Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Síða 33
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949
FÉLAG BIFREIÐASMIÐA
hélt aðalfund sinn 7. febr. s.l. Formaður gaf skýrslu um
starfsemi félagsins á síðastliðnu ári, 3 félagsfundir voru
haldnir og 10 stjórnarfundir.
1 félagið gengu 3 nýir bilasmiðir og eru félagsmenn nú
40. Ellefu piltar stunda nám í iðninni.
Fjármál félagsins eru í góðu lagi. Gísli Jónsson, sem
verið hefur formaður félagsins í 8 ár. óskaði eindregið
eftir að verða ekki endurkjörinn.
1 stjórn voru kosnir: Gunnar Björnsson, formaður,
Magnús Gíslason ritari og Guðjón Jónsson gjaldkeri.
IÐNAÐARMANNAFÉLAG HÚSAVlKUR.
Tveir félagsmenn hafa bæst við á árinu, en enginn
farið úr því. Tveir félagsfundir voru haldnir á árinu.
Eins og að venju gekkst félagið fyrir samkomuhaldi 1.
des. Ágóðanum, kr. 3960.OO, var varið til sundlauga-
byggingar, sem reisa á þar næsta sumar ef leyfi fást til.
Iðnðarmenn hafa haft nokkurnveginn nægilegt að
starfa síðastliðið ár, þótt efisskortur haíi verið all til-
finnanlegur. Fjárhagur félagsins er sæmilega góður.
Eignir þess um 18 Þús. krónur. Fyrrverandi formaður,
Einar J. Reynis, skoraðist með öllu undan endurkjöri, þar
sem hann er svo störfum hlaðinn.
Stjórn félagsins skipa nú: Sigtryggur Pétursson, bak-
arameistari, formaður. Ingólfur Helgason, húsasmiðam.
ritari. Hólmgeir Árnason, múraram., gjaldkeri.
BAKARAMEISTARAFÉLAG REYKJAVlKUR
hélt aðalfund 30. jan. s.l. Formaður gaf skýrslu um störf
félagsins á siðastliðnu ári, og var hún í stórum dráttum
þannig:
Haldnir voru 9 vel sóttir félagsfúndir. Félagið átti í
allhörðu striði við verðlagsstjóra og viðskiptanefnd vegna
þess, að því var synjað um eðlilega hækkun á vöru-
verði, þrátt fyrir aukin kostnað á ýmsum sviðum.
Félögin S. S. F. 1. og A. S. B. sögðu bæði upp samn-
ingum þeim. sem þau höfðu við félagið, og fóru nú fram
á nokkra kauphækkun og önnur hlunnindi. Um líkt leyti
voru allar hveitibirgðir í Reykjavík þrotnar og varð
þetta hvorttveggja til þess, að öll vinna í bakaríum
stöðvaðist frá 1. maí til 28 maí. En þann dag voru samn-
ingar við B. S. F. undirritaðir en nokkru áður við A. S.
B. Hófst þá vinna á ný, þótt félagið fengi engu um þok-
að við verðlagsyfirvöldin og hefði neyðst til að hækka
kaupgjaldið.
Rúgbrauðsgerðin h.f. tók til starfa um miðjan júní-
mánuð. Voru við það ýmsir byrjunarörðugleikar, sem
hafa verið yfirunnir að mestu. 1 Rúgbrauðsgerðinni eru
nú framleidd nálega öll rúg- og normalbrauð, sem neytt
er í Reykjavík og nágrenni.
Tveir nýir félagsmenn bættust við á árinu. Stjórnar-
kosning fór þannig: Formaður, Gísli Ólafsson var endur-
kosinn, en ritari og gjaldkeri báðust undan endurkosn-
ingu vegna annrikis, svo að i þeirra stað voru kosnir
Edvard Bjarnason ritari og Ágúst H. Pétursson gjald-
keri.
MtJRARAFÉLAG AKUREYRAR.
Starfsemi félagsins var mjög lítil á árinu 1947 og að-
eins tveir fundir haldnir. Grunnkaup hélst óbreitt.
Aðalfundur sem haldinn var þann 31. marz s.l. sam-
þykkti að leggja niður eigin verðskrá og taka upp verð-
skrá Múrarafélags Reykjavíkur.
Tveir nýir félagar bættust við á árinu og er félagatala
nú 21. Afkoma félagsmanna var góð á árinu.
Stjórn félagsins skipa: Formaður, Gunnar Sigþórsson.
Ritari, Tryggvi Sæmundsson. Gjaldkeri, Gunnar Óskars-
son.
IÐNAÐARMANNAFÉLAG DALVlKUR.
Aðalfundur félagsins var haldinn 20. marz s.l. Stjórn
félagsins var endurkosin, en í henni eiga sæti:
Guðjón M. Kristinsson, formaður. Jón Sigurðsson, vara-
formaður. Páll Sigurðsson, ritari. Jón E. Stefánsson, fé-
hirðir og Steingrímur Þorsteinsson meðstjórnandi.
Á árinu voru haldnir 2 félagsfundir og 6 stjórnarfund-
ir og frekar var dauft yfir starfseminni.
1 ársbyrjun fékk félagið þvi framgengt, að það fengi
að tilnefna fulltrúa í bygginanefnd þorpsins, sem þá var
nýtekin til starfa.
Félagið ákvað að gerast aðili að byggingu fyrirhugaðs
félagsheimilis ásamt öðrum stærri félögum þar á staðn-
um, og tilnefndi fulltrúa í nefnd sem fjallar um fram-
gang þess máls.
Félagið ákvað að gangast fyrir rannsókn á því hver
væri raunverulegur byggingakostnaður íbúðarhúsa af
ýmsum gerðum þar á staðnum. og fylgjast með því í
framtiðinni.
Afkoma félagsmanna var yfirleitt góð á árinu, þótt
nokkuð bæri á efnisskorti í sumum iðngreinum, einkum
hjá trésmiðum og málurum. Hvað sérstaklega mikið að
krossviðarleysi, er kom sér mjög illa fyrir trésmiðavinnu-
stofurnar.
Félagsmenn eru 26 eins og við síðustu áramót, þar af
18 með iðnréttindi. Hinir eru aukafélagar samkvæmt
lögum félagsins. Tveir húsasmiðir luku sveinsprófi á ár-
inu, 1 netjamaður og 1 múrari.
FÉLAG VEGGFÓÐRARA 1 REYKJAVlK.
Aðalfundur félagsins var haldinn 6. marz s.l. Á liðnu
starfsári voru haldnir 5 félagsfundir og 11 stjórnarfundir.
Einn félagi bættist við á árinu.
Mjög hefur efnisskortur verið tilfinnanlegur hjá fé-
lagsmönnum undanfarið. Hefir hann haft mjög lamandi
áhrif á alla afkomu félagsmanna. Félagsstjórn gerði
allt sem hún gat til að bæta úr vandræðunum og er það
von félagsmanna að umkvartanir við innflutningsyfir-
völdin beri góðan árangur á næstu tímum.
51