Vikan - 10.01.1952, Qupperneq 8
8
VIKAN, nr. 2, 1952
Gissur fer á skemmtigöngu með eiginkonunni!
Rasmína: Þú heyrðir líklega, hvað ég var að
segja, þú ætlar að koma á skemmtigöngu með mér
á aðalgötum borgarinnar. Það er líklegt, að við
rekumst á eitthvað af heldra fólkinu, sem ég þekki.
Gissur: En, Rasmína, mér er svo illt i fótunum!
Rasmína: Gættu þess að taka ofan, kjáninn þinn,
þegar ég heilsa kunningjum mínum.
Gissur: Ég skal gera allt, sem þú segir mér, til
þess að -komast hjá áflogum á götunni.
Götusóparinn: Halló, Gissur, langt síðan við höf-
um sézt.
Rasmína: Hvernig vogarðu þér að tala við mann-
inn minn?
Gissur: Ætti ég að taka ofan?
Rasmína: Ef þú skiptir þér af þessum almúga-
körlum, þá lem ég þig!
Gissur: !
Vinnumaður í göturæsinu: Herskipið flýtur
þarna við hlið þér, sé ég.
1. verkamaður: Nei, lasm. nefið á henni vissi
beint upp í loftið! Það kemur sér betur, að það
er ekki rigning!
2. verkamaður: tTh, að hugsa sér að þetta skuli
einu sinni hafa verið vinur minn!
3. verkamaður: Þú skalt ekki vera að álasa hon-
um. Sérðu ekki að varðskipið er með honum ?
Rasmína: Þú dirfist ekki að lita í áttina til
þeirra!
Smiður: Halló, Gissur, þú manst eftir múrara-
ballinu á föstudaginn!
Rasmína: Eitt orð af þinum munni og ég slæ þig
1 rot. Hvar kynnistu öllu þessu pakki?
Gissur: Ég kynntist þessum í gegnum bróður
þinn!
Gissur: Ég segi ekki orð!
Rasmína: Það er eins gott, þú ert
víst búinn að gera mér nógu mikið til
skammar!
Málari: Sæll, Gissur, ég sé, að þú
ert með þeirri stuttu!
Gissur: En, ég get ekki að því gert,
þó að ég þekki þetta fólk, Rasmína.
Rasmína: Þvílíkt fólk! Komdu út í
einhverja hliðargötu, það er eins gott
að forðast þessa ruddalegu vini þína!
tTr þvottahússglugganum: Halló, Rasmína, saknarðu þess að vera hætt að
vinna í þvottahúsinu ?
Bella, fornvinkona Rasmínu: Mér þykir vera snúður á kellu!
Gvendólína: Og líttu á allar fjaðrirnar!
Þvottakona í þvottahússglugganum: Komdu inn, Rasmína, hér er allt
óbreytt frá því þú vannst hér! Hvernig líður höndunum eftir að þú hættir
að sulla i þvottabala?
Stína straukona: Manstu eftir yndislegu sápulöðursdögunum ?
Rasmína: Við skulum lioma út á aðalgötuna aftur!