Vikan - 12.06.1952, Síða 10
10
VIKAN, nr. 23, 1952
• HEIMILIÐ •
Kökuuppskriftir
Horn:
250 gr. hveiti, 100 gr. smjörlíki,
2 tsk. lyftiduft, % tsk. sykur,
y2 tsk. salt, iy2 dl. mjólk.
Deigið er hnoðað. öllu þurru
blandað saman, smjörlíkið mulið út
í og hnoðað upp með mjólkinni.
Deigið er hnoðað vel, flatt út og skor-
ið í þríhyrninga, sem síðan eru vafð-
ii upp svo oddurinn verði að neðan.
Homin smurð að ofan með eggi og
bökuð ljósgul við góðan hita.
Borðuð með smjöri.
Kaffihringir:
1 pundi hveiti, 125 gr. sykur, 100
gr. smjörlíki, 1 egg, 1 tsk. lyfti-
duft, 2 dl. mjólk.
Öllu þurru blandað saman og það
hnoðað vel upp með mjólkinni og
egginu. Flatt út, en ekki mjög þunnt.
og skorið í kringlóttar kökur, sem
aftur er skorið innan úr svo þær
myndi hringi. Jurtafeiti hituð í potti,
hringirnir brúnaðir i henni og látnir
á pappír þegar þeir eru teknir upp
úr. Þetta deig má líka nota í kleinur.
Brúnaðir hveitibrauðsten-
ingar:
150 gr. hveitibrauð, 1 msk. syk-
ur, 2 msk. smjörliki.
Hveitibrauðsneiðar eru skornar í
teninga, sem látnir eru á pönnu
ásamt smjörlíkinu og sykrinum.
Hrærið vel í meðan teningarnir eru
að brúnast og einnig eftir að pannan
hefir verið tekin af plötunni og þeir
eru að kólna. Teningarnir eru born-
ir kaldir með súpu.
HtSRÁÐ
Það er betra að smyrja kökuform-
ið með tólg eða svínafeiti en smjöri
og smjörlíki, þvi að þá festist kak-
an síður við formið.
*
Ef kakan festist af einhverri
ástæðu er ágætt að setja formið í
heitt vatn í eina eða tvær mínútur.
Hún losnar þá að vörmu spori.
*
Gott ráð, þegar verið er að baka
eða sjóða, og húsmóðirin hefur störf-
um að gegna annarsstaðar í húsinu,
er það, að setja vekjaraklukkuna á
þá stund, þegar líta þarf efttir matn-
um eða kökunum. Þetta mun spara
margar brenndar kökur og eyðilagða
rétti.
*
Gúmmíhœlar og gúmmígólfábreið-
ur hlífa fótum þeirra, sem þurfa að
ganga eða standa mikið. Mjóir og
háir tréhælar eru alverstir fyrir fólk,
sem notar fæturna mikið.
*
Að brydda með silkiböndum er
hægt verk, ef strauað er brot eftir
miðju bandinu endilöngu. Þá er hægt
að festa bryddinguna á með einum
saum. Það er líka til hægðarauka,
ef spretta á því upp aftur.
Mikill munur á hjónabandi
í heiminum
1 Svíþjóð geta fráskildar konur
verið dæmdar til að borga viðurværi
fyrrverandi eiginmanns sins, ef hann
er ekki sjálfur fær um að sjá fyrir
sér. 1 Sovétríkjunum þekkist ekki
hugtakið trúlofun. 1 Brasilíu hefur
gift kona sama lagalegan rétt og
ómyndug börn, fólk, sem svipt er
fjárráðum eða „indjánar, sem búa í
frumskógunum."
Þetta eru dæmi um þann fróðleik,
sem er að finna í bráðabirgðaskýrslu,
sem Sameinuðu Þjóðirnar hafa gert
fyrir Kvenréttindanefndina. Þessi
nefnd kom saman 30. apríl s. 1.
Skýrslan fæst við vandamál eins og
giftingar, skilnaði, lagalegan rétt
hjóna hvors um sig og lagalegan rétt
barna og foreldra.
1 skýrslunni segir: 1 mörgum lönd-
um er lágmarksaldur til giftinga 12
ára fyrir kvenfólk en 14 ára fyrir
karlmenn. Meðal þessarra landa eru
Bolivía, Tsíle, Kolombía, Kúba,
Ekvador, Suður-Rodesia, Irland (kat-
óiski hlutinn), Ástralía og Nýja
Sjáland. 1 Kosta Rika er lágmarks-
aldur 15 ára fyrir bæði kynin, og í
Nikaragua 15 ára fyrir karlmenn og
14 ára fyrir kvenfólk. Hæsti lág-
marksaldur gildir í löndum eins og
t. d. Danmörku, Svíþjóð og nokkrum
ríkjum Bandaríkjanna (einnig á Is-
landi), en hann er 21 árs fyrir karl-
menn og 18 ára fyrir konur.
Lagalegur réttur við skilnað er
líka mjög mismunandi. 1 Suður-
Afríku getur kona ekki krafizt neinn-
ar aðstoðar af manni sínum, hvort
þeirra sem hefur valdið skilnaðinum.
