Vikan - 21.04.1955, Blaðsíða 14
Aftaka klukkan átta
Framhald af bls. 5.
út úr kirkjunni klukkan 15 mínútur yfir þrjú,
eins og hann væri veikur. Hann dó tveimur
dögum seinna. Hann hlýtur af einhverjum
ástæðum að hafa opnað dyrnar, og síðan orðið
veikur og gleymt að læsa þeim aftur.
Presturinn var orðinn náfölur. Hann starði
á fætur Milhecks og varir hans fóru að titra.
Svo kallaði hann með hásri röddu til varð-
anna: — Hleypið mér héðan út! 1 guðs bænum,
hleypið mér út!
KLUKHUNA vantaði 10 mínútur í átta,
þegar barið var á klefadyrnar. Robson
lagði hendina hughreystandi á öxl fang-
ans, sem sagði: Þakka yður fyrir. Ég er til-
búinn.
Robson opnaði hurðina. 1 dyrunum stóð
fangelsisstjórinn ásamt prestinum. — Ég var
að tala við dómsmálaráðherrann, sagði hann.
— Aftökunni verður frestað — að minnsta
kosti. Útskýrið það fyrir honum, faðir.
Presturinn hló og grét í einu. — Þér sögðuð
satt, Milbeck. Við getum sannað það. Mér
datt það allt í einu í hug þegar ég var hérna
inni hjá yður. Ég hef farið upp í turninn einu
sinni eða tvisvar. Það var þykkt ryklag í
stiganum. Ef þér væruð að segja satt, vissi ég
að fótsporin yðar mundu sjást í rykinu. Ég
hringdi til kirkjuvarðarins í St. Stefánskirkj-
unni og bað hann um áð hlaupa strax út í
kirkjuna og athuga það. Ég beið í sjö mínút-
ur í símanum, áður en ég fékk að vita, að
það væru fótspor í rykinu alla leiðina upp. Og
þó það hafi fallið ryk í þau síðan, er hægt að
sjá, að þau eru eftir skó með hrágúmmísólum,
eins og þá sem þér eruð í. Hann spennti greip-
ar. — Guð, ég þakka þér!
Svör við „Veiztu — ?“ á bls. 5:
1. Ameríski kvikmyndaleikarinn Ray Milland.
2. Sigyn.
3. Circus Maximus og Coliseum.
4. ' Nei, höfundurinn er amerískur rithöfundur,
þremur árum eldri en stjórnmálamaðurinn.
5. Norður af Siglunesi.
6. Árið 79 eftir Krists burð.
7. Við þessar götur eru stjórnarráðsskrifstofur
a) Frakka b) Englendinga c) Þjóðverja.
8. Mátulega hratt.
9. 12 km. (Frá Lækjartorgi).
10. Rokkur. 1
KONA í kulda og myrkri
Framhald af bls. 7.
Bók Christiane Ritter er fögur
og hrífandi, þrátt fyrir myrkrið
og kuldann. Maður dáist að kjarki
og seiglu þessarar ungu konu.
Hún lagði á sig ótrúlegt erfiði, til
þess að geta verið í návist manns-
ins, sem hún elskaði. En hann átti
aðra unnustu, sem hún fékk ekki
sigrað — hina hvítu, stálhörðu
jörð á hjara veraldar.
Dingullinn
Framhald af bls. 11.
sér út í hringiðu glaðværðarinnar, jafn
frjálslega og kátur piparsveinn. Hann gæti
setið að drykkju, reikað um og skemmt
sér fram undir morgun, ef hann vildi; og
engin reið Katy mundi bíða hans, með
kaleikinn með dreggjunum af ánægjunni
í hendinni. Hann gæti spilað við svall-
félaga sína hjá McCloskey, þangað til
morgunroðinn drægi úr birtu rafljósanna,
ef hann vildi. Hjúskaparhlekkirnir, sem
höfðu hvílt þungt á honum, þegar hann
var þreyttur á íbúðinni í Frogmoreleigu-
húsinu, höfðu nú losnað. Katy var farin.
