Vikan


Vikan - 06.12.1951, Blaðsíða 11

Vikan - 06.12.1951, Blaðsíða 11
VIKAN, nr. 47, 1951 11 | Framhaldssaga: | g Eftir ARNOLD BENNETT I I SabíleHAkétettá j ©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©Sí©*;*^^*©* aftur nokkurn tíma, en klukkan eitt var ekkert eftir. Rakksoll hafði fengið niutíu þúsundir af þeim hundrað og sextíu þúsundum, sem hún átti fyrr um kvöldið, en afgangurinn hafði runnið til bankans. Þetta var mikið skipbrot fyrir kon- una með rauða hattinn. Hún spratt upp af stóln- um og gekk hratt og stoltlega út. Rakksoll og Áki fóru þegar í stað á eftir henni. ,,Við þurfum endilega að fylgjast með ferðum hennar," sagði Rakksoll. Úti fyrir skinu bogaljósin skœrt. Brimið gnúði ströndina eins og ætíð. Konan með rauða hatt- inn náði sér í vagn og ók burt í skyndi. Rakksoll og prinsinn fengu sér opinn vagn og héidu í hum- átt á eftir henni. Ekki höfðu þeir ekið meira en eina mílu, þegar prinsinn bað ekilinn að nema staðar, sagði Rakksoll að stiga niður úr vagn- inum, borgaði eklinum og lét hann fara. „Eg veit, hvert hún ætlar," sagði hann, „og það verður betra fyrir okkur að koma fótgang- a.ndi.“ „Haldið þér hún ætli að fara þangað, sem þið voruð í gærkvöldi ?“ „Já. Og nú skulum við drepa tvær flugur í einu höggi." Tilgáta Ariberts prins reyndist rétt. Vagn kon- unnar nam staðar fyrir framan húsið, þar sem Nella og Spensa ræddust við kvöldið áður, og konan hvarf inn í húsið i sömu svifum og menn- irnir tveir gengu fyrir horn og inn á götuna. 1 stað þess að fara eftir götunni sjálfri, dró prins- inn Rakksoll með sér inn á stíg, sem lá að baki húsanna, og hann taldi húsin, um leið og þeir gengu eftir stígnum. Eftir fáeinar mínútur urðu þeir að klungrast yfir vegg, og síðan læddust þeir, af ýtrustu varkárni, eftir grasi vaxinni sléttu, síðan eftir steinlögðum húsagarði og hnipruðu sig loks saman undir glugga — glugg- inn var á hálfa gátt, en tjöld voru fyrir honum að innanverðu. „Hlustið þér,“ sagði prinsinh, svo að rétt heyrðist, „þær eru að tala.“ „Hverjar ?“ „Berlínska konan og ungfrú Spensa. Ég er viss um, að þetta er ungfrú Spensa.“ Rakksoll opnaði gluggann lítið eitt og lagði síðar eyrað að rifunni, en út um hana streymdi gulur ljósgeisli. „Komið þér hérna,“ hvíslaði hann að prins- inum, „þær tala þýzku. Þér skiljið það betur en ég.“ Þeir skiptu um stöðu við gluggann, og prins- inn lagði að eyrun og hlustaði spenntur. „Ætlið þér að neita mér um það?“ sagði gest- ur Spensu. Spensa svaraði engu. „Ekki einu sinni þúsund franka? Ég er búin að tapa tuttugu og fimm þúsundunum." Aftur ekkert svar. „Þetta finnst mér aumt af yður," hélt konan áfram og var nú orðin reið. „Ég gerði það, sem ég lofaði. Ég tældi hann hingað, og nú morknar hann örugglega geymdur í kjallaranum hjá yður, veslingurinn, og svo viljiið þér ekki einu sinni láta mig hafa skitna þúsund franka." „Þér hafið þegar fengið það, sem yður bar." Orðin komu frá Spensu. Þau féllu nistíngsköld á hljóðan vanga næturinnar. „Ég vil fá þúsund í viðbót." „Ég á enga peninga." „Við skulum nú sjá til.“ Aribert prins heyrði lágan þyt, síðan var dyr- um skellt, og ljósgeislinn. út um glufur.a hvarf snögglega. Hann opnaði gluggann upp á gátt". Herbergið var myrkt og auðheyrilega enginn inni. „Nú ættuð þér að kveikja á luktinni," sagði hann við Rakksoll, þegar hann hafði sagt hon- um samtalið milli kvennanna. Rakksoll dró luktina upp úr vasa sínum og kveikti á henni. Hún var þannig útbúin, að ljósið dróst saman í einn sterkan geisla, sem féll fram úr henni. „Hvað er þetta?" veinaði Aribert óttasleginn og benti til jarðar. Luktin varpaði geislum á af- iangan rimlaglugga rétt við fætur þeirra, þar sáu þeir inn í lítitnn kjallaraklefa. Þeir krupu báðir niður og rýndu inn klefann. Á sliguðum stóli sat ungur maður slyttislega með lokuð augu, höfuð hans hékk fram á bringu. 1 daufum geisla luktarinnar sýndist hann einna líkastur aftur- göngu. „Hver getur þetta verið?" sagði Rakksoll. „Það er Áki," svaraði prinsinn dauflega. XVII. KAFLI. Áki heimtur úr helju. „Áki,“ kallaði Aribert prins lágt. Ungi maður- inn í kjallaranum hóf veiklulega upp höfuðið og starði upp í gluggann. Enginn svipbrigði sáust á andliti hans. Hann horfði til þeirra sljólega, skilningslaust og aulalega fáeinar sekúndur, augnalokin bærðust ákaft í skininu frá luktinni, svo féll höfuðið sinnulaust niður á bringuna á ný. Hann var í dökkum ferðafötum úr tvíti, og Rakksoll sá, að önnur ermin — sú vinstri — var rifin af upp við olboga og að vinstri öxlin var öll ötuð óhreinindum. Um háls honum var snjáð- ur ílibbi. illa festur og krumpaður; brún stíg- vélin voru óreimuð; húfa, vasaklútur, hluti af úrkeðju og fáeinir gullpeningar lágu dreift á gólfinu. Rakksoll beindi luktargeislanum inn í horn klefans, en harrn sá þarna ekkert húsgagn nema stólinn, sem hans hátign Áki prins af Pósen sat á og hrufótt smáborð, sem á voru diskur og bolli. „Áki,“ kallaði Aribert prins á nýjan leik, en í þetta skipti virtist hinn úttaugaði frændi hans ekki heyra það, og þá sagði Aribert í lágum hljóðum við Rakksoll: „Ef til vill sér hann okkur ekki vel.“ „En hann hlýtur að kannast við röddina í yður," sagði Rakksoll. Honum var þungt i huga. Það varð þögn, og mennirnir tveir litu þung- búnir hvor á annan. Báðir þeirra vissu, að þeir urðu að komast niöur í kjallarann til að frelsa Áka, en báðir voru ragir við að hefjast handa. „Guði sé lof, að hann er ekki dáinn!" sagði Aribert. „Ef til vill er hann verr en dáinn!" svaraði Rakksoll. „Verr en dáinn — Við hvað eigið þér?“ „Ef til vill er hann vitskertur." „Komið þér,“ hrópaði Aribert allhátt, eins og eitthvað hefði hrokkið til inni í honum, svo að nú væri ekki um annað gera en láta skríða til skarar. Hann þreif luktina af Rakksoll og hent- ist inn í myrkt herbergið, þar sem þeir nokkru áður höfðu heyrt á samtalið milli Spensu og kon- unnar með rauða hattinn. Um stund gat Rakksoll ekki hreyft sig. Þá hrópaði Aribert aftur: „Kom- ið þér. Við hvað eruð þér hræddur?" Og það var valdsmannslegur hreimur á rödd hans. „Ég veit það ekki,“ svaraði Rakksoll og stóð aumur og stúrinn við gluggann, „ég veit það svei mér ekki." Því næst tildraðist hann inn um gluggann. Á arinhillunni voru nokkur kerti, sem slökkt hafði verið á, og Rakksoll