Vikan - 12.06.1952, Page 2
2
VIKAN, nr. 23, 1952;
PÓSTURINN ■
Clark Gable er fæddur 1. febrúar
1901. Hann vann fyrst allskonar
vinnu við leikhúsin
og- jafnvel farinn
að leika á sviði áð-
ur en hann komst
að kvikmyndunum
1930. Hann, varð
brátt einn vinsæl-
asti kvikmynda-
leikari heimsins
og hefur haldið
þeim vinsældum
síðan, þó hann
hyrfi af sjónar-
sviðinu öll stríðs-
árin, meðan hann
var herforingi í
flugliðinu. Hann hefur skapað marg-
ar sérkennilegar og vel mótaðar
manngerðir í kvikmyndunum og leik-
ur hans er alltaf ferskur og djarfur,
hvort sem um er að ræða létt grín-
hlutverk eða hlutverk alvarlegs eðlis.
Clark er 6 fet og 1 þumlungur á
hæð, hefur brúnt hár og ljósgrá
augu. Hann er nýskilinn við aðra
konu sína (sú fyrsta, Carol Lombart,
fórst í flugslysi) og hefur lýst því
vfir við blaðamenn, að hann sé ekki
ákveðinn í að lifa einlífi það sem eftir
er æfinnar. Hann vinnur nú að nýrri
kvikmynd í Prakklandi.
Flestir hér á landi muna sjálfsagt
bezt eftir honum sem Ret Butler í
myndinni ,,Á hverfanda hveli",, sem
hefur verið sýnd hér við og við. Af
öðrum myndum má nefna San Pran-
cisco, Stormy Wether, The Impostor
of Moontide.
Kæra Vika!
Viltu*gjöra svo vel að segja mér
hvar trúboðsskólinn er hér á landi
og hvað heitir forstöðumaður skól-
ans. Hvað er gjaldið hátt fyrir að
vera þar.
H. J. K.
Svar: Það er enginn trúboðsskóli
hér á landi, en það er til trúboðs-
félag. Islenzkir trúboðar hafa flestir
stundað nám í Noregi.
Kæra Vika!
Geturðu frætt mig um það hvers
vegna fullorðið fólk virðist aldrei geta
lært að opna sígarettupakka rétt:
Það á að rifa helminginn af öðrum
endanum en ekki alveg annan endann
af, svo að sígaretturnar detta út eða
velta hver um aðra. Ég hef veitt því
athygli, að foreldrar mínir og kunn-
ingjar þeirra fara svona að.
Dóra.
Svar: Þú leysir vandamálið um að
opna sígarettupakka alveg rétt. Ef
til vill hugsar fullorðið fólk ekki svo
mikið um svona smámuni og þarf
Tímaritið SAMTÍÐIN
Flytur snjallar sögnr, fróðlegar
greinar, bráðsmellnar skopsögur,
iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl.
10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75.
heldur ekki sýna öðrum, að það
kunni að opna sígarettupakka. Þú
hefur líklega lært hvernig þessir
pakkar eru opnaðir af amerísku kvik-
myndunum því þar er sigarettunum
pakkað í slíkar umbúðir. Eldra fólk-
ið hefur aftur á móti vanizt pökkum,
sem ekki þarf að rífa upp.
Halló Vika!
Þakka þér innilega allt skemmti-
legt, sem þú hefur birt mér og öðr-
um til ánægju, sérstaklega fram-
haldssögurnar þínar. Ég er hér með
5 spurningar sem ég bið þig að
svara:
1. Ég er að verða fimmtán ára,
167 cm. á hæð, hvað á ég að vera
þung.
2. Hvaða litir klæða mig bezt. Ég
er skolhærð með græn augu.
3. Hvað þarf ég að hafa háa eink-
unn til að komast í Menntaskólann.
4. Þarf ég að kunna mikið í reikn-
ingi, ef ég ætla að fara i máladeild.
5. Hvernig er réttritunin, ég spyr
ekki um skriftina þvi ég hefi fengið
nógu miklar skammir fyrir hana.
Þakka fyrirfram svörin.
Ungfrú X.
Svar: 1. Þú átt að vega 62 kg. —
2. Þú ættir að klæðast grámuðum
og rauðum litum, svart og hvítt eru
líka ágætir litir.
^uiiiiuiiiaiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiMiiiriiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiii >,
Norge — Island j
I Noregi, innan- \
lands eða öðrum I
löndum, getur hver i
valið sér í gegnum Islandia, 1
bréfavin við sitt hæfi. Skrif- |
ið eftir upplýsingum.
8 R. f FAKLÓBBURlNN
IUANDIA|
Reykjavík
‘ MIMUMMMMUMIIM"IIIMI"M,IIII""IM"„"„I„"„„MMII,*>*
3. Fyrsti og annar bekkur hafa
verið felldir niður við Menntaskól-
ann í Reykjavík. Ef þú ætlar í þann
skóla, þarftu fyrst að taka landspróf.
4. Skólinn skiptist í deildir þegar
komið er upp í fjórða bekk. Fyrstu
þrjá bekkina er krafizt jafn mikillar
reikningskunnáttu af öllum.
5. Bréfið er nokkuð rétt skrifað, en
vonandi hefur þú ekki verið svo lengi
í enskumælandi landi, að þú sért búin
að gleyma íslenzku kveðjunni. „So
long“ er ekki íslenzka.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Jakobína Jóhannsdóttir (við ungt
fólk 11—13 ára), Grund, Saurbæ,
Dalasýslu.
Margrét Ragnarsdóttir (við ungt fólk
17—22 ára), Grund, Homafirði.
Hanna Jónsdóttir (við ungt fólk 15
—18 ára), Akurnesi, Hornafirði.
Ásdís Marteinsdóttir (við ungt fólk
14—18 ára), Ási, Hornafirði.
Þórunn Árnadóttir (17—25 ára),
Halldóra S. Árnadóttir (15—20 ára),
Guðrún Árnadóttir (13—15 ára).
Allar að Heiðarseli, Siðu, V,-
Skaftafellssýslu, um Kbkl.
Sigurbjörg Vigfúsdóttir (14—16
ára),
Sigurrós Gunnarsdóttir (20—30 ára),
Jón E. Gunnarsson (17—20 ára). öll
að Borgarfelli, Skaftártungu, V.-
Skaftafellssýslu.
Jón Þorleifsson (við stúlkur 17—18
ára),
Þorsteinn Gislason (við stúlkur 17—
25 ára),
Steinþór Jóhannsson (við stúlkur 16
—25 ára),
Arnar Sigurðsson (við stúlkur 16—17
ára),
Egill Benediktsson (við stúlkur 18—
25 ára),
Guðný Steingxímsdóttir (við pilta 18
—25 ára),
Guðlaugur Guðjónsson (við pilta 18
—25 ára). Öll í Vegamannatjöld-
um, Landbroti, V.-Skaftafellssýslu,
um Kbkl.
Sigga segir frá ...
. . . auðvitað kemur mér það ekk-
ert við, en ef við hugsum alltaf
þannig, getum við aldrei talað um
annað en veðrið. Auk þess var ég
svo að segja vinkona fyrri konu
Henriks, svo það er alls ekki óvið-
eigandi, þó ég segi þér svolítið frá
honum. Hann skildi Dóru, fyrri kon-
una sína, alltaf eftir eina heima, þeg-
ar hann fór út og það var reglulega
illa gert af honum, því hún var fal-
leg og elskuleg og ekki nærri eins
einkennileg og seinni konan hans. Ég
ætla ekki að tala illa um hana, en
svipurinn á henni er þannig, að ég
slæ henni gullhamra ef ég segi að
hann sé frekjulegur. Auk þess dreg-
ur Henrik, sem þú veizt að vill fara
út einn, hana alltaf með sér í Íeik-
húsið og í veitingahús. Þetta er ein-
mitt það sem ég ætlaði að tala um.
Hvar heldurðu að fiskur liggi undir
steini ? Mig grunar hvernig í því
liggur, en það er auðvitað aðeins
ágizkun, mig grunar að hér sé um
eina einustu ástæðu að ræða — hann
gerir það til að losna við að kyssa
hana áður en hann fer.
^LllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIII||i||,i„|l|l|flllllliMillllMllllillllll|l|i|lM|,|MIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIM"l""""|"llll"l"l||lll"""|""""l"llllllll|ll|||||l|||||l|||||ll
POLYAC
Enska plastmálningin er komin
Hún er auðveld í notkun, þekur vel og þornar fljótt.
Margir litir. — Pantanir óskast sóttar strax.
Helgi Magnússon & Co.
Hafnarstræti 19 — Sími 3184.
iiiii .................................................................................................................................................................»»»*.............................................
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.