Vikan - 10.04.1952, Page 2
2
VIKAN, nr. 15, 1952
PÓSTURINN •
Svar til Kolla:
Svo að þú ert hrifinn af Paulette
Goddard. I>að lái ég þér ekki, hún
er mjög hrífandi i flestu tilfelli, lag-
leg, vel vaxin og hreyfingar hennar
mjúkar og léttar.
Flestar leikkonur hefðu gefizt upp
í hennar sporum, þegar hún varð
að víkja úr hlut-
verki Scarlett O’-
Hara í kvikmynd-
inni ,,Á hverfanda
hveli“ fyrir Vivien
Leigh. En Paulette
var hugrökk og
vön vonbrigðun-
um og tók ósigr-
inum með heim-
spekilegri ró og
bjartsýni. „Eg
sagði við sjálfa
mig, að ég væri
ekki enn fær um
að takast á hend-
ur svo erfitt hlutverk. Vonbrigðin
voru ekki sérlega beizk. Og eftir að
hafa séð kvikmyndina vissi ég, að
þetta var alveg rétt hjá mér. Vivien
Leigh var aftur á móti hlutverkinu
vaxin".
Skömmu síðar ,,sló Paulette i
gegn“, og hún verðskuldaði það
sannarlega. Þessi unga, hækkandi
stjarna náði fljótlega mjög ákjósan-
legum árangri.
Paulette Goddard er fædd 3. júní
1911 á Long Island. Hún hafði allt-
af mikla löngun til að gerast leik-
kona, og æfa ballet og framsagnar-
list. Hún bjó hjá móður sinni, eftir
að foreldrar hennar skildu.
Hún lék á móti Chaplin í kvik-
myndinni „Einræðisherrann". Það
er eitthvað sérstaklega fágað við
tilsvör hennar. TJtlit hennar og
hæfileikar virðast bezt njóta sín í
hlutverkum dugmikilla, kaldlyndra
stúlkna, sem giftast til metorða.
Svar til G. J.:
1. Brownie myndavélar 6X9 kosta
kr. 161 og fást í verzlun Hans
Petersen, Bankastræti 4.
2. Hreinsuð terpentínuolia er laus
við öll litarefni og kvoðukennd efni.
Hún er notuð til að þynna olíuliti,
viðarkvoðusafa — gljákvoðu (fernis).
Hún er hreinsuð þannig, að öll
kvoðukennd efni og litarefni eru
hreinsuð burt. Hún er notuð til að
þynna olíuliti og viðarkvoðusafa.
Hið fyrra er þýzka, hið síðara
franska, annars erú málsgreinarnar
næstum alveg eins, örlítill mismunur
á orðalagi.
Svar til Birnu B. Árna:
1. Þú segist-vera 15 ára, og hrein-
skilnislega sagt þá er ráðlegast fyrir
/““*■........■■■■..*"■■■■■■■■■■■■■.. V
Tímaritið SAMTÍÐIN |
Flytur snjallar sögur, fróðlegar I
greinar, bráðsmellnar skopsögur, I
iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl. jj
10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr. I
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. I
Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75. f
þig að beina ekki eingöngu áhuga
þínum að strákum. Það er ekki nema
eðlilegt, að þú veitir þeim athygli og
sért ,,skotin“ í þeim, en bezt væri
fyrir þig að vera ekki að reyna að
hugsa upp ráð til að ná í þá. Þú ert
ennþá svo ung, að eini árangurinn,
sem þú næi'ð, mun sennilega verða
að gera þig hlægilega í augum
þeirra. Hinsvegar er ekkert á móti
því, að þú vekir athygli hans á þér,
en alls ekki á þann hátt, að hann
renni grun í, að þú hafir meiri áhuga
á honum en öllum öðrum.
2. Því miður höfum við ekki getað
náð í þennan texta, ef okkur heppn-
ast að ná í hann seinna, birtum við
hann fyrir þig.
