Vikan - 21.04.1955, Blaðsíða 13
— En í guðs bænum —r hvers vegna?
— Ökumaðurinn ætlar að drepa mig — og ég ætla að drepa hann.
Nú er hann á leiðinni upp í stúku númer fjörutíu og fimm! Skiljið þér
það ekki ?
— Jú, með nýjan hóp aðstoðarmanna. Hann hefur verið búinn að
borga öllum þessum ágætu íþróttamönnum fyrirfram.
— Já, og hvað um það?
— Þér hafið haft við íjöldanum einu sinni, sagði Alvanley lágt. —
Þér getið ekki endurtekið sömu aðferðina. 1 þetta sinn munu þeir loka
yður inni í einhverju horni, svo að þér getið ekki notað rýtinginn -— og
þá er öllu lokið.
— Viljið þér samt sem áður hjálpa mér upp?
— Nei, ég held að hann vilji það alls ekki, sagði ókunn rödd fyrir
aftan þá.
Langir, sterkir fingur gripu um vinstri handlegg Darwents. Höfuð Neds
Firebrace skagaði upp yfir mannfjöldann. Hann glotti. Á sinn hátt Var
Ned Firebrace jafn ósigrandi og Jack Buckstone.
— Ég býst við að þér séuð Darwent lávarður, sagði Firebrace. — Og
ef svo er, sleppið þér ekki fyrr en við höfum talazt við.
Darwent, sem hafði enga hugmynd um hver maðurinn var, virti hann
fyrir sér háðslega.
— Framkoma yðar er nokkuð frekjuleg, herra minn, sagði Darwent
rólega og henti innihaldi dósarinnar beint framan í Firebrace.
1 sömu andrá greip einhver miðaldra maður, sem varla vissi hvers
vegna eða við hvern hann vaV að slást, urn háls Firebrace. Með þeim
hófust ryskingar og fyrr en varði voru þeir horfnir í mannfjöldann.
— Ætlið þér að lijálpa mér upp?
- Jæja, andvarpaði Alvanley, sem fannst hann vera búinn að sjá nóg
þetta kvöld. — Komið þá!
Erfiðast var að komast upp á axlir Alvanleys án þess að missa
jafnvægið, því að nú gerðu áhorfendurnir sem eftir voru fyrir alvöru
tilraun til að komast út.
Darwent tókst það þó eftir nokkrar tilraunir. Han gat náð í brún-
ina á svölunum fyrir ofan sig og klifraði síðan upp.
18. KAFLI.
Caroline í þiljaða herberginu.
Caroline barst áfram með mannfjöldanum, hálflömuð af hræðslu vegna
örlaga Darwents. Fjöldinn dreifðist þegar út á Crabournestræti kom.
Hestarnir runnu til í forinni á götunni, blysin blöktu og spilað var á
lírukassa án afláts.
— Hvar er hann? hélt hún áfram að spyrja ókunnugt fólk, en eng-
inn virti hana svars.
Það brakaði og brast í einum glugganum fyrir ofan og dökk vera
steyptist niður. Blysberarnir hópuðust saman og ýttu mannfjöldanum
til hiiðar. Það var sem hjarta Caroline hætti að slá.
— Þetta var bara einn af boxurunum, rekinn i gegn! hrópaði einhver.
Caroline var utan við sig af hræðslu. Fólkið úti á götunni hrópaði
húrra, þegar sveit hermanna ruddist inn í óperuna, til að stöðva óeirð-
.irnar, með aðstoð manna úr Bow Street í rauðum vestum og yfirfrökk-
um með gríðarstórum vösum.
Hver mínútan leið af annarri, vagnar óku fram og nöfn eigenda þeirra
voru kölluð iipp. Caroline fékk ekkert svar fyrr en hún gat náð í sótara-
lærling, stungið pening í lófa hans og spurt hann.
— Ólætin þarna uppi, ungfrú? Allt um garð gengið!
— Um garð gengið?
- Þér getið bölvað yður upp á það, að Dai-went sá um það, sagði
drengurinn stoltur, eins og hann hefði sjálfur afrekað það. — Hann og
góði, gamli Will Alvanley. Þeir ráku þorparana á flótta eins og brennda
ketti!
En, Darwent lávarður — hefur þá ekkert kornið fyrir hann?
— Hann? Nei, góða mín •— farið bara heím og verið alveg rólegar.
Há og hvell rödd heyrðist kalla:
— Vagn Darwents markgreifa!
Þegar Caroline hafði verið hjálpað upp í vagninn, hallaði hún sér
aftur á bak í sætinu, úrvinda af þreytu. Það hvein í svipu Patricks og
vagninn rann burt frá óperunni.
Nú var allt um garð gengið. Darwent var úr allri hættu.
Til allrar hamingju fyrir Caroline hafði hún ekki heyrt, eð enn voru
óeiðrirnar i fullum gangi og að nokkrum mínútum áður en hún ók af
stað kom slys fyrir.
Framhald á bls. 15.
Undirritaður óskar eftir að gerast áskrifandi
að VIKUNNI
Nafn ................................
..=::.....:::::
VIKllNNAK H.F., Keykjavík.
fiMtr'
býÖW1
Til þess að vernda húð yðar ættuð
bér oð verja nokkrum minútum ó
nveriu kvöldi til að snyrta andlit
yixrc.' hendur meó Niveo-kremi.
3Ó hressir, styrkir og sléttir ondlitshúðina og hendurnor
erða mjúkar og fallegar. Niveo-krem hefir inni að
halda euzerit, sem er skylt eðlilegri húðfitu. Þes vegna
gengur það djúpt inn i húðina, og hefir óhrif lanqt
inn fyrir yfrborð hörundsins. Þess vegna er Nivea-
krem svo gott fyrir húðina.
KC \Tt
Bif reiðar
Höfum ávallt til sölu flestar teg-
undir bifreiða. — Tökum einnig
bifreiðir í umboðssölu.
Gjörið svo vel að líta til okkar, ef
þér þurfið að kaupa eða selja bif-
reið.
BÍLASALAN
Klapparstíg 37
SÍMI 82032.
13