Vikan - 22.09.1955, Side 15
reiknaði með, að hún væri komin í sjó-
inn.
Við geystumst áfram eins og hraðskreið
seglskúta. Ég held, að Karlinn hafi verið
í sjöunda himni yfir að hafa reglulega
góða afsökun fyrir að berjast á móti veðr-
inu. Það fannst honum dásamlegt.
Ég fékk samþykki hans til að senda út
almennt kall, og tilkynna öllum skipum
um slysið og að við værum á leiðinni til
hjálpar. En þó að ég fengi svar frá loft-
skeytastöðinni í Aden, sem fullvissaði mig
um að hún mundi sjá um að alger þögn
ríkti á meðan, þá var greinilegt, að eng-
inn annar var staddur nægilega nærri, til
að geta orðið að nokkru liði.
Ég ætla ekki að fara út í smáatriðin í
sambandi við það, hvemg við fundum
flugvélina, skutum út öðrum bátnum, sem
eftir var, og náðum fólkinu. Ég er ekki
fær um að lýsa því nákvæmlega, en ég
veit að Halloran þurfti að beita afbragðs
skipstjórn til að geta látið Samaröndu
veita skjól, og að Saville fyrsti stýrimað-
ur, sem stjórnaði bátnum, sýndi óvenju
mikla dómgreind. Ég var í loftskeytaklef-
anum næstum allan tímann og sá því ekki
sjálfur mikið af björgunarafrekinu, en eins
og þið getið ímyndað ykkur, þá töluðum
við um fátt annað alla leiðina heim. Gamli
maðurinn, sem var í rauninni ágætis karl,
hlýtur að hafa skilið, að mig dauðlangaði
til að vita, hvað var að gerast, því þegar
dró að leikslokum kallaði hann í talpíp-
una og sagði, að nú væri báturinn að
koma til baka og að ég skyldi fara upp
í brú og litast um.
Ég sá ekki annað af flugvélinni en ann-
an vænginn, hluta af grindinni og stélið,
sem stóð beint upp í loftið. Áhöfninni
hafði sýnilega tekizt að komast út í einn
af þessum útblásnu gúmmíbátum — hann
vaggaði enn á öldunum — en Saville var
búinn að flytja bæði farþega og flugmenn
yfir í björgunarbátinn, og þegar ég kom
upp í brúna, var næstum hver maður um
borð að hjálpa þeim upp í skipið. Ég held,
að brytinn og kokkurinn hafi verið að
hita kakó og taka til ullarteppi, alveg
frá því að ég heyrði kallið.
Einn af áhöfninni, sem við gizkuðum
réttilega á að væri flugstjórinn, kom
beint. upp í brúna til Hallorans skipstjóra.
— Þakka þér fyrir, skipstjóri, sagði
hann einfaldlega. — Við hefðum ekki
haldið þetta út mikið lengur, ef þið hefð-
uð ekki átt leið hér um. Það er heppni,
sem ég mun aldrei gleyma, að þið skyld-
uð vera á þessari leið og stefna svona beint
á okkur.
— Heppni! öskraði skipstjórinn. -—
Heppni, fjandinn hafi það. Þetta er stefn-
an, sem Sparks fékk frá ykkur gegnum
loftskeytatækið, svo að það var auðvitað
stefnan sem ég tók.
Flugmaðurinn horfði þegjandi á okkur
svolitla stund. Svo sagði hann kyrrlátlega.
— Loftskeytamaðurinn minn var drepinn,
þegar hann var að reyna að gera við loft-
netið. Við sendmn eltkert kall frá okkur.
BRÉFASAMBÖND
Birting á nafni, alciri og lieimilisfangi kostar 5 krónur.
Sólveig Vagnsdóttir og Aðalheiður Vagnsdóttir
(við pilta 18—21 árs) báðar á Álftamýri, Arn-
arfirði — Skúli Á. S. Guðmundsson (við stúlk-
ur 17—19 ára) Hafnarstr. 35, Akureyri — Einar
Örn Gunnarsson (við stúlkur 15—17 ára), Rauðu-
mýri 18, Akureyri — Guðrún Þ. Sigurðardóttir
og Elísabet Hildur Markúsdóttir (við pilta 19—
23 ára) og Kristmunda Þóra Sigurðardóttir (við
pilta 18—22 ára), allar á Glitrandastöðum, Stað-
arsveit, Snæf. — Ásta Sigurbjörnsdóttir, Þóra
Björnsdóttir og Hólmfríður Jónsdóttir (við pilta
20—25 ára), allar á Kristneshæli, Eyjafirði. —■:
Erna Gunnars (við pilta 16—20 ára) og Guðný
Gunnars (við pilta 15—18 ára), báðar að Ból-
stað,A.-Landeyjum, Rang. — Ingibjörg M. Björg-
vinsdóttir (við stúlkur eða pilta 13—15 ára)
Stykkishólmi — Sigríður Helgadóttir (við pilta
og stúlkur 19 25 ára), Merkurgötu 2, Hafnar-
firði — Anna Emilsdóttir (við pilta og stúlkur
16—18 ára), Holtastöðum, Langadal, A.-Hún. —
Guðný Steingrímsdóttir (við pilt eða stúlku 18
—19 ára), Hóli, Raufarhöfn — Gunnar Péturs-
son (við stúlkur 17—18 ára), Skriðnafelli, Barða-
strönd.
5TDRKD5TLEGT
Mikki var á gangi með konu sinni, þegar hann
mætti Jóni vini sínum í fylgd með tveimur lög-
regluþjónum.
— Hvert ertu að fara í þessum félagskap, Jón?
spurði hann.
Ég á að fara i fangelsi. Ég skaut konuna
mína og á að sitja inni í sex vikur . . .
— Stórkostlegt! greip Mikki fram í fyrir hon-
um. — Aðeins sex vikur fyrir að skjóta konuna
sína. Maggý, snúðu þér við. Mig hefur lengi lang-
að til að gefa þér svolítið. Mikki dró upp skamm-
byssuna sína og sendi kúlu gegnum höfuðið á
Maggý.
— Og þegar ég verð búinn að sitja í fang-
elsinu í sex vikur, hélt Jón áfram, — þá á ég að
fara i rafmagnsstólinn.
Köldu „Royal“ búðingarnir eru handhægir og
ódýrir. Jafnt ungir sem gamlir njóta þessa
góða eftirmatar og húsmóðurinni léttist vinn-
an — Engin suða.
Agnar Ludvigsson, heildv.
Tryggvagötu 28 — Sími: 2131}
NYKOMIÐ
Gólfteppi
ull, falleg, margar stærðir.
Coeosgólfteppi
falleg og ódýr.
OKKAR VINSÆLU
HOLLENZKU GANGADREGLAR
í 70—90—100—120—140 cm. breidd,
margir mjög smekklegir litir, þekktir um land allt
fyrir sérstaklega góða endingu og mjög fallega áferð.
□
Höfum einnig fengið ágætt úrval af cocos-gólfmott-
um í mörgum stærðum, einlitar og mislitar.
□
Vandaðar vörur.
GEYSIR h.f.
Teppa- og dregladeildin.
Vesturgötu 1.
15