Vikan - 07.06.1951, Page 13
VIKAN, nr. 22, 1951
13
PÓSTURINN
Framhald. af bls. 2.
2. Önnur okkar er með frekar
dökkt hár, grá augu og ljósa húð.
Hin er með ljóst hár, grængul augu
og ljósa húð. Hvaða litir klæða okk-
ur bezt?
3. Önnur er 14 ára og 164 cm., hin
er 16 ára og 158 cm. Hvað eigum við
að vera þungar ?
Dísa og Gunna.
P.s. Við treystum því áð bréfið
lendi ekki í ruslakörfunni.
4. Ég sendi þér lokk. Viltu segja
mér hvernig hann er á litinn?
Svar: 1. Hármaðkurinn er algeng-
astur hjá kvenfólki, sem klippir hár-
ið sjaldan, og er orsök þessa kvilla
talin að í hárið hafa veriö borin
efni, sem séu því óholl (hármaðkur
kemur oft eftir að permanent hefur
verið sett í hárið), oft getur þetta
einnig verið því að kenna, að hárið
sé þvegið of oft eða vond sápa sé
notuð við hárþvottinn. Þessi kvilli
batnar að jafnaði eftir lengri eða
skemmri tíma án þess að nokkuð ann-
að sé að gert en að klippa hárið öðru
hvoru.
2. Sú dökkhærða ætti að klæðast
rauðum, heitum litum, vínrauðu,
fjólurauðu, gráu, mosagrænu eða
hvítu. — Sú ljóshærða á að klæðast
bláu — (allir bláir litir fara henni
vel) grágrænt, gráblátt, vínrautt,
svart og hvítt munu einnig fara henni
vel.
3. Sú, sem er 167 cm. á hæð á að
vera ca. 60 kg. að þyngd, en hin,
þessi 16 ára og 158 cm. á hæð á að
vera ca. 56% kg.
4. Hárið er sandgrátt (sandy), og
ekki veitti því af duglegum þvotti!
Kæra ,,Vika“.
Ég hef tekið eftir því að þú gefur
öllum greið svör, sem leita til þín,
og nú langar mig til að spyrja þig
nokkurra spurninga:
1. Hvað þarf mikla menntun til að
verða flugfreyja ?
2. Hvað er menntadeildin á Laug-
arvatni margir bekkir?
3. Hvað kostar dvölin í Laugar-
vatnsskóla yfir veturinn ?
4. Hvaða tungumál eru kennd þar?
5. Ég er 15 ára og 167 cm. á hæð.
Hvað á ég að vera þung?
6. Ég er brúneygð, ljós yfirlitum,
með blágrá augu. Hvaða litir fara
mér bezt?
Að síðustu: Hvernig er skriftin og
réttritunin ?
Með fyrirfram þökk fyrir svörin.
Kolla.
Svar: 1. Af flugfreyjum er kraf-
ist að þær hafi gagnfræðapróf og
kunni sæmilega minnst eitt Norður-
landamálanna.
2. Undanfarin ár hefur verið
kennt þar eins og samsvarar 4. og 5.
bekk menntaskóla, en þetta hefur
verið gert með sérstöku leyfi.
3. 500 kr. kostaði námið yfir vet-
urinn í fyrravetur (’49—’50).
1. mynd: Þá mælti Abram. við
Lot: Heyrðu, engin misklíð sé milli
mín og þín og milli minna og þinna
fjárhirða, því að við erum bræður.
. . . Og Lot ltaus sér Jórdan-slétt-
lendið, og Lot flutti sig austur á við,
og þannig skildu þeir.
2. mynd: Þeir tóku og Lot, bróður-
son Abrams, og fjárhluti hans og
fóru burt . . . En Abram frétti,
að bróðir hans var hertekinn, bjó
hann í skyndi þrjú hundruð og
átján reynda menn sina . . . Sneri
hann því næst heimleiðis með alla
fjárhlutina, og bróðurson sir.n
Lot . . .
3. mynd: Þá kallaði Faraó Abram
til sín og mælti: Hví hefur þú
gjört mér þetta? hví sagðir þú mér
ekki, að hún væri kona þín? Hvi
sagðir þú: „Hún er systir min,“ svo
að ég tók hana mér fyrir konu? En
þarna er nú konan þín, tak þú hana
og far burt.
4. mynd: Og Saraí kona Abrams
ól honum ekki börn; en hún hafði
egipzka ambátt, sem hét Hagar . . .
