Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1962, Page 4
ÁVARP
iðnaðarmálaráðherra, dr. bjarna benediktssonar
Tilkoma og efling stéttar iðnaðarmanna er í senn
vitni og lyftistöng proska og framfara íslenzku þjóðarinnar. Þörfin d velmenntuðum og þjálfuðum
mönnum til hagnýtingar á síbreytilegri og vaxandi tækni hefur aldrei verið meiri en nú og mun
þó fyrirsjáanlega stóraukast í framtíðinni. íslenzkir iðnaðarmenn liafa því mikilvægu verkefni að
gegna i þjóðfélaginu. Öflug iðnaðarmannasamtök, sem vinna með en ekki á móti öðrum stéttum,
eru öllum til góðs. Ætíð vakna ný úrlausnarefni, sem ekki verður ráðið við nema með samstarfi
aðila sín á milli og við aðra. Tímabær fræðsla og nægt fjármagn til framkvæmda eru meðal þeirra
verkefna, sem fullnaðarlausn fæst seint á en stöðugt verður að vinna að. Landssamband iðnaðar-
manna hefur á þrjátíu ára starfstíma miklu góðu til vegar komið en þarf sízt. að kviða því, að verða
verkefnalaust i framtíðinni. Megi það dafna og blómgast um langan aldur, iðnaðarmönnum og
þjóðinni allri til heilla.
44
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA