Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 36
20 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is SVAVAR GUÐNASON FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1909. Listin sprettur af lífinu sjálfu en ekki neinni fagurfræði. Svavar Guðnason var listmálari. Hann starfaði í mörg ár í Dan- mörku og var virkur í hópi rót- tækra myndlistarmanna sem voru kenndir við Cobra. Hann er álitinn einn af helstu málurum Íslands á ofanverðri 20. öld. MERKISATBURÐIR 1709 Biskupsstofan á Hólum í Hjaltadal brennur. Mikið glatast af verðmætum. 1897 Blaðamannafélag Íslands er stofnað. 1918 Lettland lýsir yfir sjálf- stæði frá Rússlandi. 1963 Takkasíminn er tekinn í notkun. 1981 Áttunda hrina Kröfluelda hefst og stendur hún í fimm daga. 1982 Vilmundur Gylfason geng- ur úr Alþýðuflokknum og stofnar Bandalag jafnað- armanna. 1993 Írska drengjahljómsveitin Boyzone er stofnuð. 2004 Rússland staðfestir Kyoto- bókunina. Þennan dag árið 1626 var Péturskirkj- an í Róm vígð af Úrbanusi VIII. páfa. Kirkjan er dómkirkja páfans í Vatíkan- inu í Róm. Hún var reist á rústum eldri kirkju sem var byggð á þeim stað þar sem talið var að gröf heilags Péturs væri. Sú kirkja var byggð af Konstat- ínusi mikla á milli 326 og 333. Undir lok 15. aldar var kirkjan mikið skemmd og var ákveðið að reisa nýja. Bygging hennar hófst árið 1506 en lauk ekki fyrr en rúmri öld síðar. Kirkj- an skipar stóran sess hjá kaþólskum enda er hún dómkirkja páfans og þar með höfuðkirkja alls kristindóms. Hún er einnig grafarkirkja heilags Péturs og nánast allra páfa eftir hans dag. Þá er kirkjan mikilvægur áfangastaður píla- gríma. ÞETTA GERÐIST: 18. NÓVEMBER 1626 Péturskirkjan í Róm vígð PÉTURSKIRKJAN Í RÓM. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er níutíu ára í dag. Af því tilefni býður fé- lagið félagsmönnum til móttöku í and- dyri nýju Laugardalshallarinnar milli 17 og 19 á föstudag auk þess sem efnt verður til afmælisþings á Grand Hóteli Reykjavík á föstudag og laugardag. „Þetta eru hápunktarnir en auk þess er verið að vinna bók um sögu félags- ins,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir for- maður félagsins. „Hún átti að koma út á afmælisárinu en því miður dregst útkoman fram yfir áramót. Hún er þó alveg á næsta leiti og lofa ég yfir- gripsmikilli bók um sögu hjúkrunar.“ Á afmælisþinginu er ætlunin að draga fram fjölbreyttar hliðar hjúkrunar og munu þrettán fagdeildir félags- ins bjóða upp á fræðsludagskrá hver á sínu sviði. „Við ætlum ekki að fjalla um niðurskurð og hagræðingu held- ur koma saman, fræðast og skemmta okkur.“ Hjúkrunarfræðingar eru lang- stærsta heilbrigðisstéttin á Íslandi og eru skráðir félagsmenn 4.512. Þar af eru 4.447 konur og 65 karlar. „Um 2.700 eru virkir félagar sem fá laun samkvæmt okkar kjarasamningum en auk þess er í félaginu hópur öldunga og hjúkrunarfræðinga sem starfa við kennslu eða á öðrum sviðum,“ upplýs- ir Elsa. Hún segir það skipta miklu máli fyrir samstöðu og styrk að nán- ast allir hjúkrunarfræðingar á Ís- landi eru aðilar að félaginu en það er ekki alltaf raunin hjá samstarfsfélög- um erlendis. „Við erum mjög lánsöm með það.“ Spurð hvort mikið hafi breyst á þessum níutíu árum segir Elsa að í raun séu alltaf sömu grundvallarstefin gegnumgangandi. „Við berjumst fyrir hag og réttindum skjólstæðinga, hags- munum hjúkrunarfræðinga og mennt- un stéttarinnar, en fyrsti doktorsnem- inn úr hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands útskrifaðist einmitt í fyrra.“ Elsa á von á mörg hundruð hjúkr- unarfræðingum í móttökuna og á af- mælisþingið en þó verða margir upp- teknir við störf auk þess sem stór hluti þeirra starfar úti á landi. „Við höfum gert samning við Mosfellsbakarí sem er búið að hanna sérstaka tertu með merkinu okkar og höfum við hvatt stjórnendur heilbrigðisstofnana til að kaupa þessa köku og hafa hana í boði fyrir sitt fólk til að sem flestir geti haldið upp á daginn.“ vera@frettablaðið.is FÉLAG ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA: ER NÍUTÍU ÁRA Í DAG Sömu grunnstefin alla tíð BÓK Á NÆSTA LEITI Von er á yfirgripsmikilli bók um sögu hjúkrunar eftir áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóna Guðríður Arnbjörnsdóttir frá Nýlendu Stafnesi, til heimilis að Miðhúsum Sandgerði, verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju, föstudaginn 20. nóvember kl. 13.00. Sigurbjörg Eiríksdóttir Gunnar B. Sigfússon Arnbjörn R. Eiríksson Guðrún J. Eiríksdóttir Þröstur Sveinsson Laufey Þ. Eiríksdóttir Dagbjört H. Eiríksdóttir Eiður Stefánsson barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Frænka okkar, Lára Þorgeirsdóttir Flókagötu 64, andaðist á Dvalarheimilinu Grund 3. nóvember. Útförin hefur farið fram. Þorsteinn Þorgeirsson Kristín Þorleifsdóttir Oddfríður Halla Þorsteinsdóttir Kristofer Ewans Jóhannes Þorsteinsson Anabella Pereira Þorgeir Þorsteinsson Tanja Þorsteinsson Útför, elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Rögnvaldar H. Haraldssonar Sóleyjarima 9, Reykjavík, fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 20. nóvember kl.13.00. Ingibjörg Andrésdóttir Brynja Björk Rögnvaldsdóttir Þórhallur G. Harðarson Rögnvaldur Óttar Rögnvaldsson Margrét Gísladóttir AFMÆLI PETA WILSON leikkona er 39 ára. CHLOË SEVIGNY leikkona er 35 ára. PETER SCHMEICHEL knattspyrnu- maður er 46 ára. MARGARET ATWOOD rithöfundur er sjötug. Íslenski dansflokkurinn stendur fyrir djammviku dagana 25. til 28. nóvember. Þá sýnir flokkurinn fjög- ur ný verk í vinnslu, eitt á dag, eftir framsækna dans- höfunda. Listafólkið sem Íslenski dansflokkurinn hefur feng- ið til liðs við sig eru leiklist- armaðurinn Kristján Ingi- marsson, Tony Vezich og tví- eykið Steinunn Ketilsdóttir og Brian Gerke. Peter And- erson danshöfundur og dans- ari hjá flokknum á eitt verk á dagskránni. Með Djammviku er Ís- lenski dansflokkurinn að gefa nýjum höfundum tæki- færi til að vinna með flokkn- um. Þetta er jafnframt vett- vangur til að þróa og prófa nýja tækni og aðferðir við sköpunina. Nánari upplýsingar veitt- ar í síma í síma 568 8000 eða á www.id.is. Fjögur ný verk á fjölunum FRAMSÆKIN Fjögur ný verk í vinnslu verða sýnd á djammviku.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.