Og hann gekk inn til Hagar, og hún
varð þunguð ... Þá þjáði Sarai
hana, svo að hún flýði í burt frá
henni. Þá fann engill Drottins hana
hjá vatnslind i eyðimörkinni . . .
4. Enska, danska, þýzka, franska
og latína.
5. 62 kg.
6. Dökka, skæra, rauðfjólubláa liti,
rautt og rauðgult. Eins dökkbláa og
græna liti. Drapp mun fara þér vei.
Ráðagóða Vika!
Nú gríp ég tækifærið, því nú á ég
krónu. Ég veit að þú gefur góð ráð
því ég hef áður skrifað þér og fengið
ágætis svöi'. Og ég sendi þér mínar
beztu þakkir og X fyrir svörin og
allt skemmtilegt sem þú hefur birt.
Ég vona svo, Vika mín, að krónan
komi að gagni og ég fái svör við eft-
irfarandi spurningum:
1. Ertu nokkuð ergileg þó vitlaust
sé spurt og illa sé skrifað, segðu mér
það, því ekki vil ég verða til þess að
ergja þig, Vika min.
2. Ég er dálítið hrifin af ungum
og myndarlegum strák, sem hefur
þann stóra galla, að drekka of mik-
ið (enda er hann á togara). Ég hef
aldrei látið hann vita, hvað illa mér
er við drykkjuskap. Ég hef heldur
ekkert reynt að halda honum frá því.
Ég hef nú samt vanið strák af því
að drekka, og ég veit, að hann gerði
það bara vegna þess að hann elskaði
mig, en nú er svo komið að ég elska
togarastrákinn. En hvernig hug hann
ber til min, veit ég ekki, held þó, að
honum þyki meira i mig varið en
aðrar stelpur. Viltu segja mér hvern-
ig ég á að venja hann af þessu?
3. Hvernig er svo með leiðinlegu
spurninguna, nefnilega skriftina. Er
hún eins slæm og ég held?
Bless. Hafdís.
Svar: 1. Vitanlega þykir okkur
þægilegra og skemmtilegra, að bréf-
in, sem við fáum, séu vel læsileg!
2. Við kunnum ekki einhlítt ráð
til að venja menn af drykkjuskap,
hinsvegar finnst okkur rétt, að þú
látir piltinn vita álit þitt í þessu efni;
ekki er betra að geyma það þangað
til lengra er farið. En með takt verð-
ur að koma fram i þessu máli eins
og öðrum, ef góður árangur á að
Munið samnorrænu sundkeppnina,
sem fer fram um land allt til 10. júlí
í sumar. Byrjið að æfa ykkur strax
svo að þið getið synt 200 metra
bringusundið og stuðlað með því að
sigri Islands í þessari heilbrigðu
keppni.
nást. Heilbrigðar skemmtanir og
gott viðmót, þegar sjómaðurinn er
i landi, gæti hjálpað mjög.
3. Skriftin getur ekki talizt falleg,
en það er auðvelt að lesa hana.
Kæra Vika!
Ég vona að þú viljir gefa mér svör
við fyrstu spurningunum sem ég spyr
þig um. Þær eru þessar: 1. Hversu
mikla menntun þarf til þess að kom-
ast á blaðamannaskóla ?
2. Er nokkur blaðamannaskóli
hérna á landi, eða eru nokkurn tíma
haldin hér blaöamannanámskeið ?
3. Og að lokum sigilda spurningin,
hvernig er skriftin ?
Með fyrirfram þökk fyrir væntan-
leg svör.
B. Jensdóttir.
Svar: 1. Við höfum ekki nákvæm-
ar upplýsingar um þetta, en t. d. til
að komast inn í flesta slíka skóla
í Ameríku mun nægja fjögurra
bekkja framhaldsskólanám hér. Þó er
okkur sagt, að til þess að komast inn
í frægasta blaðamannaskóla þar
vestra, Columbia í New York, þurfi
B. A.-háskólapróf. — 2. Nei. — 3.
Skriftin er prýðileg.
Svar við mannlýsingar-
spurningunni á bls. 4:
Það er Hreiðar Þorgrímsson
í Hreiðars þætti heimska'.
Gullkornið
Maríurnar þrjdr á páskadatjsrnorgun.
Hvi leitið þér hins lifanda meðal hinna dauðu? Hann er ekki hér, en
hann er upprisinn. (Lúkasarguðspjall 24:56).