Fréttablaðið - 18.11.2009, Síða 38
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
22 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég veit hvað býr
í þér, Elsa. Ég hef
mikla trú á þér.
En þú verður að
trúa á sjálfa þig,
Elsa. Þú verður
sjálf að fara niður
í kjallara og ná í
kraftana.
Ertu tilbúin
til að skella
níræðri konu
í gólfið?
Ekkert mál.
Ég rústa
henni.
Jæja, núna er ég
búin að hreinsa
til í herberginu
og raða öllum
bókunum þínum
upp á nýtt.
Það
breytir
öllu.
Ég þurfti endilega að
fæðast í dag. Núna
fæ ég bara eina
sameigin-
lega jóla- og
afmælisgjöf.
Gleðileg
jól.
Hvað ertu
að gera,
pabbi?
Ráða kross-
gátuna? Er það?
Ef ég lofa að segja
ekki mömmu ertu
þá til í að lesa fyrir
mig ljótu krossana?
- afsláttur
af eldhústækjum
og þvottavélum
fyrir hótel, veitingahús
og vinnustaði, ásamt
sótthreinsivél fyrir
tannlæknastofur
TAKMARKAÐ MAGN
Dæmi um afslátt:
Kæliskápar, frystiskápar, eldunartæki,
gufuofn og vínkælar 50%
Þvottavélar og þurrkarar 25 – 55%
Uppþvottavélar 30 – 75%
Sótthreinsivél fyrir tannlæknastofur 50%
LAGERSALA
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Eyðibýli í sveitum landsins eru þónokk-ur talsins. Þau er að finna allan hring-
inn í kringum landið enda var byggðin mun
dreifðari fyrir nokkrum áratugum en hún
er í dag. Byggingarnar eru misjafnlega á sig
komnar eftir því hve langt er síðan bærinn
fór í eyði og hvort einhver umgengni hefur
verið um staðinn síðan. Mörg eyðibýlanna
eru nýtt sem sumarhús meðan önnur grotna
niður. Þessi hús eru gjarnan vinsælt mynd-
efni ljósmyndara og nýlega gluggaði ég í
bók eftir þá Nökkva Elíasson ljósmyndara
og Aðalstein Ásberg Sigurðsson rithöfund. Í
bókinni var að finna bæði ljóð og ljósmynd-
ir af eyðibýlum hvaðanæva að af landinu,
svarthvítar og dramatískar.
FLESTAR myndanna voru teknar úti af
veðurbörðum húsunum en þær sem voru
teknar innandyra gáfu merkilega mynd af
lífinu sem einu sinni hafði verið í húsinu.
SLITNIR gólfdúkar og lúin
stigaþrep sögðu sögu af ferðum
fólks um húsið og á kolaelda-
vélinni í eldhúskróknum hafði
sjálfsagt verið hellt upp á ófáa
kaffibollana. Þarna hafði fólk
búið og átt sitt líf þangað til eitt-
hvað varð til þess að það fór og
enginn flutti inn í staðinn. Sums
staðar var eins og íbúar hússins
hefðu einfaldlega staðið upp og farið og
skilið eftir húsmuni sína og dót. Upplitaðar
gardínur blöktu enn fyrir brotnum glugg-
um og rúmteppin lágu þvæld á dívaninum.
Veðráttan hafði síðan með árunum barið
málninguna af og brotið rúður.
FÓLK horfir misjafnlega til þessara eyði-
býla. Einhverjir sjá í þeim rómantík og
verða hugfangnir af þeirri sögu sem býr
í hverri fjöl. En öðrum finnst sú saga sem
þau segja dapurleg og eyðibýlin ömurlegur
minnisvarði þess að fólk hafi þurft að gefast
upp og yfirgefa heimili sitt. Ósjálfrátt veltir
maður auðvitað fyrir sér hvað varð til þess
að fólkið fór. Voru það harðir vetur? Veik-
indi eða fátækt?
SÍÐUSTU misseri hefur þeim húsum sem
enginn býr í fjölgað á Íslandi svo um munar.
Steinsteypt, grá og gluggalaus standa þau í
röðum. En það er þó munur á þessum „eyði-
býlum“ sem bæst hafa við því inn í þau
flutti aldrei neinn. Þar var aldrei hellt upp á
kaffi né hlaupið um stigaþrepin og veðrátt-
an barði ekki utan af þeim málninguna. Þau
voru einfaldlega aldrei máluð. Þau segja því
allt aðra sögu en eyðibýlin í bókinni.
KANNSKI er þó enn von til þess að hellt
verði upp á kaffi í þessum húsum og að saga
þeirra endi ekki, áður en hún hófst.
Komið að tómum kofunum