kveikti á þeim, ósjálfrátt, úti á þekju. Síðan lituðust þeir um. Þarna var ekkert sérstakt að sjá: her- bergið var ósköp venjulegt, frekar lítið, sóðalegt og heldur óaðlaðandi, veggfóðrið ljótt, ljótar myndir í Ijótum römmum. Karlmannsjakki lá þar yfir um stólbak. Dyrnar voru læstar. Avi- bert tók um húninn, en gat ekki opnað þær. „Þær eru læstar," sagði hann. „Augsýnilega vita þær, að við erum hérna." „Þvaður," sagði Rakksoll önuglega, „hverrng má það vera?“ Síðan greip hann um húninn og reyndi hurðina, og þá opnaðist hún. „Ég sagði yður þær væru ekki læstar," og það stældi í honum kjarkinn, hve fljótt honum tókst að opna dyrnar. Samstundis voru þeir komnir fram á ganginn, sem lá að aðaldyrum hússins. Utidyrn- ar stóðu opnar. Þeir litu út á götuna, upp hana og niður hana, en þar var engin sála á fj^rð. Gatan var myrk og óhrjáleg, og einungis lýst hf þrem gaslömpum. „Hún hefur áreiðanlega farið," sagði Rakksoll og hafði í huga konuna með rauða hattinn. „Og ungfrú Spensa á eftir henni ?“ sagði prins- inn. „Nei. Hún er hér kyrr. Hún þorir ekki að f$ra. Við skulum finna stigann niður í kjallarann." Sem betur fór veittist þeim auðvelt að fiBna stigann niður i kjallarann, því að prinsinum varð stigið nokkur skref aftur á bak og hafði þá næstum dottið niður stigann. Þeir lýstu niður með luktinni; stiginn lá í sviga. Rakksoll greip luktina af prinsinum og hélt niður á undan, en Aribert á hæla honum. Við rætur stigans var litíll gangur, og þar stóð kona í hnipri upp við vegginn. Augu hennar endurvörpuðu geislunum frá luktinni, glóðu eins og kattaraugu í niða- myrkri. Þegar þeir komu nær, sáu þeir, að þaði var Spensa, sem stóð þarna fyrir þeim. Hún sat næstum á hækjum sér, og í annarri hendi hélt hún á einhverju, sem líktist rýtingi við fyrstu sýn, en reyndist síðar ekki vera anna5 en óvenjulega langur brauðhnífur. „Ég heyrði til ykkar, ég heyrði til ykkar," hvæsti hún. „Snúið þið aftur, þið megið ekki koma hingað niður." Augun stóðu í höfði hennar . örvilnuð og grimmdarleg og líkami hennar nötraði af nið- urbældri æsingu. „Heyrið þér mig, Spensa," sagði Rakksoll stillilega. „Við skulum nú hætta öllum heimsku- látum. Verið þér nú stillt og hypjið yður upp, a.nnars verðum við að beita yður valdi." Hann gekk hægum skrefum til hennar og hélt á luktinni í hendi sér. Án þess að segja orð hjó hún hnífnum í handlegg hans. Luktia féll á gólfið og drapst á henni. Rakksoll æpti upp yfir sig, öllu frekar af gramri undrun en sársauka og hörfaði fáein skref aftur á bak. 1 myrkrinu sáu þeir ennþá glóðina í augum hennar. „Ég sagði ykkur þið mættuð ekki koma hér niður," sagði konan. „Svona, upp með ykkur." Rakksoll hló glaðlega. Það var skrýtinn hlát ur, en hlæja varð hann, því að hann gat ekki annað. Honum þótti fyndið að hugsa til þess. að konan þarna, fyrrverandi skrifstofustúlka,. skyldi reyna að hepta för þeirra Ariberts prins- með eldhúsbreddu. Hann kveikti á eldspýtu, síð- an á kertinu og gekk aftur til Spensa. „ÍÉg geri það aftur," sagði hún ógnandi. „Ó, nei, það segið þér ekki satt, væna mín,“

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.