Vikan


Vikan - 29.10.1953, Blaðsíða 11

Vikan - 29.10.1953, Blaðsíða 11
Réttvísin gegn Bywaters og Edith Thompson — V||| TiKÍuKÍhttikiri Réttarhöldin voru byrjuð í máli Bywat- ers og Edith Thompson. 1 ákæruskjalinu stóð, að þau hefðu myrt mann hennar, Percy Thomp- son. Verjandi Bywaters var búinn að flytja varnarræðu sína: hann neitaði því að vísu ekki, að hinn tvítugi sjómaður hefði drepið Thomp- son með hníf sínum, en hann hélt því fram fyrir hönd skjólstæðings síns, að hér hefði verið um sjálfsvörn að ræða. Hann bað kviðdóminn líka að minnast æsku sakborningsins og æðrulausrar fram- komu hans í réttinum. Og umfram allt bað hann kviðdómendurna að líta ekki á Bywaters sem ótíndan launmorðingja. Verjandinn gerði sér enga von um sýkn- un; það eina, sem hann gat gert, var að berjast fyrir því, að sjómaðurinn yrði ekki dæmdur til dauða. Mál Edith Thomp- son, ástmeyjar Bywaters, horfði allt öðruvísi við. Það var viðurkennt af öll- um, að hún hefði ekki framið sjálft morðið. Hinsvegar fullyrti ákærandinn, að hún væri að minnstakosti samsek elskanda sínum, og hann lét liggja að því, að hún hefði brýnt hann til að drýgja glæpinn. Því til sönnunar lagði hann fram fjöldal bréfa frá henni til By- waters, þar sem ýmsar setning- ar (sagði ákær- andinn) bentu ótvírætt til þess, að jafnvel hún sjálf hefði reynt að drepa mann- inn sinn með eitri. CURTIS-BENNETT, verjandi Edith, hafði ekki lokið varnarræðu sinni þegar rétti var frest- að fram á mánudag. Það iikaði honum ágætlega. Hann fékk þannig tækifæri til að ávarpa kvið- dómendurna tvisvar, en hann var sannfærður um, að örlög Edith Thompson væru undir því komin, hvaða áhrif ræðan hefði á kviðdóminn. Þar gat raunar Edith sjálfri sér um kennt. Curtis-Bennett hafði tjáð henni þegar I byrjun réttarhaldanna, að hann teldi litla hættu á, að hún fengi þungan dóm. Aðeins óskaði hann eftir því, að hún bæri ekki sjálf vitni í máli sinu. En þá brá svo kynlega við, að hún hafði heilræði hans að engu; þvert á móti krafðist hún þess að fá að bera vitni. Árangurinn var vægast sagt voðaiegur. Ákærandinn lék sér að henni eins og köttur að mús: þegar hún yfirgaf vitnastúkuna, leit mál hennar allt mun verr út en áður. Curtis-Bennett lagði á það alla áherzlu í fyrri hluta varnarræðu sinnar, að hér væri ekki á ferðinni nein venjuleg kona. Hann minnti kvið- dómendurna á hve ríku hugmyndaflugi hún væri gædd, og þann sið hennar, að „lifa sig inn í“ reyfarana, sem hún las. Hún var rómantísk og draumlynd konaj, sem jlifði í gerfiheimi, sem hún bjó sér til sjálf. Hálft líf hennar var einn endalaus dagdraumur, þar sem hún var aðal- persónan. Þegar Curtis-Bennett tók aftur til máls á mánudag, var ekki á honum að sjá, að hann bæri neinn kvíðboga fyrir málalokum. Þó var þessi lögfræðingur allt annað en ánægður með framvindu málsins. Álmenningsálitið var mjög andsnúið skjólstæðingi hans. Dómarinn hafði greinilega megnustu óbeit á báðum sakborning- unum. Og kviðdómendurnir ? Gat hjá því farið, að þeir væru svipáðs sinnis? En Curtis-Bennett vissi, að einasta vonin var að berjast til þrautar. tjr því sem komið var, var hann sá eini, sem bjargað gæti Edith Thomp- son frá hengingu. Það er að segja, ef nokkur gæti það þá. Hann vék enn að bréfunum margumtöluðu, þessum ástarbréfum, sem lögreglan hafði fundið i fórum Bywaters og sem ákærandinn fyrst og fremst byggði á þá kröfu sína, að Edith Thomp- son yrði send í gálgann. Hann sagði meðal ann- ars: „Ég kem nú að bréfinu, sem sagt er að frú Thompson hafi skrifað 2. október. Þetta bréf ætti að afsanna algerlega þá fullyrðingu, að frú Thompson og Bywaters hafi verið búin að koma sér saman um það fyrir 3. október að myrða mann hennar. Það er ákaflega mikilvægt að líta á þetta bréf, sem frú Thomþson skrifaði Bywaters aðeins einum degi áður en hinn voða- legi atburður átti sér stað. Minn ástkœri vinur, þalcka þér, þakka þér, ó þakka þér þúsund sinnum fyrir föstudag- inn — það var dásamlegt — það er alltaf dásamlegt að fara með þér út . . . Og allt laugardagskvöldið hugsaði ég um þig . . . Ég reyndi svo mikið að komast út í kvöld, ástin mín, en hann var tortrygginn og er það enn. Við verðum víst að lialda þessu laumuspili áfram eittlivað lengur . . . Pen- ingalaus getum við ekkert gert.