Vikan


Vikan - 10.04.1952, Blaðsíða 11

Vikan - 10.04.1952, Blaðsíða 11
VIKAN, nr. 15, 1952 11 Á veiðum SAKAMALASAGA Framhaldssaga: eltir MIGNON G. EBERHART 15 Hún, Karólína og Woody fóru snemma heim. Það var lítiS sem ekkert minnst á morðið. Sue var aldrei ein með Fitz, en hún hugsaði með sér, að það mundi vera bezt fyrir sig, þvi að hún efaðist um þrek sitt. Þegar hún settist inn I bíl- inn, sá hún Kamillu þar, sem hún stóð við hlið Fitz i uppljómuðu anddyrinu. Lögreglan átti annríkt. Félagar Beaufortveiði- félagsins, sem voru rúmlega tuttugu að tölu, voru yfirheyrðir hvað eftir annað. Skrár yfir sjúklinga Luddingtons læknis og reiknings- færslubækur hans voru rannsakaðar til þess að vita, hvort ekki fyndist sjúklingur, sem senni- lega hefði meiðzt, og verið staddur í lækninga- stofu Luddingtons á umræddum degi, og sem læknirinn hefði beðið að hringja í Sue og beðið hana um að koma, og sem hafði einnig hringt í Jed til þess að biðja hann um að koma. Jed hafði ekki kannazt við málróminn fremur en Karólína. Og þó að röddin í símanum hefði látið kunnuglega i eyrum, hefði hún eflaust ekki veitt því eftirtekt, vegna þess hve kvíðafull hún var. Stulkurnar tvær á miðstöðinni gátu engar upplýsingar gefið. Það hafði verið mikið ann- ríki einmitt um þetta leyti og oftast á tali hjá lækninum. Það var gerð nákvæm rannsókn í lækninga- stofu Luddingtons. Jed og þó einkum Ruby, sem hafði verið ein stundarkorn þar inni, voru þrá- spurð um flata, gljáandi hlutinn, sem gat verið spegill eða litil dós, sem augsýnilega hafði horf- ið, en þær spurningar báru engan árangur. Lög- reglan hefði að öllum líkindum lagt trúnað á þessa frásögn, ef Sue hefði haft nokkurn hagn- að af að ræða hana nánar. Þetta varð ósvöruð smáspurning meðal margra þýðingarmeiri við- fangsefna. Lögreglan varð æ trúaðri á þá get- gátu, sem í fyrstu þótti sennilegust, þar sem allir aðrir möguleikar urðu að engu. Hann hafði óneitanlega verið einn hjá Ernestínu nokkurn tíma áður en hún dó, og það gat verið, að hún hefði sagt honum sannleikann af því, sém fyrir hafði komið, og hafi svo verið, þá hafði hann varðveitt þetta hræðilega leyndarmál. Það var enginn vafi á því, að hann hafði breytzt um veturinn. Aldur hans var kveðin orsökin og einnig hin þreytandi yfirheyrzla. Var það þá í rauninni sú þunga byrði leyndarmálsins, sem olli breytingunni. Það voru tekin fingraför af öllu í lækninga- stofunni. Marghleypan og kúlan, sem hafði verið tekin úr líkinu voru sendar til Wilkins lögreglu- fulltrúa. Þetta gerðist síðari hluta mánudags, og Jed ók á skrifstofu sýslumannsins seint þann sama dag. Þaðan fór hann til Sue. „Sýslumaðurinn er á þínu bandi, og mér datt í hug, að hann mundi vilja segja okkur, hvort þeir hefðu komizt að því, hver hringdi til okkar, eða hvernig þessu var varið,“ sagði Jed. „Hann var mjög vingjarnlegur, en hafi þeir komizt á snoðir um nokkuð, þá sagði hann mér það að minnsta kosti ekki. Hann sagði aðeins, að það hefði fundizt svo miki^ af ógreiddum reikning- um, að upphæðin entist einni manneskju til að lifa á allt lífið, ef reikingarnir væru innheimtir." „Mér þykir ósennilegt, að Wat láti innheimta þá.“ „Já, ef hann ætlar á þing,“ sagði Woody stutt- ur í spuna. Hann var ennþá ungæðislegri í frá- hnepptri skyrtunni, bláum upplituðum buxum og inniskóm heldur en í einkennisbúningnum sínum. Hann hafði verið i hesthúsinu mestan hluta dags- ins og verið að föndra við ýmislegt smávegis með Karólínu, fundið að fyrirkomulaginu á aktygjageymslunni hjá henni, og sýnt Leifi litla, hvei'nig ætti að fara að því að nudda hesta. Hann hafði skoðað sárið á fæti Jeremy með miklum spekingssvip. Nú renndi hann fingrunum i gegnum strítt, ljóst hár sitt og leit vonzkulega á Jed, sem sagði allt í einu: „Um hvað ertu í rauninni að hugsa, ungi maður?“ „Hv — hvað?“ sagði Woody og varð flemt við. „Þú ert alltaf að horfa á mig. Blessaður, segðu okkur, ef þú býrð yfir einhverju!“ En Woody færðist undan. Andlit hans varð sviplaust. Hann bjó ekki yfir neinu, sagði hann umleið og hann stóð á fætur og lallaði út úr stofunni. Hann minntist heldur ekkert á álit sitt á Jed, en það var auðséð, að hann hafði óbeit á hon- um, og Jed gat sér til um ástæðuna. „Honum geðjaðist ekki að mér,“ sagði hann og horfði á dyrnar, sem höfðu lokazt á eftir Woody. „Og ég álasa honum ekki fyrir það. Það er mér að kenna, að þú ert flækt inn í þetta mál, Sue, af því að ég varð ástfangin i þér.“ Hann gekk til hennar þar sem hún stóð við svalariðið. Það voru farnir að koma fjólubláir hnappar á greinar vínviðarins, sem teygðu sig yfir riðið. Það var fremur dimrnt yfir, en heitt í veðri. Þetta var einn af lokadögum Dobberlyveiðanna, en þær voru farnar tvisvar i viku þangað til fyrstu vikuna í apríl. Þetta var sem sé einn síð- asti dagur veiðitímans. Samkvæmt gamalli venju var veiðidansleikurinn í næstu viku á eftir. Hvorki Karólína, Sue né Jed tóku þátt í veið- unurn þennan dag. Wat sagði Karólinu, að það hefði verið boðizt til að aflýsa veiðiferðinni í heiðurskyni við minningu læknisins, en að hann hefði ekki viljað það, þvi að hann væri viss um, að föður sínum mundi ekki hafa geðjast að því, og Karólína hafði verið honum sammála. Þau heyrði i hundunum einhversstðar hinu- megin við Hollowhœð, og hljóðfæraslátt í fjarska. Jed stóð þögull Um stund og studdi annarri hendinni á svalariðið, því næst sagði hann upp úr eins manns hljóði: „Við skulurn gifta okkur núna, Sue.“ Hún sneri sér snögglega að honum, og það var óttasvipur á andliti hennar. Hann ,horfði ákaf- ur á svip i augum hennar. „Gerum það strax,“ sagði hann. Því var varið með hann eins og Fitz, sem langaði til þess að bjóða henni þá fullkomnustu vernd, sem maður gat boðið konu. Hún var hrædd og einmana og það snerti hana ákaflega. Andartak gat hún ekki talað, og hún lagði hönd- ina á handlegg hans. „Hvenær, Sue?“ sagði hann. „Strax — er það ekki?“ „Nei!“ „Hvað meinarðu með því að segja nei? Við, sem erum trúlofuð . . .“ „Nei, nei, ég er búin að segja þér, að þetta er allt breytt. Þú verður að trúa mér.“ „Já, en þú . . . en, við . . .“ allt í einu þaut blóðið fram í kinnar hans. Hann greip um hend- ur hennar — það var auðséð á augnasvipnum, að hann trúði henni ekki ennþá. „Það getur ekki verið, að þú hafir skipt um skoðun. Þú varst mér svo góð, eftir að morðið var framið. Þú varst mér trú allan veturinn og meðan á yfirheyrsl- unum stóð. Þú hefðir ekki getað það, ef þú hefð- ir ekki elskað mig. Þú elskar mig ennþá. Þú getur ekki svikið mig núna. Við erum bæði í hættu stödd. Sá, sem hringdi til þin og sagðist vera sjúklingur og sagði, að Luddington læknir bæði þig um að koma, hringdi líka til min. Hann hefur viljað, að lögreglan fyndi okkur bæði. Hann . . . en við komumst út úr þessu. Við hugs- um ekki meira um fortíðina. Við elskum hvort annað og . . .