Hið gagnstæða gildir í Sviþjóð, þar
sem maðurinn verður að sjá konu
sinni og börnum fyrir lífsviðurværi,
nema hún vinni fyrir nægilega miklu
til lifsviðurværis. 1 Englandi og
Norður-lrlandi geta konur borið fram
fleiri ástæður til skilnaðar en karl-
menn, en í Persíu getur karlmaður
skilið við konu sína af hvaða ástæðu
sem hann vill, en kona getur því að-
eins fengið skilnað, að maður henn-
ar sé annaðhvort afbrýðissamur eða
ófrjór.
Fjölskyldan
Orðið fjölskylda hefur mjög mis-
munandi merkingu í ýmsum löndum.
Sums staðar er álitið að maðurinn
sé höfuð fjölskyldunnar, en í löndum,
sem lengra eru á veg komin, hafa
maðurinn og konan stjórnina á hendi
í sameiningu. 1 nokkrum hluta Kan-
ada, nokkrum löndum Evrópu og í
Suður-Ameríku er staða konunnar
innan fjöiskyldunnar sú sama og
ákveðið var í „Code Napoleon", sem
var saminn 1804. Þannig er hol-
lenzka eiginkonan neydd til að
fylgja manni sínum hvert sem hann
vill. 1 Frakklandi, þar sem þessi
-k -k ir
Dýra-
garöurinn
Maðurinn með hanasvipinn. Þið kannizt allar við
þessa æstu og uppstökku manntegund. Gætið
ykkar!
Karlmenn eru svo miklar skepn-
ur!! Samt sem áður dást konurnar
að þeim eða að minnsta kosti um-
bera þá, þrátt fyrir allar þeirra
ýkjusögur, tóbakslyktina af þeim og
hve kæruleysislega þeir búa til stríð
og börn! Allt þetta auk einhverra
einkagalla . . . Maður verður að kynn-
ast þeim til að geta gert sér grein
ífyrir skaplyndi þejirra, þegar þeir
koma úr veiðiferð, hreyknir af að
hafa drepið lítinn fisk eða þegar þeir
snúast hjólbeinóttir við kvenfólkið
eða setja upp skáldasvipinn. Þetta
er sprenghlægilegt! Nú ætlum við
að sýna ykkur, hvernig karlmenn
koma raunsæjum og hugsandi kon-
um fyrir sjónir og eins hvernig þú
ættir að sjá þá, ungfrú góð, til að
komast hjá mistökum, sem græta
munu foreldra þína.
lög voru samin, hafa þau verið
endurskoðuð, en ekki breytt svo
mikið að konan hafi sömu réttindi og
maðurinn. Það má dæma konu, sem
fremur hjúskaparbrot, í þriggja mán-
aða til tveggja ára fangelsis, en
„eiginmann, sem hefir haldið hjákonu
á sameiginlegu heimili hjónanna má
dæma í 6000—12000 franka sekt.“
Á Italíu er maöur og kona skuld-
bundin til að búa saman, vera hvort
öðru trú og hjálpast að og konan er
skyldug til að vera manni sínum
trygg, jafnvel eftir að skiinaður hef-
ur farið fram. Maður, sem drepur
eða særir fyrrverandi konu sína fyrir
hjúskaparbot, hlýtur mjög litla hegn-
ingu.
1 Sovétríkjunum, Tékkoslóvakiu,
Póllandi, Rúmeníu og Jugoslavíu
hafa hjón sama lagalegan rétt. Börn
fædd utan hjónabands hafa i mjög
fáum löndum sama rétt og hjóna-
bandsbörn. Lög flestra landa binda
þau móðurinni, en hika við að við-
urkenna skyldleik þeirra við föður-
inn . . . sennilega vegna réttinda
hjónabandsbarna hans.
STORSMYGL A HAFINU
Bandarikin hafa svo miklar á-
hyggjur útaf smygli eiturlyfja meðal
Sjómanna, að í Washington hefur
verið lagt til, að gerður verði sér-
stakur listi svartur yfir alla sjó-
menn, sem einu sinni hafa verið
staðnir að þvi að smygla eiturlyfjum.
Þetta hefur þó ekki komizt í fram-
kvæmd, en áhyggjur Bandaríkjanna
eru auðskildar þegar þess er gætt, að
árið 1951 fundust eiturlyf á 224 skip-
um í alþjóðasiglingum og er það
helmingi meira en árið áður. 91 þess-
ara skipa var amerískt og 44 voru
ensk.
Til' eru smyglarar, sem ekki hafa
tíma til að bíða eftir tækifæri til að
smygla sjóleiðis. Þeir nota flugvél-
arnar. 1 skýrslu, sem skrifstofur S.Þ.
hafa nýlega kunngert varðandi smygl
eiturlyfja í fyrra, er getið um smygl-
tilraunir með flugvélum margra flug-
félaga, þeirra á meðal nokkurra
heimsþekktra félaga, en þær tilraunir
hafa þó mistekizt.
| Aðalfundur LOFTLEIÐA H.F.
í verður haldinn laugardaginn 28.
júní næstkomandi kl. 2 e. h. í \
\ Tjarnarcafe uppi. ;
| Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
'u (■iiiiiiiiiiiiiiisiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiisiiiiiiiiiiiasiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin