Vikan


Vikan - 10.04.1952, Blaðsíða 13

Vikan - 10.04.1952, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 15, 1952 13 Lærisveinn gaidra- mannsins En allt S einu lenti hann í hringiðu, sem hreif hann með Hann nálgaðist stöðugt brunninn lengst niðri í kjallaran- sér og sneri honum hring eftir hring, hann gat engan veg- um — brunninn, sem hann hafði sjálfur ekki nennt að sækja inn sloppið burt úr þungum vatnsstraumnum. vatn úr, og af því stafaði öll þessi eymd og erfiðleikar. GULLKDRNIÐ BIBLÍUMYNDIR Gangið inn um þrönga hliðið; því að vítt er hliðið og breiður vegurinn, er liggur til glötunarinnar, og margir eru þeir, sem ganga um það; því að þröngt er hliðiö og mjór vegurinn, er liggur til lífsins, og fáir eru þeir, sem finna hann. (Matteus 7:13,14). PÓSIURINN Franihald af bls. 2. þú fengið allar beztu upplýsingar Viðvíkjandi Austin bifreiðum. Þeir hafa umboð fyrir þær. Svar til Rutar Ragnars: 1. Þvi miður höfum við ekki núna í bili mynd af Margaret O’Brien, en vonandi verður hægt að bæta úr þvi seinna. Hún er fædd 15. jan. 1937 í Los Angeles, Kaliforníu. Hún hefur dökkbrúnt hár og dökkbrún augu. Hún var aðeins 18 mánaða gömul, þegar hún kom fyrst fram sem fyrir- mynd hjá myndatökumanni við tímarit nokkurt. 2. Eftir því sem við bezt vitum er hún ekki gift. 3. Þínir litir eru dökkblátt, blá- grænt og grænt. Einnig hlýlegir brúnir litir bæði ljósir og dökkir. 4. Skriftin er nokkuð góð, og rétt- ritunin einnig, aðeins ein villa, best i staðinn fyrir bezt. Svar til Dísu: Þú átt að vera 58% kg. Grænir, bláir og jafnvel fjólubláir litir ættu að klæða þig vel, einnig bleikt, svart og hvitt. Rautt hár þykir mjög fallegt og er í tízku. Fjölmargar konur láta lita hár sitt rautt (ekkert hefur þó heyrzt um, að karlmennirnir láti tízkuna ráða háralit sínum). Ég held, að hárið á þér mundi telj- ast ljósjarpt fremur en skollitt. Það er gulbrún slikja á þvi. Svar til Dísu í Dalakofanum: 1. Fyrst og fremst þarftu að gæta þess að þvo hárið og hirða það vel. Áður en þú þværð það, skaltu greiða allar flækjur úr hárinu, burstaðu það síðan vandlega. Berðu nóga sápu í, og nuddaðu allan hársvörðinn með aðskildum fingrum, skolaðu það vel! Ágætt er að bera sápu tvisvar í hár- ið eða jafnvel þrisvar. Þurrkaðu vandlega hálsinn, eyrun og ennið, nuddaðu síðan mestu vætuna úr hár- inu, þurrkaðu hárið svo endanlega með heitu handklæði. Oft getur ver- ið gott að bursta það á eftir með hreinum bursta. Oft getur of mikil fita i hári staf- að af flösu. I bókinni Föt og Fegurö segir svo: ,,Það er ennþá ágreining- ur um það, hvað það er, sem veldur flösu. Nokkrir húðsjúkdómasérfræð- ingar halda því fram, að hún sé ekki smitandi. Aðrir segja, að hún mynd- ist af sérstökum bakteríum. En hver svo sem orsökin er, kemur öllum saman um, að bráðnauðsynlegt sé að halda hárgreiðunni og burstanum tandurhreinum. Þér ættuð alltaf að þvo greiöuna og burstann um leið og hárið er þvegið og jafnvel oftar. Það má þvo livorttveggja I heitu sápuvatni og skola vel á eftir. Líka er hægt að gera það með þvi að 1. mynd: Og höfðingi nokkur spurði hann og sagði: Góði meistari, hvað á ég að gjöra, til þess að ég erfi eilíft líf? En Jesús sagði við hann: . . . Þú þekkir boðorðin: Þú skalt ekki drýgja hór; þú skalt ekki morð fremja; Þú skalt ekki stela; Þú skalt ekki bera ljúgvitni; heiðra föð- ur þinn og móður. 2. mynd: En hann sagði: Alls þessa hefi ég gætt frá æsku minni. En er Jesús heyrði það, sagði hann við hann: Enn er þér eins vant; sel þú allar eigpir þinar og skipt þeim með- al fátækra, og munt þú fjársjóð eiga í himninum; og kom síðan og fylg mér. En er hann heyrði betta, varð hann mjög hryggur, þvi að hann var auðugur mjög. 3. mynd: Og hann fór inn í Jeríkó og gekk í gegnum hana. Og sjá þar rar maður nokltur, er Zakkeus hét, og hann var yfirtollheimtumaður og auðugur. Og hann leitaðist við að sjá Jesúm, hvernig hann væri, og hann gat það ekki fyrir mannfjöld- anum, þvi að hann var lítill vexti. Og hann hljóp fram fyrir og steig upp. í mórberjatré, til þess að hann gæti séð hann, því að leið hans lá þar fram hjá. Og er Jesús kom þang- að, leit hann upp og sagði við hann: Zakkeus, flýt þér ofan, því að i dag ber mér að dvelja í húsi þínu. 4. mynd: Og hann flýtti sér ofan og tók á móti honum glaður. Og er þeir sáu þetta, létu þeir allir illa við og sögðu: Hann er farinn að gista hjá bersyndugum manni. En Zakkeus gekk fram og sagði við Drottin: Sjá, herra, helming eigna minna gef ég fátækum, og hafi ég haft nokkuð af nokkrum, gef ég honum ferfalt aft- ur. Og Jesús sagði við hann: 1 dag hefir hjálpræði hlotnast í húsi þessu, þar eð einnig þessi maður er Abra- hams sonur. Því að mannssonurinn er kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það. setja nokkra dropa af ammoníaki i vatnið til hreinsunar. Þér eigið að sjálfsögðu bæði greiðu og bursta, og ég vona, að þér lánið aldrei öðrum greiðu eða fáið að láni. Það ættuð þér aldrei að gera. Slíkt er mjög var- hugavert, því ómögulegt er að vita, hvað komizt getur í hárið á þann hátt.“ Ef fitan í hárinu stafar ekki af flösu, getur verið ágætt að ná úr því fitunni og halda því fyrirferðar- miklu og lifandi með hárvatni. Lyf- seðiil þessa hárvatns er: Sulf. subli- mat g. 4, Spir. lavendulae. g 300. Ef þetta hárvatn er notað, er oft gott að bera olíu í hárið, áður en það er þvegið. Lyfseðill oliunnar er: Ac. sale cyle g 2, Ol. olieae g 100. 2. Þinir litir eru blágrænt, blátt, einnig skærir hlýir litir eins og rautt, bleikt, gult, brúnt. 3. Skriftin er góð, dálítið barna- leg.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.