Vikan - 07.06.1951, Síða 3
VIKAN, nr. J2, 1951
3
Uú:i var stofnuð 1. júní 1926
< g a i v'í 25 ára afmæli um þess-
:.r íundir. Stofnendur eru þeir
nar Pálsson, blikksmíðameist-
c.ri, og Haraldur Andrésson,
vélstjóri.
Einar hóf nám í iðn sinni árið
1915 á verkstæði B. J. Péturs-
sonar, sem þeir bræður Bjarni
og Kristinn Péturssynir ráku og
reka enn, en þeir höfðu tekið
Haraldur Andrésson.
við fyrirtækinu af föður sínum,
Pétri Jónssyni, sem stofnsetti
það 1882, og rak undir sínu
nafni til ársins 1907, er synir
hans tóku við af honum.
Haraldur var vélstjóri að
menntun og var um nokkur ár
vélstjóri á togurum. Honum
leiddist sjóvolkið, er frá leið, fór
í land og gerðist um tíma verk-
stjóri í vélsmiðjunni Hamri.
Hann var gæddur athafnaþrá í
ríkum mæli og kunni illa við að
vera undir aðra gefinn. Þeir
félagar, Einar og Haraldur, réð-
ust því í að stofna Nýju Blikk-
smiðjuna, svo sem fyrr segir.
Fyrirtækið var fyrstu árin
Nýja blikksmiðjan í Reykjavík
25 ÁRA
(Sjá mynd á bls. 2).
í leiguhúsnæði við Norðurstíg,
en eftir þriggja ára rekstur
hafði því vaxið svo fiskur um
hrygg, að það reisti hús yfir
starfsemina litlu neðar við göt-
una og var í þeim húsakynnum
til 1942, en þá voru þau ekki
lengur fullnægjandi. Var þá
reist fullkomið og vandað verk-
smiðjuhús að Höfðatúni 6.
styrjaldarárunum unnu þar að
jafnaði um 40 manns, en eftir
styrjöldina hefur komið aftur-
kippur í iðnaðinn í bili, svo sem
kunnugt er, og eru starfsmenn
nú 20 að tölu.
Fyrsti nemandi þeirra blikk-
smíðameistaranna er Jón Rögn-
valdsson og hefur hann starfað
hjá fyrirtækinu allt fram á
Premri röð frá vinstri: Andrés Haraldsson, Ásg-eir Matthíasson, verkstj.,
Einar Pálsson, framkvstj., Jón Rögnvaldsson, Jónas H. Einarsson. — Aftari
röð, frá vinstri: Helgi Vigfússon, Þórarinn Jóhannsson, Finnbogi JúlíusSon,
Andrés Wendel* Ólafur Jóhannesson, Helgi Pálmason, Kristinn Rögnvalds-
son, Magnús Magnússon, Magnús Thorvaldsson, Halldór Sigmundsson,
Sigurbjörn Jakobsson. (Sig. Guðm. tók myndina).
Nýja Blikksmiðjan fór eklu
geyst af stað, en undir hand-
leiðslu þeirra Einars og Haralds
vann fyrirtækið sér brátt traust
fyrir áreiðanleik í viðskiptum,
svo það óx og dafnaði jafnt og
þétt, unz það var orðið stórt
fyrirtæki á íslenzkan mæli-
kvarða. Fjölda manns hefur
það haft í þjónustu sinni. Á
þennan dag. Er hann traustur
og trúr starfsmaður og mikils-
metinn af húsbændum sínum.
Haraldur andaðist 25. júlí
1949 og var hánn harmdauði
öllum, sem kynni höfðu haft af
honum, því að maðurinn var
vinsæll með afbrigðum. Þeir
félagar, Einar og Haraldur,
höfðu verið samhentir í starf-
inu og samvinnan ávallt, eins
og bezt verður ákosið. Rekur
Einar nú fyrirtækið með erf-
ingjum hans.
Verkefnin hafa verið allfjöl-
breytt. Þar er allt smíðað, bæði
lítið og stórt, sem að iðnaði lýt-
ur, litlar dósir undir neftóbak
í tugþúsundatali, benzíngeymar
á bíla og allskonar olíugeymar.
Mikið hefur verið unnið fyrir
Einar Pálsson.
sjávarútveginn. Smíðuð eru þar
frystitæki í hraðfrystihús, eir-
klæðningar á húsþök, þakrenn-
ur, þakgluggar,- hitaleiðslur,
rafmagnsþvottapottar, eða í
stuttu máli, allt er smíðað, sem
þessari atvinnugrein tilheyrir.
Islenzkur iðnaður er ungur,
en hann hefur á stuttum tíma
tekið stórstígum framförum. Á
hann það að þakka framtaks-
sömum mönnum í stéttinni, sem
með framsýni og dugnaði hafa
látið nytsöm fyrirtæki blómg-
ast.
(Myndirnar tók Sigurður Guð-
•mundsson ljósmyndari).
Jón Rögnvaldsson, fyrsti nemandinn í Nýju blikksmiðjunni.
Vr vinnustofu Nýju blikksmiðjunnar.