Vikan


Vikan - 06.12.1951, Blaðsíða 4

Vikan - 06.12.1951, Blaðsíða 4
4 VIKAN, nr. 47, 1951 Sannkallaður þurradrumbur SMÁSAGA EFTIR E. DAVIS. AÐ var alveg' sjálfsagt, þegar Ruth kom frá litla þorpinu til borgarinnar, að Lilian ,stóra systir, hin eldfjöruga, eft- irsótta Lilian tæki hana undir verndar- væng sinn. Lilian útvegaði henni atvinnu, Lilian sýndi henni borgina og hún kynnti hana fyrir vinum sínum. Og það fór svo, að heil vika leið, áður en Ruth lagði leið sína inn í Túngötuna og hringdi dyra- bjöllunni í húsinu númer 37. „Þrjár hringingar“, stóð skrifað í horninu á merkisspjaldi með nafninu Julius Clausen, stud. polyt. Það var fest við dyrastafinn með f jórum teiknibólum. Júlíus vildi alltaf vera dálítið formfastur. ,,Og borgarlífið hefur ekki breytt hon- um,“ hugsaði hún, þegar Júlíus stóð fyrir framan hana í dyrunum, hávaxinn og ljós- hærður — og traustur. Það var indælt að hitta hann. Það var eins og að drekka glas af köldu, tæru lindarvatni á eftir sætum, væmnum drykk. Þegar Ruth gekk inn í hið snyrtilega her- bergi Júlíusar, fannst henni hún aftur hafa fast land undir fótum eftir allan gauragang síðustu daga. „Hvað hefur þú verið lengi hérna? Ertu nýkomin?“ spurði Júlíus eftir að hafa beð- ið stúlkuna í matsölunni um kaffi og vín- arbrauð. Ruth svaraði honum. „Hvað er þetta?“ sagði Júlíus. „Hefur þú verið hér í viku?“ „Já. Ég bý hjá Lilian. Á morgun flyt ég í matsöluhús," flýtti Ruth sér að segja, og hún varð skyndilega öskuvond við sjálfa sig, af því að hún sat hér, og var næstum að afsaka, að hún byggi hjá eldri systur sinni. Hvað var eðlilegra. En Júlíus hafði alltaf . . . „Já, þá get ég skilið, að þú hafir ekki haft tíma.“ Úha, þarna var hann lifandi kominn! Dálítið móðgaður og álasandi á svip. Jú, Júlíus líktist sjálfum sér. Það var aðeins einkennilegt, að ósjálfrátt gleymdist henni, hvernig hann raunverulega var, þegar langur tími leið á milli þess, sem hún sá hann. Ruth hafði orðið fyrir vonbrigðum, hún dreypti á kaffinu, og með sjálfri sér skammaði hún sig fyrir að vera svona mik- ið flón. Hversvegna hætti hún ekki að umgangast Júlíus? Hún gerði sér það nú ljóst, að innst í hugskoti sínu hafði hún vonað, að Júlíus hefði breytzt. En hann var og varð sannkallaður þurradrumbur. Hann hafði nú lokið prófi og var cand polyt. Nú blasti við honum glæsileg fram- tíð, en það gat ekki gert hann víðsýnni. Hann var og mundi alltaf vera þessi sami smámunasami og þröngsýni Júlíus. Og þó, í hvert skipti, sem hún hafði ekki séð hann nokkurn tíma, mundi hún aðeins eftir honum sem hinum góða, trygga vini, sem hún hafði kysst nokkr- um sinnum, og sem við hvert tækifæri drap á það, að nú hlyti hún að hafa hugs- að sig nógu lengi um. En jafnframt því, að hún fann, að Júlíus laðaði hana að sér, fannst henni einhver innri rödd aðvara sig, og nú heyrði hún hana greinilegar en nokkurn tíma áður. „Hvað hefur þú út á Lilian að setja?“ spurði hún. „Þú ert alltaf að gagnrýna hana, af því að hún lifir ekki lífinu eins og hún gangi beina braut.“ „Ég er ekki að gagnrýna Lilian,“ full- yrti hann, „en ég skil ekki, hvernig hún nennir að vera sí og æ á ferli með þessari andstyggilegu klíku sinni. Og þvaðrið í henni! Ef hún gæti haldið sér saman og ekki staglast í tíma og ótíma á einkamál- um sínum . . . og annarra.“ „Já, en svona er hún nú einu sinni. Hún þarf að tala, það verður að taka hana eins og hún er og sætta sig við hana,“ sagði Ruth þvermóðskulega. „Mér finnst hún framúrskarandi indæl.“ „Já, þó það nú væri,“ sagði hann und- anlátssamur. Síðan hélt hann áfram í öðrum tón: „En hversvegna eyðum við tímanum í að tala um hana? Ruth —“ „Nei, Júlíus, ekki núna.“ Hún andvarp- aði, þegar hún var loksins komin til borg- arinnar, vildi hún gjarna fá að líta að- eins í kringum sig, áður en hún væri bund- in bæði á höndum og fótum. Þetta hafði Lilian sagt við hana, en hún ætlaði nú ekki aldeilis að segja Júlíusi það, þó að hún væri alveg sammála Lilian. Hann brosti til hennar fullur trausts og hlýlegur á svip. „Nú, jæja, jæja,“ sagði hann, „en þú veizt, að ég bíð eftir þér.“ „Góði Júlíus,“ sagði hún, „þú ert alveg ómögulegur. Þannig átt þú ekki að tala. Þú ættir heldur að halda mér í óvissu. Konan má ekki vera of örugg.