3. Það er ekki auðvelt að svara
þvi. 1 raun og veru er það allt undir
því komið, hvað mikið traust má
sýna þér. Ef þú hefur sýnt, að þú
getur gætt sjálfrar þín, og hlýðir
alltaf settum reglum um að vera
komin heim fyrir vissan tíma, þá er
það fremur ósanngjarnt að lofa þér
ekki að fara út að minnsta kosti við
og við. En mundu það, að orsökin
fyrir strangleika foreldra þinna eða
annarra aðstandenda, er sú, að þeim
þykir svo vænt um þig, að þau vilja
ekki, að neitt illt komi fyrir þig, sem
hægt hefði verið að koma í veg fyr-
ir með því að gæta þín betur.
4. Marz er nú liðinn og ekki bólar
á neinum jarðskjálfta, svo að hann
er þá ekki alveg nákvæmlega tíma-
settur.
5. Skriftin er góð, en þú skalt
vara þig á að vera ekki of ósjálf-
stæð i hugsunum og gerðum, eink-
um gagnvart félögum þínum og vin-
stúlkum.
Svar til Gunnars:
1. Kostnaður við byggingu smá-
íbúðarhúsanna mun vera afar mis-
munandi, og ómögulegt að ætla á
neitt ákveðið verð. Allt er undir því
komið, hvað viðkomandi leggur
sjálfur mikið til þess. Stærð þeirra
er einnig nokkuð mismunandi, en
80 m2 mun vera algengasta stærðin.
2. Laun kennara við hina ýmsu
skóla 'eru afar mismunandi, kröfurn-
ar til menntunar þeirra eru heldur
ekki þær sömu allsstaðar. Nákvæm-
astar upplýsingar viðvíkjandi þessu
færðu hjá Fræðslumálaskrifstofunni,
Arnarhvoli, simi 81340.
3. Garðar Gislason h.f., Hverfis-
götu 4 og 6, sími 1500. Það getur
Framhald á bls. 13.
Norge — ísland í
I Noregi, innan- =
lands eða öðrum \
löndum, getur hver |
valið sér í gegnum Islandia, |
bréfavin við sitt hæfi. Skrif- \
ið eftir upplýsingum.
B R. ( F A K l 0 B B U R I N N I
ISLAN
Reykjavík
Rréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Gerður Birna Guðmundsdóttir (við
pilt eða stúlku 13—15 ára), Jað-
arsbraut 9, Akranesi.
Erlendsína Sigurjónsdóttir (við pilta
eða stúlkur 15—18 ára, mynd
fylgi bréfi), Vesturgötu 10, Kefla-
vík.
Sóley Guðmundsdóttir (við pilta eða
stúlkur 15—18 ára, mynd fylgi
bréfi), Hringbraut 92, Keflavík.
Alda Gunnarsdóttir (við pilta 16—20
ára, æskilegt að mynd fylgi) og
Fanney Guðnadóttir (við pilta 16—20
ára, æskilegt að mynd fylgi),báðar
að Þykkvabæ, Rangárvallasýslu.
Bryndís Rún Björgvinsdóttir (við
pilt eða stúlku 16—18 ára), Þór-
kötlustöðum, Grindavík.
Eiríkur Ásgeirsson (við stúlkur og
pilta 15—20 ára), Ytri Hjarðar-
dal, Önundarfirði, V.-lsaf jarðar-
sýslu.
Ásta Sigurðardóttir (,við pilta eða
stúlkur 13—15 ára. mynd fylgi),
Ásvegi 7, Vestmannaeyjum.
Sigrún J. Einarsdóttir (við pilta eða
stúlkur 13—15 ára, mynd fylgi),
Skólavegi 36, Vcstmannaeyjum.
Jón Hörður Sigurbjörnsson (við pilta
og stúlkur 14—16 ára, mynd fylgi),
Ingunnarstöðum, Geiradal, A.-
. Barðastrandasýslu.
Árni Björgvinsson (við stúlku 16—17
ára, æskilegt að mynd fylgi), Sandi,
Vestmannaeyjum.
Sigurgeir Haralds,
Haukur Gíslason og
Björgvin Haraldsson (við stúlkur
15—20 ára, mynd fylgi), allir í
Héraðsskólanum að Núpi í Dýra-
firði.
