Vikan


Vikan - 18.06.1953, Side 3

Vikan - 18.06.1953, Side 3
Nú hefst tími ferðalaganna Hér segir nokkuð frá ferðamanninum Páli Arasyni, sem opnað hefur fjölda nýrra leiða í óbyggðum PÁLL, ARAtíON hefur aldrei hald- ið skýrslur yfir það, hversu mörgu fólki hann hefur leiðþeint um landið, né heldur hve marga kílómetra hann hefur ferðast um byggðir þess og óbyggðir. Hins- vegar þykist hann nokkurnveginn viss um, að það séu ekki ýkjamargir staðir á landinu, sem hann hefur ekki farið um, annaðhvort einsamall, eða í ferð með félögum og kunningjum, eða þá sem fararstjóri fjölmennra ferðamannahópa, sem ekki hafa látið sér lynda að ferðast einungis hinar troðnu slóðir. Það má segja, að „sérgrein" Páls sé öræfaferðalög, þó hann taki að sjálfsögðu fúslega að sér að fylgja fólki á hina „klassiskari“ staði. En öræfin íslenzku hafa alla daga heill- að hann meira en þjóðbrautirnar, og nú er árangurinn meðal annars orð- inn sá, að hann hefur gerst braut- ryðjandi á mörgum óbyggðaleiðum. Þessar leiðir hefur hann farið fyrstur manna með farþega: 1) Suð- ur yfir Sprengisand og Norður aft- ur. 2) Prá Möðrudal að Kringilsár- ranna (þar eru hreindýrin) og norð- ur að Brú í Jökuldal. 3) TJr Kerl- ingafjöllum austur að Hofsjökli og niður með Þjórsá niður í Þjórsárdal. 4) Af Kaldadalsvegi austur að Haga- vatni. 5) Fjallabaksleiðina frá Land- mannalaugum suður að Búlandi í Skaptártungum. 6) Yfir Ödáða- hraun. Það er naumast hægt að nefna þann stað á landinu, sem Páll hef- ur ekki komið í. Ef maður sýnir hon- um myndir úr óbyggðum, þá kann- ast hann strax við sig. Maður getur til dæmis reynt að sýna honum myndir teknar i allar höfuðáttir ein- hversstaðar á Sprengisandi, og ef hann þekkir ekki strax umhverfið, þá má ganga út frá þvi sem nokk- urnveginn vísu, að myndatökumað- urinn hafi skotið beint upp í himin- inn. Þegar VIKAN var að taka saman efnið í þessa grein, viðaði hún að sér talsverðu af myndum, meðal annars mörgum, sem Páll á sjálfur. Hann gerði blaðinu þann greiða að „fara yfir“ myndirnar og lýsa þeim í aðal- atriðum, og þegar því var lokið, hafði blaðamaðurinn það á tilfinn- ingunni, að nú fyrst hefði hann séð tæmandi myndabók af Islandi. Mynd- irnar hérna til Aægri eru úr þeirri ,,bók“. Helst hefðum við viljað birta þær allar. En þar sem jafnvel allt blaðið tæki ekki við svo umfangs- miklu efni, verðum við að láta það nægja að segja lesendunum frá því, að auk allra fjallanna og fljótanna, sem þar er að sjá, eru líka prýðileg- ar myndir af þjóðkunnum mönnum, sem myndatökumanninum hefur tekist að tæla inn í mitt Island. Davíð Stefánsson skáld er til dæm- is þama, en hann var með í fyrstu bílferðinni yfir Ódáðahraun fyrir átta árum. Páll stjórnaði þeirri ferð, en auk hans og Davíðs voru þeir með í henni Trausti Einarsson próf- essor, Knútur Ottested rafmagns- fræðingur, Helgi Indriðason rafvirki og Kristján Rögnvaldsson garð- yrkjumaður. Þetta var í júlí 1945. Það var lagt upp frá Akureyri um kvöld og ekið að Sellandaf jalli suður af Mývatnssveit. Næsta dag var far- ið í Suðurárbotna og Dyngjufjalla- dal, suður fyrir Dyngjufjöll og undir Vatnajökul og norður að Herðubreið. Þetta var fimm daga ferðalag, og auk ofangreindra staða komið í Herðubreiðarlindar og niður i Graf- arlönd. Sumsstaðar var „skotfæri", annarsstaðar eintómt grjót. Ferða- langarnir voru fjóra tíma að koma bíl sínum sex kílómetra leið yfir hraunið austan Herðubreiðar. Og eina kvísl, sem fellur úr Jökulsá, máttu þeir stífla með einum tólf tonnum af grjóti, áður en þeir kæmust yfir Lindaá niður I Grafarlönd. Páll byrjaði að ferðast fyrir alvöru 1941, þegar hann fór fótgangandi við fjórða mann yfir Ódáðahraun. Síðan má heita að hann hafi stöð- ugt verið að ferðast. Þrjár konur tóku þátt í þessari gönguferð, þæi' Theresia Guðmundsson veðurstofu- stjóri, Ölina Jónsdóttir og Sigríður Guðmimdsdóttir. Ferðalangarnir fóru í bíl í Herðu- breiðarlindar, gengu suður I Öskju (14 tíma gangur) og þaðan vestur yfir Ódáðahraun að Svartárkoti í Bárðardal. Yfir hraunið fóru göngu- garparnir í tveimur áföngum, en gönguferðin öll tók þrjá daga. Hver leiðangursmanna bar 40 punda bagga á bakinu, en Páll segir, að þeir hafi „vanist þessu“, og svo sé auk þess auðveldara að bera svona byrði til dæmis í þúsund metra hæð en niðri á jafnsléttu. Það skal tékið fram, að kvenfólkið stóð sig engu verr með sina bagga heldur en karlmennirnir. Eftir þetta rak hvert ferðalagið annað hjá Páli, þó að ekki væru þau þá beinlínis orðin atvinna hans, eins og núna. 1942 fer hann við þriðja mann á hestum frá Álfhólsstöðum í Þjórsárdal norður yfir Sprengisand til Akureyrar. 1 sambandi við ferð- ina tókst Páli að skjótast í 35 tíma Framhald á bls. 4. Við Öskjúvatn .1952. Þetta er inni í miðju Islandi, rösklega 1000 metra yfir sjávarfleti. Vatnið er 150 metra djtípt. Þor- steinn Jósepsson tók myndina, sem og lúnar tvœr hér fyrir neðan. Myndin niðri i liominu er líka tekin við vatnið og er af Páli Arasyni. Hann heldur á glerliylki, sem geymt er í vörðu þarna og í er skrautlegur dúkur til minningar um þýzkan mann, sem týndist á þessum slóðum. I Herðubreiðarlindum. Herðubreið er í baksýn. Þegar myndin er tekin, var þarna á ferðinni l.'i manna liópur, þar af sjö útlendingar. Þeir em undantekningarlaust stórlirifnir af hinni hrikalegu og fjölbreytilegu íslenzku náttúru. í Brandsgili við Landmannalaugar. Myndin tekin undir ts- spöng. Þessi staður er skammt frá þeim, sem sýndur er á forsíðunni. Á lienni er Bláhnúkur í baksýn. Þarna eru heitar laugar og prýðisgóð sundlaug. 3

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.