“ Þrem dögum síðar hitti Ruth Stener Rau, og hjá honum fékk hún alla þá óvissu, sem nokkur kona gæti óskað sér. Lilian aðvaraði hana. „Stener er aðlað- andi, Ruth, en þú getur ekki fest hendur á honum.“ En Ruth hafði gaman af að fara út með honum, og kvöld nokkurt sagði hann henni, að hann elskaði hana, en hann sagði það næstum skeytingarlaust, eins og það skipti ekki svo miklu máli. Næsta morgun — það var sunnudagur — sat hún heima í matsöluhúsinu og beið þess, að hann hringdi. Þegar hann hafði kysst hana að skilnaði kvöldið áður, hafði I VEIZTU -7 I : 1. Himinhvolfið sjálft er litlaust! Hvers- jj vegna getum við séð alla þessa yndis- = legu liti í himinhvolfinu ? : | 2; Eftir hvern er óperan „Járnsmiðurinn : I ' Vakuia“ ? I i 3. Pósléttan liggur milli tveggja fjall- i garða. Hverjir eru þeir? 1 4. Hverrar þjóðar er kvikmyndaleikkon- : | an Greer Garson ? i 5. Hvar og hvenær var lýst yfir sjálf- | stæði Bandaríkja Norður-Ameríku ? | = 6. Hve langt. er Mississippi-fljótið í i i Bandaríkjunum ? § i 7. Hver er frummerkingin í orðinu panz- = i ari ? i : 8. Til hvaða dýrategundar telst flæðar- : músin ? ‘ | i 9. Hvenær var Sorbonne-háskólinn í Paris i stofnaður, og hver átti mestan þátt í = stofnun hans? i : 10. Eftir hvern er kvæðið „Þó að margt : hafi breytzt —“ ? = Sjá svör á bls. 14. = <viiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii,iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|||ii'5> Mamilýsing úr íslenzku fornriti: „......var spekingur mikill og ráða- gerðamaður. Ekki var honum fjárhagur sinn hægur, átti lendur miklar, en minna lausafé. Hann sparði við engan mann mat . . . .“. Hver var þessi maður og hvar er lýs- ingin ? (Sjá svar á bls. 14). hann sagt: „Við getum talað betur sam- an á morgun.“ Hann hafði ekki beinlínis spurt hana, hvort hún vildi giftast hon- um. En þau höfðu talað um þetta. Og Ruth hafði sagt, sjálfri sér til mikillar undrunar, að hún vildi, að maðurinn sinn yrði heimakær eða minnsta kosti þannig, að hún gæti treyst á hann. I dag sá hún eftir að hafa sagt þetta, á meðan hún beið þess, að hann hringdi, en hún beið árangurslaust. Að síðustu sagði hún við sjálfa sig, að hún mætti vera fegin, að Stener hringdi ekki. 1 gærkvöldi hafði hann verið allur á hjólum, í dag var hann sennilega úti með einhverri annarri. Það var hæpið að treysta honum, og hún hafði sannarlega verið heimsk . . . Loksins hringdi síminn. „Halló . . . ert það þú, Júlíus . . . Nei, ég er ekki upptekin. Hvort ég get komið út að borða með þér. — Já, það vil ég mjög gjarna. Klukkan sjö — já, kærar þakkir. Nú, jæja, þú kemur þá og sækir mig? Allt í lagi.“ Júlíus var tryggur og traustur. Þegar hann sagði, að hann kæmi kl. 7, þá kom hann kl. 7. Og ef Stener hringdi nú, þá skyldi hann fá að vita . . . En Stener hringdi ekki, og Ruth var mjög svo vingjarnleg við Júlíus þetta kvöld. Hann var svo áberandi ólíkur Sten- er. Hún horfði ástúðlega á hann. Bara að Stener hefði ekki verið til . . . því að það var nú einu sinni svona, að það var ekki hægt að gifta sig, ef hugurinn beind- ist að öðrum manni meir en að tilvonandi eiginmanni. „Mér finnst ekki eins vænt um neinn og þig,“ sagði hún við Júlíus, „en . . .“ Hann yppti öxlum. „Þú hefur tímann fyrir þér,“ sagði hann. „Ég vil heldur, að þú sért alveg viss.“ Á þriðjudag hringdi Stener, og á þess- um tíma hafði Ruth hugsað sig vel um. „Ó, ert það þú,“ sagði hún. „Ég hélt, að þú mundir hafa farið til Ameríku?" „Ameríku? Nei, bara til Svendborg.“ „Hvað varst þú að gera í Svendborg?" Rödd hennar var kæruleysisleg. „Ég var þar til að líta á seglbát, sem vinur minn ætlaði að kaupa. Ef til vill fer ég með honum „á flakk“ í bátnum.“ Jæja, svo það var þá ekki kvenmaður í þetta skipti. „Það verður áreiðanlega gaman,“ sagði hún. „Góða skemmtun.“ „Heyrðu,“ sagði hann. „Viltu koma út með mér í kvöld?“ „Finnst þér ekki full seint að fara að tala betur um þetta?“ „Tala betur um hvað? Hvað áttu við? Um hvað eigum við að tala betur?“ „Ekkert,“ sagði hún kuldalega. „Senni- lega er ég ein af þremur eða fjórum vin- konum þínum. Ég, það er þessi ljóshærða með hárið skipt vinstra megin. En annars get ég ekki komið út í kvöld,“ skrökvaði hún. „Ég er upptekin.“ „Nei, þá verður þú að aflýsa stefnumót- inu! — Hvað, viltu það ekki ? Hversvegna Framhald á bls. 7.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.