Fréttablaðið - 16.11.2009, Page 20

Fréttablaðið - 16.11.2009, Page 20
 16. NÓVEMBER 2009 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald Þeir eru þaulvanir smiðirnir sem vinna að því að bjarga gömlum húsum í atvinnuá- taksverkefninu Völundarverk- Reykjavík. „Þetta hús er eiginlega fyrsta kaffihúsið í Reykjavík,“ segja húsasmiðirnir Guðmundur Krist- inn Ólafsson og Finnbogi Gústafs- son, sem eru um þessar mundir að ljúka endurgerð á gömlu húsnæði við þjónustumiðstöð Reykjavíkur- borgar á Stórhöfða. Sameiginleg reynsla þeirra í húsasmíði slagar upp í áttatíu til níutíu ár en inni í þeirri tölu er tuttugu ára reynsla Guðmundar í járnsmíði. „Umrætt hús var byggt á Hverf- isgötu 125 og oftast kallað Norð- urpóllinn. Það er langt síðan við höfum gert upp svona gömul hús og það er góð tilbreyting að fara úr steypunni í tréverkið,“ segja félag- arnir en þeir fóru á undirbúnings- námskeið hjá borginni um bygging- arsögu, reglugerðir og útfærslur byggingarhluta sem notaðar voru á húsum og mannvirkjum þess tíma sem fjallað er um. „Það er gaman að sjá hvernig unnið var hér áður fyrr. Við reynum eins og við getum að nota upprunalegu efnin en það er nú ekki alltaf hægt.“ En kom hrunið illa við ykkur? „Já, það kom illa við alla smiði held ég,“ segir Guðmundur en bætir við að smiðir séu vanir miklum sveifl- um á vinnumarkaði og því ef til vill betur undir kreppuna búnir en aðrir. „En þetta verkefni Reykja- víkurborgar er mjög gott fyrir okkur sem vinnum að þessu. Hóp- urinn er mjög hress og skemmti- legur og menn koma víða að. Þá koma að þessu verk- og tækni- fræðingar auk arkitekta. Þetta er bara mjög skemmtilegt,“ end- urtaka þeir félagar og víst væri gaman ef þessi menningararfur Reykjavíkur, Norðurpóllinn, sem nú er óðum að taka á sig afar fal- lega mynd, yrði aftur að einhvers konar kaffihúsi. - uhj Endurbyggja fyrsta kaffihús Reykjavíkur Völundarsmiðirnir Guðmundur og Finn- bogi gera við þakið á gamla kaffihúsinu. Húsið Norðurpóllinn er hluti atvinnuátaki Reykjavíkurborgar og hefur heppnast mjög vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁ Bárujárnið hefur yfir sér einhvern rómantískan blæ en sennilega hafa þessir völdun- arsmiðir ekki verið að spá í það þegar þeir settu það á húsið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ● BURT MEÐ BLETTINA Algengt er að erfitt sé að losna við ákveðin efni úr viði, hafi þau ekki verið fjarlægð strax. Hér á eftir eru leiðbeiningar um hvaða hreingerningarvökva sé best að nota til að losna við þau:  Grænsápu í vatni er gott að nota til að losna við kaffi, djús, mjólk, kaffi og vín.  Rauðspritt (með varúð) má nota til að losna við bletti eftir til dæmis varalit og blek.  Mínerölsk terpentína (með varúð) virkar vel á skósvertu, olíu, súkku- laði, fitu og fleira.  Hægt er að leggja klút með asetoni á límbletti, hvolfa glasi yfir og skilja eftir í nokkrar mínútur. Að svo búnu má skafa burt. ● LÉLEGT RENNSLI Ef hefill er stamur á viðn- um og rennur ekki greiðlega eftir honum getur það stafað af trjákvoðu eða öðrum óhreinind- um á sólanum. Gott ráð er að hreinsa hann með terpentínu, þurrka vel og bera svo á heitt kertavax, með sikksakk-hreyfingum. Heimild: Verk að vinna ● GEYMDU BLAUTA PENSLA Í POKA Þurfi maður að skilja málningarpensil eftir í stutta stund en hefur ekki tíma til að hreinsa hann áður, er gott ráða að vefja plastfilmu eða álpappír utan um hannog stinga í poka. Þannig kemur maður í veg fyrir að loft komist að penslin- um og hann helst áfram mjúkur. Eins má stinga honum inn í frysti eftir að búið er að pakka honum inn. Þá helst hann lengur mjúkur. ● RÉTT YFIRBORÐSMEÐ- HÖNDLUN Húsgagnabón er blanda af mjúku og hörðu vaxi sem gefur húsgögnum fallegt, gljá- andi yfirborðslag. Mælt er gegn því að menn noti ákveðnar tegund- ir af húsgagnabóni, þar á meðal þær sem innihalda sílikon, þar sem það getur skapað vandkvæði næst þegar flöturinn er meðhöndlaður. ● TÖFF TANNLÆKNASTOFA Óhætt er að segja að ekki væsi um viðskiptavini þessarar tannlæknastofu sem er í Hiroshima í Japan og líkist öðru fremur sumar- húsi af flottustu gerð. Hönnuðurinn Keisuke Maeda hjá UID Architects fékk það verkefni að hanna og innrétta tannlæknastofuna auk snyrtistofu og arkitektastofu í sama húsnæði svo útkoman myndaði eina heild. Maeda notar krossvið til að skilja á milli rýma en á hverju og einu þeirra eru stórir gluggar með góðu útsýni yfir skóg. Gluggunum er ætlað að hleypa inn góðri birtu auk þess sem viðskiptavinunum gefst færi á að njóta útsýnisins á meðan þeim er sinnt. Þannig er hægt að gleyma stað og stund jafnvel þótt tannlæknir- inn sinni sínu verki.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.