Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1962, Blaðsíða 23
nemendur hver að meðaltali. - Ef þeim væri svo skipt
jafnt á hin 4 námsár iðnnámsins, koma 3 nemendur í
hvern bekk skólans, - og e. t. v. eru þeir allir við nám
í mismunandi iðngreinum.
Sýnist mér ekki þurfa frekari skýringa við, til að
menn sjái hversu óheppilegt þetta er frá þjóðhagslegu
sjónarmiði.
Á sama tíma sem réttmætar kröfur iðnstéttanna fyr-
ir aukna fræðslu og endurbættar kennsluaðferðir
verða æ háværari, gera menn sér ljóst, að til þess að
fylgjast með þróuninni og fullnægja ktöfum tímans
þarf æ betri tæki og betur menntaða kennara. - Tækn-
in og þau efni, sem iðnaðurinn vinnur úr, verða fjöl-
breyttari með hverju árinu og þess gerist sí og æ þörf,
að hver og einn fylgist með nýjungum í sinni grein,
svo að hann dragist ekki aftur úr. - Þess gerist þá og
þörf, að iðnskólarnir, svipað og aðrir tæknilegir skólar,
séu þannig skipulagðir, að þeir geti fylgt þróuninni og
mótað kennsluna í samræmi við hana á hverjum tíma.
Ef litið er á hinn hlutfallslega mikla fjölda iðnskóla
hér á landi, og hve nemendur eru víða fáir, skilst, að
engin tök verða á því að búa þá alla fullkomnum tækj-
um til alhliða iðnskólakennslu. - Það er almennt
viðurkennt, að heppilegt sé að taka upp verkkennslu í
iðnskólum og að nemendum séu þar kennd á kerfis-
bundinn hátt, öll undirstöðuatriði hvers verklegs náms
strax í byrjun námsferilsins, og síðan sé námið smá-
þyngt þannig, að tryggð sé alhliða undirstöðuþekking
hinnar verklegu hliðar iðnarinnar, þegar námi lýkur. -
Talsvert fjármagn er nauðsynlegt til þess að hægt sé
að halda uppi verkkennslu í sem flestum greinum, og
afla til þess tækja og annars, sem með þarf. Er þá líka
sjálfsagt, að sem flestir njóti þeirrar aðstöðu, sem skap-
ast og að nemendur séu látnir, eftir því sem við verður
komið, stunda sitt skólanám, þar sem aðstaðan er bezt.
í Danmörku hefur í vaxandi mæli verið farið inn á
þá braut að skapa góða aðstöðu til verklegrar og bók-
legrar kennslu fyrir einstakar iðngreinar á fáum stöð-
um í landinu, og flytja nemendur víðsvegar að til þess-
ara fagskóla í stað þess að halda uppi við hvern iðn-
skóla kennslu í öllum iðngreinum, stundum við léleg-
ar aðstæður á hverjum stað. - Þannig hafa t. d. verk-
legir skólar fyrir fámennar iðngreinir verið settir á
stofn á einum til tveim stöðum á landinu, en kennsla í
þeirri grein lögð niður allstaðar annars staðar. - Við
þetta skapast betri nýting kennslukrafta og tækja og
yfirlcitt fæst betri árangur í námi.
Þessu fylgir að sönnu nokkur kostnaður við bygg-
ingu heimavista fyrir aðkomna nemendur og líka
nokkur ferða- og dvalar-kostnaður, en menn cru samt
ckki í vafa um, að þetta sé hin rétta leið, enda hleypur
Dæmi:
KETIL- OG I’LOTUSMItil
Verklegt náni: 4 ár.
Iðnskólanám: 4 ár.
Kcnnslutími 8 vikur auk prófs í liverjum bekk.
i.i). 2. b. 3. b. 4. b. Alls í skóla
Flatarteikning 9 72
Fríhendisteikning . . . 9 9 144
Rúinteikning 9 72
Iðnteikning 18 18 288
Iðnteikning, fríh
Islenzka 6 6 6 G 192
Reikningur 6 6 6 6 192
Efnisfræði 3 24
Efnafræði 3 24
Eðlisfræði 3 24
Bókfærsla 4 5 72
Enska 3 1
Danska 3 } 6 ■ ö G 192
Almenn skrift 3 24
Blokkskrift 4 32
Hjálp í viðlögum .... 1 8
Iðnreikningur 2 16
Stundir alls 44 44 43 43 1392
hið opinbera undir bagga til að létta nemendum og
meisturum kostnaðinn.
Það þarf varla að taka fram, að í Danmörku er,
þrátt fyrir þessa auknu verkkennslu í iðnskólum, hald-
ið áfram með meistarakennsluna sem aðalatriði verk-
lega námsins, enda álitið að skólafræðsla geti aldrei
komið í stað alhliða þjálfunar hjá meistara og stórum
iðnfyrirtækjum.
Ef litið er á nemendafjölda í 2. bekk gagnfræða-
stigsins í Reykjavík, en í 2. bekk lýkur skyldunámi eins
og vitað er, eru nemendur þar, samkv. fyrrnefndri
skýrslu 1236. - Samkvæmt sömu heimildum töldust 859
iðnnemar við nám í Iðnskólanum í Reykjavík, öllum
4 bekkjunum. Samkvæmt reynslu má segja, að i8-2o9<
þeirra unglinga, sem ljúka skyldunámi, leiti í iðngrein-
arnar og þeir, sem hófu nám í 1. bekk Iðnskólans á því
skólaári, sem um ræðir í skýrslunni, samsvara yfir
20% þeirra, sem stunduðu nám í 2. bekk gagnfræða-
skólanna.
Það er því ljóst að búa þarf vel að þessum hópi
ungmenna og láta einskis ófreistað að þjálfa hann sem
bczt undir lífsstarfið; - gefa honum kost á því bezta,
sem völ er á og þjóðin getur skaffað, til þess að árang-
urinn verði dugmiklir og nýtir borgarar.
Eitt er það, sem stundum virðist ekki nægilega vel
athugað, er unglingar hefja iðnnám, og það eru hæfi-
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
63