Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 41
MÁNUDAGUR 16. nóvember 2009
Jólaosturinn 2009
Havartiættaður
með lauk og papriku.
Höfðingi
Bragðmildur hvítmygluostur
sem hefur slegið í gegn.
Jóla-Brie
Á ostabakkann og með
kexi og ávöxtum.
Jóla-Yrja
Bragðmild og góð
eins og hún kemur
fyrir eða í matargerð.
Camembert
Einn og sér, á osta-
bakkann og í matargerð.
Stóri-Dímon
Ómissandi þegar
vanda á til veislunnar.
Gullostur
Bragðmikill hvítmygluostur,
glæsilegur á veisluborðið.
Jólaostakaka
með skógarberjafyllingu
Kætir bragðlaukana
svo um munar.
Gráðaostur
Tilvalinn til matargerðar.
Góður einn og sér.
Engin jól án þeirra!
Þegar íslensku ostarnir eru bornir fram, einir sér,
á ostabakka eða til að kóróna matargerðina
Dala-Yrja
Sígildur veisluostur sem
fer vel á ostabakka.
Blár kastali
Með ferskum ávöxtum
eða einn og sér.
Hátíðarostur
Mjúkur og bragðgóður brauðostur.
Rjómaostur
Á kexið, brauðið, í sósur og ídýfur.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
ms.is
www.facebook.com/graenaljosid
FRUMSÝND 6. NÓVEMBER
FÓTBOLTI Frakkar standa best að
vígi af þeim átta þjóðum í Evr-
ópu sem berjast um síðustu fjóra
farseðlana á HM í Suður-Afríku á
næsta ári.
Frakkar unnu gríðarlega mikil-
vægan útisigur á Írum, 0-1. Það
var Nicolas Anelka sem skoraði
eina mark leiksins, skot hans fyrir
utan teig fór af varnarmanni og í
netið. Talsverð lukka en lukkan
yfirgaf Írana algjörlega en þeim
var fyrirmunað að skora. Fengu
þeir þó dauðafærin til þess en
klaufaskapur við mark Frakkana
varð þess valdandi að þeir þurfa að
klífa ansi háa brekku í Frakklandi
á miðvikudag.
„Við erum frekar vonsviknir því
mér fannst að jafntefli hefði verið
sanngjörn niðurstaða úr þessum
leik,“ sagði hinn ítalski þjálfari
Íra, Giovanni Trapattoni.
„Við vissum vel hversu sterkt
franska liðið er en við höfum
okkar styrkleika, okkar aga og
okkar hugarfar sem við sýndum
vel í fyrri hálfleik. Það var leiðin-
legt að fá svona ódýrt mark á sig
og eftir það misstum við trúna á
sjálfa okkur. Við rönkuðum þó
við okkur í lokin og hefðum getað
skorað rétt fyrir leikslok,“ sagði
Trapattoni sem hefur ekki gefist
upp.
„Það er bara búinn fyrri hálf-
leikur í þessu einvígi. Síðari hálf-
leikurinn er eftir í París. Kannski
snýst dæmið við þar og við skorum
heppnismark. Hver veit?“.
Þó svo Frakkar hafi unnið sneri
umræðan um Frakka enn eina
ferðina að einhverju neikvæðu.
Franskir fjölmiðlar héldu því
fram að Thierry Henry hefði lent
í hávaðarifrildi við Raymond Dom-
enech þjálfara þar sem Henry var
ósáttur við að hann skildi ekki
velja Patrick Vieira í landsliðið.
„Ég tala við Henry fyrir hvern
leik enda er hann fyrirliði liðs-
ins. Að þessu sinni kom eitthvað
jákvætt út úr viðræðum okkar,“
sagði Domenech dulur en margir
telja það óskiljanlegt að hann skuli
enn stýra franska landsliðinu.
Portúgal á erfitt verkefni fyrir
höndum eftir að hafa aðeins lagt
Bosníu að velli, 1-0, á heimavelli.
Portúgalar voru í raun stálheppnir
að vinna leikinn því Bosníumenn-
irnir skutu í þrígang í markstangir
heimamanna.
„Miðað við hversu nálægt þeir
voru að skora má segja að við
höfum verið heppnir,“ sagði Queir-
os, þjálfari Portúgals. - hbg
Enn spenna í HM-umspilinu eftir fyrri leikina sem fram fóru um helgina:
Frakkar í bílstjórasætinu gegn
Írum þökk sé Nicolas Anelka
STERKUR Nicolas Anelka reynir hér skot að marki en Damien Duff er til varnar.
NORDIC PHOTOS/AFP