FRÍMERKI
OG
FRlMERKJASÖFNUN
Frímerkjasöfnurum er að vonum
ekki vel við þegar lönd þau sem þeir
safna frá, gefa út aragrúa af frí-
merkjum árlega og'það hágildum og
dýrum merkjum. Þeir kalia það ó-
heiðarleg frímerkialönd sem þannig
pressa peninga út úr söfnurunum.
Ég hefi gert samanburð á nokkrum
löndum sem gáfu út frímerki árið
1950 og fer hann hér á eftir. Heimild
mín er AFA 1952 og verðið er í
dönskum krónum:
ísland..........10 stk. Kr. 12.00
Danmörk ..... 9 — — 3.70
Grænland .... 8 — — 5.21
Noregur .......... 5 — -—■ 2.50
Sviþióð......... 3 — — 5.45
Finnland........14 — — 20.60
Sviss ...............10 — — 11.05
Belgía ..............19 — — 21.80
Etalía ..............37 — — 31.25
Rúmenía ......... 58 — — 64.86
Ungverjaland . . 80 — — 127.15
Rússland . ! . . 132 — — 289.60
Á þessum samanburði sézt að
Norðurlöndin stilla frímerkjaútgáfu
sinni í hóf, og að engum safnara er
ofvaxið að safna frá þeim löndum.
HÁGILDI.
Ungverjaland hefur gefið út frí-
merki sem gildir: 500.000.000.000.000.
000 pengö. Fimm hundruð þúsund
billjónir pengö.
Sænska blaðið „Frimarksnyt"
flytur eftirfarandi athugasemd um
þessi frímerki:
„Setjum svo að í stað þess að frí-
merkja með þessu 500.000 billjóna
merki, notuðu menn merki sem gilti
1 pengö. Hversu stórt þyrfti umslag-
ið að vera ? Stærð frímerkisins er
2X2% cm., þ. e. a. s. 5 fersentimetr-
ar. Margfaldi maður þessa tölu með
500.000 billjónum, fær maður tölu
sem vegna plássins hér (í blaðinu)
verður að stytta i 250 milljónir fer-
kílómetra sem er helmingur af flat-
armáli jarðarinnar. Það verðurlíklega.
erfitt að fá umslög af þeirri stærð
á vorum pappirssnauðu tímum".
Jón Agnars.
FRlMERIt J ASETT:
Finnland Olympiuserian 1952
<4 merki) ónotuð .... kr. 9.50
— Rauði krossinn 1952
(3 merki ónotuð) .. — G.80
— Iþróttaserian 1945
(5 merki ónotuð) .... — 6.00
Jón Agnars Frímerkjaverzlun,
P. O. Box 356, Reykjavík.
Gleraugun, sem stúlkan heldur á
hér á myndinni, eru 100 ára gömul
og þannig gerð, að annað sjónpípu-
glerið er ætlað fyrir fjarsýni og hitt
nærsýni. Gleraugun, sem hún hefur
á nefinu eru með kínverskri umgjörð
frá því 1810. Bæði gleraugun verða
til sýnis á alþjóðasýningu á fornum
munum, sem haldin verður bráðlega
í Madison Square Garden í New
York.
Hávaxnasta þjóö í heimi.
Batustar í Ruanda-Urundi i Belg-
ískukongó, Afríku, fara sjaldan að
heiman. En þegar þeir gera það,
vekja þeir mikla athygli, því að þeir
eru hæsta fólk heimsins (meðalstærð
er sjö fet). — Vorið 1949 fór maður
nokkur frá Ruanda til Brussell í
Belgiu og þá munaði litlu, að sima-
vírarnir strykju af höfði hans hatt-
inn.
Forsíðumyndin er eftir Hjálmar R.
Bárðarson A.R.P.S. Stúlkan á mynd-
inni er Margrét Ólafsdóttir leikkona.
Því miður gleymdist að setja í tvö
síðustu blöð höfundarnöfn forsíðu-
myndanna: Myndin af Þjóðminja-
safnshúsinu framan á tbl. 13 er eftir
Ólaf K. Magnússon. Myndin af Guð-
mundi Jónassyni og snjóbílnum fram-
an á tbl. 14 er eftir Þorstein Jóseps-
son.
Ctgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.