Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 18. nóvember 2009 3 „Í tilefni jólanna erum við með fjölskyldudaga þar sem námskeið- in eru styttri og tengd jólum. Og svo er þarna jólaföndur fyrir þá sem vilja koma og eiga stund með okkur, en ekki fara á einhver fyr- irfram skipulögð námskeið,“ segir Arna María Gunnarsdóttir, starfs- maður Heimilisiðnaðarfélagsins, og bætir við að á þessum nám- skeiðum myndist kósí og skemmti- leg stemning. „Sumir eru að gera þetta til að skreyta sín eigin heim- ili, aðrir koma til að fá hugmyndir að gjöfum. Hugmyndin í kringum þetta er að gefa allri fjölskyldunni færi á að koma og gera eitthvað jólalegt saman. Við reynum að stilla verðinu í hóf eins og reynd- ar alltaf,“ segir hún. Margir hafa ekki hugmynd um hvaða starfsemi fer fram í Heim- ilisiðnaðarfélaginu en það má með sanni segja að félagið sé stór- veldi á sviði heimilisiðnaðar. Það mun fagna 100 ára afmæli sínu eftir nokkur ár. Félagið sérhæfir sig meðal annars í þjóðbúninga- saumi, handverki, silfurvíravirki, sauðskinnskóagerð, upphlutum, leppum, tógvinnu, spjaldvefnaði og gömlu handverki sem marg- ir stunda um þessar mundir. Aðeins á þessari haustönn hafa verið haldin fimmtíu námskeið og stundum mæta mörg hundruð konur, og slæðingur af körlum, í prjónakaffið fyrsta fimmtudag hvers mánaðar á Amokka kaffi í Kópavogi. Arna María segir að öllum körl- um, konum og börnum sé velkomið að kíkja inn á laugardaginn. Heitt verður á könnunni milli klukkan 12 og 16 í Nethyl 2e sem er rétt hjá Árbæjarsafninu og Kattholti. Efni í jólaföndrið og músastigana kostar frá 250 krónum en brjóst- sykursnámskeiðið og hekluðu jóla- seríurnar kosta meira, enda fer oft mikið efni í þær. niels@frettabladid.is Allir föndra þá eitthvað fallegt Heimilisiðnaðarfélagið mun næstkomandi laugardag halda nokkur jólaörnámskeið. Í ár verður meðal annars boðið upp á kennslu í brjóstsykursgerð fyrir börn og unglinga. Þá verða heklaðar jólaseríur og jólakúlur þæfðar, svo fátt eitt sé nefnt. Þæfðar jólakúlur eru fallegar og ekki sérlega brothættar. Margt má gera til að skreyta jólaseríur. Á laugardaginn verða þær heklaðar. Arna María Gunnarsdóttir að munda hinn klassíska músastiga sem kemur sterkur inn í ár. Föndurstofan.is - s. 553-1800 - opið virka daga 10-18 - Laugardaga 11-15 Viltu gera jólagjöfi na sjálf - þá er vöruúrvalið hjá okkur Opið til kl 21 á fi mmtudaginn og sunnudaginn frá 13-16 Hnotubrjóturinn er einn frægasti ballett veraldar og er yfir- leitt sýndur í kringum jólin. Sagan er dregin af bókinni Hnotubrjót- urinn og músakóng- urinn eftir E.T.A. Hoff- mann en rússneska tónskáldið Tsjaík- ovskí samdi tónlistina við ballettinn á árunum 1891-1892. www.wikipedia.org

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.