John Perkins var ekki vanur að kryfja
tilfinningar sínar til mergjar. En þegar
hann sat þarna í Katyarlausri litlu stof-
imni, fann hann hiklaust lykilinn að ó-
þægindum sínum. Hann vissi núna, að
Katy var nauðsynleg til að gera hann ham-
ingjusaman. Tilfinningar hans í hennar
garð, sem hið tilbreytingarlausa hvers-
dagslíf hafði svæft, höfðu nú vaknað
harkalega við fjarveru hennar. Hefur því
ejíki verið barið inn í okkur með málshátt-
um, predikunum og dæmisögum, að við
kunnum aldrei að meta sönginn, fyrr en
yndislegi söngfuglinn er floginn — eða þá
með hversdagslegu en sönnu orðalagi?
— Ég er bansettur svíðingur, hugsaði
John Perkins. — Hvernig ég hef komið
fram við Katy! Ég hef spilað á hverju
kvöldi ög flækzt með strákunum, í stað
þess að sitja heima hjá henni. Veslings
stúlkan hefur verið hér alein, án þess að
hafa nokkuð til að stytta sér stundir við,
og ég hefi hegðað mér svona. John Perkins,
þú ert mesti þorpari. Ég ætla að bæta litlu
stúlkunni minni þetta upp. Ég ætla að
bjóða henni út og leyfa henni að skemmta
sér. Og upp frá þessari stundu, er ég 'hætt-
ur að umgangast strákana hjá McCloskey.
Já, úti fyrir kallaði borgin á John Perk-
ins, og bauð honum að koma og dansa í
fylkingu skemmtiguðsins. Og hjá McClosk-
ey slógu piltarnir kúlurnar kæruleysis-
lega ofan í pokana, eins og venjulega á
kvöldin. En hvorki blómum stráð braut né
smellir stangar við kúlur gátu rekið sökn-
uðinn úr hinni hryggu sál Perkins. Eign
hans, sem hann hafði haldið laust í og að
nokkru leyti forsmáð, hafði verið tekin
frá honum og hann saknaði hennar. í
hryggð sinni gat Perkins rakið uppruna
sinn aftur til manns að nafni Adam, sem
englarnir ráku úr aldingarðinum.
Hægra megin við John Perkins stóð stóll.
Á baki hans hékk bláa blússan hennar
Katyar. Ennþá vottaði fyrir lagi hennar.
Á miðjum ermunum voru fíngerðar, per-
sónulegar hrukkur, sem höfðu myndast
í olnbogabótunum þegar hún var að vinna
að einhverju til að gera honum lífið þægi-
legra og skemmtilegra. Af henni lagði
daufan en ásækinn bláklukkuilm. John tók
hana upp og horfði lengi og stillilega á
þetta samúðarsnauða fat. Katy var aldrei
samúðarsnauð. Tár — já, tár — komu í
augu John Perkins. Þegar hún kæmi aft-
ur, skyldi allt verða öðruvísi. Hann ætlaði
að bæta fyrir vanrækslu sína. Hvað var
lífið án hennar?
Hurðin var opnuð. Katy gekk inn með
litla handtösku í hendinni. John starði
agndofa á hana.
— En hvað ég er fegin að vera komin
aftur, sagði Katy. — Mamma var ekkert
að ráði veik. Sam tók á móti mér á stöð-
inni og sagði, að hún hefði aðeins fengið
dálítið kast, en það hefði lagast strax
eftir að þau sendu skeytið. Svo ég sneri
við með næstu lest. Ég er svo sannarlega
þurfandi fyrir kaffibolla.
Enginn heyrði smellina og skröltið í
tannhjólunum, þegar íbúðin á framhlið-
inni í Frogmoreleiguhúsinu stillti vélar
sínar aftur á venjulegan gang. Bandi var
smeygt af, þrýst á fjöður, skipt um gír
og hjólin gengu aftur eftir sinni gömlu
braut.
John Perkins leit á klukkuna. Hún var
15 mínútur yfir átta. Hann teygði sig
eftir hattinum sínum og gekk fram að dyr-
unum.
— Hvert ertu nú að fara? Það þætti
mér gaman að vita, John Perkins? sagði
Katy í nöldurtón.
— Mér datt í hug að líta inn hjá Mc-
Closkey og spila eitt eða tvö kúluspil með
strákunum.
758. KROSSGÁTA VIKUNNAR
Lárétt skýring:
1 hestur — 3 glöggur —■ 9 fjölda — 12 tveir
samstæðir — 13 kvenmaður — 14 kvenmanns-
nafn —16 limur — 17 ungviði —• 20 i útistöðum
— 22 tímabil — 23 möguleikar — 25 vindur —
26 stjórn —- 27 óvissa — 29 steinefni —- 31 tölu
— 32 sjór — 33 tunga — 35 úrgangur — 37
sagnmynd — 38 ásóknin (i karlmenn) — 40
bókstafur — 41 tafl — 42 húsdýr — 44 hljóð —
45 ekki ófáir — 46 blikna — 49 áflog — 51
forsetning -— 53 utan við sig — 54 einkennisstafir
— 55' vot — 57 málmur — 58 óðagot — 59 spil
— 60 ungviði — 62 kaldur — 64 forðageymsla
— 66 flokkur — 68b stilltur —- 69 dýrahljóð —
71 menntasetur — 74 flík — 76 húsdýr — 77
spýtu — 79 vagn — 80 eldsneyti — 81 máttur
■— 82 fjarstæðukennd — 83 tryllt.
Lóðrétt skýring:
1 skáldkonunafn — 2 sjá — 3 jörð — 4 sár —
5 frumefni — 6 hætta — 7 sælgætis — 8 ein —
10 kyn — 11 þraut — 13 óvild — 15 ræktað land
— 18 dreytill — 19 vanin — 21 alda — 23 ljúka
— 24 gefa frá sér hljóð — 26 for — 27 óþokkarn-
ir — 28 ræningi — 30 blástur — 31 smíðaður
— 32 holt — 34 mjúk — 36 einráða — 38 fugl
— 39 áhald — 41 muna — 43 tré — 47 farða
— 48 mannsnafn — 49 karldýr — 50 nokkur —
52 samneyti — 54 gangskiptir — 56 drykkur —
59 þýðanda — 61 skaut — 63 skaut ■— 64 rönd
— 65 úrgangur — 68 rifa •— 69 húsdýr — 70.
frumefni — 72 búngu — 73 þrír eins — 74 upp-
hrópun — 75 hljóð — 78 bókstafur — 79 tónn.
Lausn á krossgátu nr. 757.
Lárétt: 1 emm — 4 hlekkur — 10 ham — 13
taug — 15 orrar — 16 mala — 17 Arnes -— 19
R. A. F. — 20 sægur — 21 ratað — 23 metur —
25 Rauðskinnar — 29 ks. — 31 ðð — 32 áin —
33 dr. — 34 la — 35 Eva — 37 Sem — 39 ami
— 41 eir — 42 kinoki — 43 óbermi — 44 inn —
45 iða — 47 sko — 48 ris — 49 nn — 50 nn —
51 Rín — 53 ðe — 55 re — 56 mannfræðing -—
60 hótir — 61 engar —• 63 rotið — 64 bar —
66 nitin — 68 ópin — 69 rónar — 71 naga — 72
tað — 73 sindrar — 74 nam.
Lóðrétt: 1 eta — 2 marr — 3 munar -— 5 io.
— 6 err — 7 krakki — 8 kaf — 9 ur — 10 hagur
— 11 alur — 12 mar — 14 getað — 16 mætar
— 18 sauðskinnið — 20 sendiboðinn — 22 ðð
— 23 mn — 24 skekinn — 26 Sám — 27 ina —
28 Farisei — 30 svinn — 34 limir — 36 ann —
38 eið — 40 mók — 41 err — 46 arf -—- 47 snæ
— 50 natin — 52 Irland — 54 engin — 56 mótið
— 57 nr. -— 58 ðe — 59 gatan — 60 hopa —
62 Riga — 63 rót — 64 bón — 65 rar — 67 nam
— 69 ri — 70 ra.
Odýrt vín
— Kæri kennari, skrifaði móðir eins
drengsins í bekknum. — Gerið það fyrir
mig, að láta Tomma ekki fá fleiri dæmi
með wiskyflöskum, sem kosta 50 krónur.
Það heldur vöku fyrir föður hans á hverri
nóttu.
14