Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 30

Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 30
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949 VerkamannabústaSirnir á Siglufiröi í smíöum voriö 191ft. aura á hvert hlaupandi fet ef steypt er við timbr- ið óheflað og ósmurt. Oft hafði ég hugsað um hvort ekki myndi heppilegt að nota flekamót. Þetta kom þó ekki til framkvæmda hjá mér, fyrr en vorið 1946 er við félagar byggðum verkamannabústaði hér á Siglufirði. Reynzla okkar varð þá svo góð, að við getum hiklaust mælt með þeim steypu- mótum, sem við notuðum, enda þótt þau standi vafalaust til bóta, sem hver önnur tilraun. Mun ég nú lýsa mótunum nánar. Vorið 1946 tók byggingafélagið Sveinn & Gísli h.f. að sér að byggja þrjár húsasamstæður fyrir Byggingafélag verkamanna hér á Siglu- firði. Húsin eru þrjár hæðir og 10 íbúðir í hverju. Grunnflötur hvers húss er um 300 fermetrar. Tilboð okkar í þetta verk var mjög lágt, og varð því að framkvæma verkið á sem hagfelldastan hátt, án þess þó að rýra á nokkurn hátt gæði verksins. Var þá fyrst athugað hvort ekki mætti spara bæði vinnu og efni við mótauppsláttinn. Leystum við þann vanda með flekamótum okkar, og náðum sem sagt mjög góðum árangri. Uppsláttur fyrir hverri hæð bústaðanna kost- aði, reiknað með núverandi kaupi, frá 11.700 til 12.800 krónur. Er þá talin öll vinna við að ganga frá mótum fyrir útveggjum, skilveggjum og lofti, frásláttur, hreinsun, flutningur milli húsa og uppsetning á steypubómu. Við byrjuðum að grafa fyrir þessum þrem húsum, 30 íbúðum, 18. maí 1946, en 19. okt. um haustið var búið að reisa þau öll. Verkinu hefð- um við ekki komið í framkvæmd á svona skömm- um tíma, án flekamótanna. Neðsta hæðin (kjallarinn) er 2,40 m., efri hæðirnar 2,50 m. undir loft. Þurfti því að smíða innri flekana af þessum tveimur „standard“- lengdum. Ekki fékkst unninn viður í flekana, voru þeir því smíðaðir úr venjulegu mótatimbri. En til þess að þeir verði endingargóðir mun vera nauðsynlegt að smiða þá úr gólfborðum. Sú hlið flekanna, sem að steypunni snéri, var hefluð. Er það mjög kostnaðarlítið að þykktarhefla nýj- an við og tel ég að alltaf ætti að gera það, við timbur, sem notað er til mótagerðar. Með því verða veggirnir sléttari og minna verk að rétta þá af með múrhúðun og hún jafnvel óþörf. Einnig er léttara og fljótlegra að hreinsa heflað timbur en óheflað. Til þess að losna að mestu við hreinsun flekanna, bárum við á þá brennda smurningsolíu, og reyndist það ágæt- lega. Þó þarf að bera á þá aftur, eftir að þeir hafa verið notaðir tvisvar eða þrisvar. Er það mjög lítil vinna. Við smíði flekanna, ber að gæta þess, að ok- arnir, sem á þá eru negldir, nái ekki alveg út á kannta þeirra, svo að auðvelt verði að setja þá saman í hornunum. Okarnir eiga að vera allir í sömu hæð. Breidd flekanna var 50 sm. Ytri flek- arnir eru 2,75 m. á lengd og innri flekarnir eins og áður er sagt 2,40 m. á lengd fyrir kjallara- hæðina og 2,50 m. fyrir efri hæðirnar. 48

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.