“ Hún hristi höfuðið. „Nei, ég elska þig ekki.“ I fyrsta skipti leit út fyrir, að hann tryði henni. Það lýsti sér tortryggni í augum hans og því næst andmæli. „Jed, mér er alvara. Við getum ekki gift okkur.“ „Áttu við, að við gerum það aldrei, Sue?“ „Já, ég á við það. Mig tekur það sárt, Jed.“ Nú trúði hann henni, hún var viss um það. En hann barðist á móti því. „Já en, Sue — þú getur ekki — ákveðið þig svona fljótt. Þú get- ur ekki verið viss um, að þú . . .“ hann þrýsti hendur hennar og hrópaði næstum því. „Leyfðu mér að biða, og hugsaðu þig um og . . .“ Bíll kom eftir akbrautinni milli lárberjatrjánna. Þau heyrðu og sáu hann bæði. Jed sleppti hönd- um hennar. „Það er lögreglan." Það var lögreglan, en í þetta skipti kom hún til þess að tala við Woody. Það var Henley lög- reglufulltrúi og tveir lögregluþjónar — annar ók bílnum og hinn kom til þess að hraðrita allt sem Woody sagði. Spurningarnar voru allar í sambandi við kvöldið, sem Ernestína var myrt. Jed og Sue var leyft að vera kyrr og hlusta á. Henley var uppstrokinn og hinn glæsilegasti í klæðaburði, en hann var þreytulegur. Það voru dökkir baugar í kringum slóttug augun og mikl- ar kinnar hans voru slappar. Hann gekk eins og svörtu gljástígvélin væru of þröng á hann, en hann virtist jafn öruggur með sjálfan sig eins og venjulega, og með hverju orði, sem hann sagði, gaf hann i skyn, að hann mundi gefa út handtökuskipun gegn Sue, ef hann mætti ráða. Framkoma hans var kuldaleg, en hann var mjög kurteis. Sue kallaði á Woody. Hann kom að vörmu spori, eins og hann hefði beðið eftir þessu inni í aktygjageymslunni. Reveller haltraði á eftir. Þau settust í tágarstólana á svölunum, og Sue hlust- aði á marrið í stólunum, sem lét svo kunnugiega í eyrurn. Það var heitt, en samt fór kuldahroll- ur um Sue, því að það var strax farið að tala um morðið á Ernestínu. Henley lögreglufulltrúi setti á sig gleraugu, sem voru mjög gamaldags í samanburði við klæð- skersaumaða einkennisbúninginn. Hann fletti blöðunum í vasabók og fann greinargerð Woodys um það, sem hann hafði haft fyrir stafni dag- inn, sem morðið var framið. Hún hafði verið skrifuð niður daginn eftir dauða Ernestínu, rétt áður en hann fór með flugvélinni til San Diego. Skýringin var mjög stutt og að svo miklu leyti sem Sue fékk séð var hún þýðingarlaus. En allt i einu minntist hún kvöldsins á skrifstofu sýslu- mannsins, þegar henni hafði fundizt eins og Woody leyndi einhverju. Henley hafði fundizt það líka. .......og fór á veiðidansleikinn," las hann. „Sue jíar farin á undan. Hún sagði, að hún ætlaði til Ernestínu. Hún fór í bílnum, og þegar hún kom ekki aftur, þá hringdi ég í Bascombs- fólkið og það sótti okkur frænku . . . við hugsuð- um ekkert frekar út í það, þó að hún kæmi ekki heim. Hversvegna hefðum við líka átt að vera

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.