“ Curtis-Bennett spurði kviðdómendurna: „Get- ur ákæruvaldið haldið því fram, að þetta bréf, sem skrifað er 2. október, bendi til þess, að umræddar tvær manneskjur hafi ákveðið að fremja morð daginn eftir, eða daginn þar á eftir, eða í næstu viku? 2. október segir þessi kona: Okkur vantar peninga, og þar til við höfum peninga, getum við ekkert gert. Ekki þurftu þau á peningum að halda til þess að drýgja morð. En ef þau ættu að geta búið sam- an, urðu þau að hafa peninga. Frú Thompson sagði alltaf, að ef hún ætti að flytjast frá manninum sínum og taka saman við Bywaters, þá yrði hún að segja upp vinnunni. 1 einu bréfa sinna segir hún: „Ástin mín, útvegaðu mér vinnu utanlands. Ákæruvaldið svarar: Morð- ingi!" Nú sneri Curtis-Bennett sér að síðasta bréfinu, sem Edith ritaði Bywaters. 1 því stóð meðal ann- ars: „Gleymdu því ekki, sem við töluðum um í veitingahúsinu. Ég skal taka á mig áhættuna og reyna ef þú vilt . . .“ Hvernig var nú hægt, spurði Curtis-Bennett, að halda þvi fram í blá- kaldri alvöru, að þessi setning gæti aðeins þýtt eitt, nefnilega að í umtöluðu veitingahúsi hefðu verið lögð á ráðin um að myrða Percy Thomp- son ? Þó hefði ákærandinn einmitt gert það. HÍnsvegar hefði honum láðst að vekja athygli á þvi, að síðar í bréfinu minnti Edith elskhuga sinn á, að þau þyrftu aðeins að bíða í fjögur ár ennþá. Hvernig má þetta tvennt fara saman, spurði Curtis-Bennett. Hvernig er hægt að segja, að þessi kona hafi verið að undirbúa morð, þegar hún um leið er að hvetja elskhuga sinn til að sýna þolinmæði ? Curtis-Bennett vék nú máli sínu að morðkvöld- inu. Hann mótmælti þvi harðlega, að hér hefði verið um að ræða manndráp að yfirlögðu ráði. „Bywaters segist sjálfur hafa framið verknað- inn, og í sjálfsvörn. Hann hafði ekki minnstu hugmynd um að þetta mundi ske. Það er vegna þess, sem í bréfunum stendur, að frú Thompson er hingað komin ákærð fyrir morð. En öll fram- koma hennar umrætt kvöld sýnir, að hún varð skelfingu lostin þegar hún uppgötvaði, að mað- urinn hennar hafði verið drepinn . . . „Eg geri ráð fyrir, að ákæruvaldið vilji halda því fram, að þegar frú Thompson var á leiðinni heim með manni sínum, hafi hún vitað, að á hann yrði ráðist og hann myrtur . . . Ákærand- inn fullyrti, að atburðurinn hefði átt sér stað þar í götunni sem myrkrið var mest. Sannleik- urinn er hinsvegar sá, að þarna var engu meira myrkur en annarsstaðar. Eins og vera bar, gengu Thompson-hjónin þá leið, sem var styttst. Edith Thompson tældi engan veginn manninn sinn inn í skuggalegt sund, þar sem hægt yrði að myrða hann. Og nú vil ég biðja kviðdóminn að líta andartak á þá hlið málsins, sem að Bywaters snýr. Ætlaði hann að fremja morð ? Hann heim- sótti Greydon-hjónin þetta kvöld . . . og það síðasta, sem hann gerði, var að bjóða dóttur þeirra í bió daginn eftir. Getið þið gengið fram- hjá þessari staðreynd og haft hana að engu, en treyst að öllu leyti á þessi „voðalegu bréf“? Hvar eru sönnunargögnin fyrir þvi, að hér hafi verið um samsæri að ræða og að Edith Thomp- son hafi hjálpað til við að undirbúa það, sem skeði ?“ Nú væri því að vísu ekki að neita, játaði Curtis- Bennett, að bæði Edith Thompson og Bywaters hefðu í fyrstu sagt ósatt frá atburðum. En hver, spurði hann, hefði ekki gert það í þeirra sporum? Og væri þeim ekki nokkur vorkunn, ef þau hefðu með því viljað vernda hvort annað? Curtis-Bennett lauk ræðu sinni með því að biðja kviðdómendurna að afsaka það, hve hún hefði verið löng. „En naumast getið þið talið eftir nokkrar klukkustundir til eða frá . . . Og eitt veit ég: dómur ykkar mun verða á þá leið, að frú Thompson sé ekki sek." Nú var röðin komin að ákæruváldinu. Hinn 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.