Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 17
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 HAMINGJU-HÁDEGI eru haldin í Guðríðarkirkju í Grafarholti alla miðvikudaga klukkan 12.10. Í dag halda Óperu-ídívurnar Davíð og Stefán tónleika með söng og glens. Í næstu viku er stílað inn á hláturjóga og félags- vist og 2. desember verður karlakórinn Voces Mascul- um með tónleika ásamt landsþekktum einsöngvurum. „Það er ótrúleg upplifun að búa hjá alvöru ítalskri fjölskyldu,“ segir Borgar Guðjónsson, starfsmað- ur hjá Emmessís. Borgar dvaldi í Ventimiglia, 20.000 manna þorpi á Ítalíu, skammt frá frönsku landa- mærunum, í tvær vikur fyrir ára- tug. Ferðalagið kom þannig til að þáverandi samstarfsmaður Borg- ars hjá Sól-Víking, hinn ítalski Pino Salvatore, bauð Borgari að búa hjá sér og fjölskyldu sinni í þorpinu. „Gestrisnin var ótrú- leg,“ segir Borgar. „Þau voru þrjú í heimili og ég gestur, en öll kvöld var eldað margréttað eins og fyrir tólf manns. Þegar öðrum fjöl- skyldum var boðið í mat var eld- aður nægur matur fyrir fjörutíu manns, jafnvel þótt við værum einungis tíu við borðið.“ Borgar segir karlmennina ekki hafa komið nálægt matargerð- inni að neinu leyti. „Ég olli nánast hneykslun þegar ég ætlaði að taka disk af borðinu. Þá varð bara þögn, karlarnir horfðu á mig og hugsuðu væntanlega með sér hverslags kerling ég væri eiginlega.“ Dögunum eyddi Borgar í ról- egheitum í þorpinu. Hann fór á ströndina, synti í sjónum og sótti marga útimarkaði. Einn slíkur í þorpinu er þekktur sem einn sá elsti sinnar tegundar í Evrópu. Nálægðin við landamærin gerði það líka að verkum að hægur leik- ur var að skjótast yfir til Mónakó með lest. „Þetta þorp var algjör draum- ur,“ segir Borgar. „Það er staðsett í fjallshlíð og mér fannst stundum eins og ég væri staddur í sígildri ítalskri kvikmynd frá sjötta ára- tugnum. Ég bjóst hálfpartinn við að á hverri stundu myndi Sophia Loren hlaupa framhjá, ég myndi grípa hana og saman myndum við velta niður í sandinn. Þá hafði ég reyndar í huga Sophiu eins og hún leit út fyrir nokkuð mörgum árum,“ segir Borgar og hlær. Að sögn Borgars var í raun fátt í þorpinu sem minnti á að ártalið var 1999. „Einu skiptin sem mér var kippt inn í nútímann var þegar ég gekk framhjá þorps-pöbbunum og allir voru að horfa á Formúlu 1 í sjónvarpinu og hvetja ökuþórinn Mika Häkkinen til dáða. Ítalirnir dýrkuðu hann.“ Borgar er 1,73 metrar á hæð, nokkuð undir meðalhæð íslenskra karlmanna, og segist aldrei hafa verið viðkvæmur fyrir smæð sinni. „Þarna í þorpinu leið mér iðulega eins og vinalega risanum sem labbar um, veifar, klappar öllum á kollinn og brosir. Þetta er paradís fyrir lágvaxna menn sem vilja upplifa sig eins og lands- liðsmenn í körfuknattleik,“ segir Borgar. Sterk vináttutengsl hafa mynd- ast milli Borgars og ítölsku fjöl- skyldunnar. „Þau komu í brúð- kaupið mitt þremur árum síðar og mig langar afar mikið til að heim- sækja þau aftur.“ kjartan@frettabladid.is Í paradís fyrir lágvaxna Borgar Guðjónsson upplifði ekta ítalska stemningu þegar hann bjó hjá heimafólki í þorpinu Ventimiglia í tvær vikur. Finnskur ökuþór var það eina sem kippti honum reglulega inn í nútímann. „Þarna í þorpinu leið mér iðulega eins og vinalega risanum sem labbar um, veifar, klappar öllum á kollinn og brosir,“ segir Borgar sem dvaldi hjá ítalskri fjölskyldu í litlu þorpi við landamæri Frakklands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.