv. 1928 af 23 fag-
lærðum iðnaðarmönnum og Emil Jónssyni verk-
fræðingi, sem var einn af hvatamönnum að
stofnun þess og kosinn fyrsti formaður. Til-
gangur félagsins var frá byrjun sá að efla mennt-
un og menningu iðnaðarmanna og halda uppi
kvöldskóla fyrir iðnaðarmenn, vernda hagsmuni
þeirra og auka samvinnu og félagslyndi.
Emil Jónsson var formaður félagsins í 15 ár
og þegar hann lét af því starfi sökum anna við
stjórnmálin, var hann í þakklætisskyni gerður
heiðursfélagi. Við formennsku tók þá Guðjón
Magnússon skósmíðameistari og er hann það
enn. Ásgeir Stefánsson hefir verið gjaldkeri frá
byrjun til þessa dags. Stjórnendur voru fyrst 3,
en var fjölgað í 5 árið 1938, er störf félagsins
urðu umfangsmeiri.
Iðnskóla hefur félagið starfrækt frá upphafi
og Emil Jónsson, sem áður hafði haldið uppi
Iðnskóla í eitt ár á eigin kostnað, var skóla-
Stjórn félagsins á 20 ára afmælinu: Ásgeir G. Stefánsson,
Guðjón Magnússon, Magnús Kjartansson. Aftari röö:
Þóroddur Hreinsson og Kristinn J. Magnússon.
stjóri til haustsins 1936. Nú stjórnar skólanum
Bergur Vigfússon, kennari við Flensborgarskól-
ann.
Fyrstu árin varð félagið að láta sér nægja hús-
pláss á ýmsum stöðum, en þegar Flensborgar-
skólahúsið var byggt 1936 lagði það til bygging-
arinnar 10 þús. gegn því að fá til eignar mynd-
arlegan fundarsal. Þar var fyrsti fundurinn hald-
inn 19. des. 1937. Iðnráðið og sérfélög iðnaðar-
manna hafa einnig haft þar fundi sína.
Félagið hefur látið ýms mál til sín taka og
haft forgöngu um önnur. Meðal annars stofnað
styrktarsjóð fyrir unga iðnaðarmenn til fram-
haldsnáms. Iðnaðarmannafélag Hafnarfjarðar
gekk í Landssamband Iðnaðarmanna við stofn-
un þess 1932, og hefir jafnan átt mann í stjórn
þess.
Styrktarsjóður iðnaðarmanna í Reykjavík
Aðalfundur sjóðsins var haldinn í Baðstofu Iðnaðar-
mannnafélagsins föstudaginn 6. maí 1949.
Formaður sjóðsins, Tómas Tómasson, setti fundinn.
Gat hann fyrst tveggja látinna félaga, þeirra Ingimund-
ar Benediktssonar og Reinh. Andersons. Ennfremur hafði
iátizt Vigdís Péturssdóttir, ekkja Einars Finnssonar. er
um skeið var formaður sjóðsins. Risu fundarmenn úr
sætum sínum til virðingar við hina látnu.
Eign sjóðsins var við síðastliðin áramót kr. 70.955,60.
Úthlutað hafði verið til fjögurra ekkna sjóðsfélaga
samtals kr. 1400.00.
Stjórnin var öll endurkosin. en hana skipa: Tómas
Tómasson, Einar Erlendsson, Guðm. H. Guðmundsson,
Vigfús Guðbrandsson og Ársæll Árnason.
Varamaður í stjórn: Flosi Sigurðsson.
Enndurskoðendur: Ragnar Þórarinsson, Guðm. Gama-
líeisson. Til vara: Sig. Halldórsson.
39