Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 38
BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggva- dóttur 22 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég veit hvað býr í þér, Elsa. Ég hef mikla trú á þér. En þú verður að trúa á sjálfa þig, Elsa. Þú verður sjálf að fara niður í kjallara og ná í kraftana. Ertu tilbúin til að skella níræðri konu í gólfið? Ekkert mál. Ég rústa henni. Jæja, núna er ég búin að hreinsa til í herberginu og raða öllum bókunum þínum upp á nýtt. Það breytir öllu. Ég þurfti endilega að fæðast í dag. Núna fæ ég bara eina sameigin- lega jóla- og afmælisgjöf. Gleðileg jól. Hvað ertu að gera, pabbi? Ráða kross- gátuna? Er það? Ef ég lofa að segja ekki mömmu ertu þá til í að lesa fyrir mig ljótu krossana? - afsláttur af eldhústækjum og þvottavélum fyrir hótel, veitingahús og vinnustaði, ásamt sótthreinsivél fyrir tannlæknastofur TAKMARKAÐ MAGN Dæmi um afslátt: Kæliskápar, frystiskápar, eldunartæki, gufuofn og vínkælar 50% Þvottavélar og þurrkarar 25 – 55% Uppþvottavélar 30 – 75% Sótthreinsivél fyrir tannlæknastofur 50% LAGERSALA Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Eyðibýli í sveitum landsins eru þónokk-ur talsins. Þau er að finna allan hring- inn í kringum landið enda var byggðin mun dreifðari fyrir nokkrum áratugum en hún er í dag. Byggingarnar eru misjafnlega á sig komnar eftir því hve langt er síðan bærinn fór í eyði og hvort einhver umgengni hefur verið um staðinn síðan. Mörg eyðibýlanna eru nýtt sem sumarhús meðan önnur grotna niður. Þessi hús eru gjarnan vinsælt mynd- efni ljósmyndara og nýlega gluggaði ég í bók eftir þá Nökkva Elíasson ljósmyndara og Aðalstein Ásberg Sigurðsson rithöfund. Í bókinni var að finna bæði ljóð og ljósmynd- ir af eyðibýlum hvaðanæva að af landinu, svarthvítar og dramatískar. FLESTAR myndanna voru teknar úti af veðurbörðum húsunum en þær sem voru teknar innandyra gáfu merkilega mynd af lífinu sem einu sinni hafði verið í húsinu. SLITNIR gólfdúkar og lúin stigaþrep sögðu sögu af ferðum fólks um húsið og á kolaelda- vélinni í eldhúskróknum hafði sjálfsagt verið hellt upp á ófáa kaffibollana. Þarna hafði fólk búið og átt sitt líf þangað til eitt- hvað varð til þess að það fór og enginn flutti inn í staðinn. Sums staðar var eins og íbúar hússins hefðu einfaldlega staðið upp og farið og skilið eftir húsmuni sína og dót. Upplitaðar gardínur blöktu enn fyrir brotnum glugg- um og rúmteppin lágu þvæld á dívaninum. Veðráttan hafði síðan með árunum barið málninguna af og brotið rúður. FÓLK horfir misjafnlega til þessara eyði- býla. Einhverjir sjá í þeim rómantík og verða hugfangnir af þeirri sögu sem býr í hverri fjöl. En öðrum finnst sú saga sem þau segja dapurleg og eyðibýlin ömurlegur minnisvarði þess að fólk hafi þurft að gefast upp og yfirgefa heimili sitt. Ósjálfrátt veltir maður auðvitað fyrir sér hvað varð til þess að fólkið fór. Voru það harðir vetur? Veik- indi eða fátækt? SÍÐUSTU misseri hefur þeim húsum sem enginn býr í fjölgað á Íslandi svo um munar. Steinsteypt, grá og gluggalaus standa þau í röðum. En það er þó munur á þessum „eyði- býlum“ sem bæst hafa við því inn í þau flutti aldrei neinn. Þar var aldrei hellt upp á kaffi né hlaupið um stigaþrepin og veðrátt- an barði ekki utan af þeim málninguna. Þau voru einfaldlega aldrei máluð. Þau segja því allt aðra sögu en eyðibýlin í bókinni. KANNSKI er þó enn von til þess að hellt verði upp á kaffi í þessum húsum og að saga þeirra endi ekki, áður en hún hófst. Komið að tómum kofunum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.