Vikan


Vikan - 26.01.1956, Page 13

Vikan - 26.01.1956, Page 13
Viðskiptavinurinn lagði að því er virtist treglega. frá sér pakkann og fylgdi hon- um inn í hitt herbergið. Hinn tigni gestur lá á gólfinu, þrút- inn í andliti og með augun klemmd sam- an. Annar afgreiðslumaðurinn var búinn að losa flibbann hans, en hinn var önn- um kafinn við að hrúga steinunum aft- ur inn í peningaskápinn. Læknirinn skóðaði sjúklinginn svo fag- lega, að MacFall efaðist um sekt hans, en aðeins andartak. Og þegar læknirinn gaf úrskurð sinn, var hann á varðbergi. — Maðurinn er alvarlega veikur. Það eru sáralítil líkindi til þess að hægt verði að bjarga lífi hans. Hjálpið mér að koma honum út í bílinn minn og hringið svo til St. Bedes sjúkrahússins, deild 3, og segið að við séum á leiðinni. Vesalings Mevagissy var svo niður- beygður yfir þessari ógæfu, sem ekki hafði aðeins hent viðskiptavin hans, held- ur Ííka eyðilagt viðskipti hans sjálfs, að hann ætlaði að fallast umsvifalaust á þetta. En aðstoðarmaður hans hvíslaði því að honum, að Burmarúbíninn, dýrmæt- asti steinninn í safninu, væri enn í kreppt- um hnefa mannsins. Það reyndist óger- legt að opna lófa sjúklingsins, og lækn- irinn var orðinn reiður. — Við getum ekkert við þessu gert, sagði hann. — Sjáið þið ekki að maður- inn er að deyja? Lítið á hann. Ef hann er með eitthvað sem þér eigið, þá getið þér komið með okkur. Flýtið yður bara. Hver mínúta er dýrmæt núna. Mevagissy leit í kringum sig í vandræð- um sínum og lögreglumaðurinn, sem varla gat stillt sig um að brosa, gekk fram. — Ég skal fara! Þrekvaxni maðurinn, sem kallaði sig Dr. Roup, virti hann vandlega fyrir sér og samþykkti það. — Jæja, það er ágætt. Lyftið nú varlega undir herðarnar á sjúklingnum. Já, og vill ekki einhver halda á skiltinu mínu. MacFall varp öndinni feginsamlega. Nú var hans tími kominn. Hann tók pakkann og gekk á eftir sjúklingnum út. I fyrstu hafði hann heppnina með sér. Hann beið þangað til augljóst var orðið, að hvert sem læknirinn var að aka, þá var það ekki til sjúkrahússins. Þá beið hann þangað til vegurinn var auður og beinn, áður en hann gaf sig fram sem lögregluþjón. Hann skip- aði ökumanninum að stanza og þegar því var neitað, hófst hann handa. Hann vfir- bugaði báða mennina, tók af þeim byss- urnar, bjargaði bílnum og ók tilbaka á lögreglustöðina með báða fangana, eins og rjoóur veiðihundur með dauða fugla. Sigri hrósandi svipur hans var það eina, sem hindraði nokkra agndofa yfirlögreglu- þjóna í að segja, að þetta væri lofsverð frammistaða . . . Reiðarslagið dundi yfir morguninn eft- ir, þegar MacFall var kallaður inn i skrifstofu deildarstjóra leynilögreglunn- ar. Hann var svo ánægður með sjálfan sig, að hann gat varla gengið. En deildarstjór- inn tók honum ískyggilega kuldalega og þurrlega. — Þú hefur víst aldrei heyrt minnzt á mann að nafni Elroy Huspratt? spurði hann að lokum. — Þú þarft ekki að svara. Ég sé það á svipnum á þér, að það hljóm- ar eins og gríska í þínum eyrum. Jæja, hann er í fyrsta lagi snjallasti, ósvífnasti og hættulegasti gimsteinaþjófurinn á meginlandi Evrópu. Og í öðru lagi er það einmitt maðurinn, sem öll brezka leyni- lögreglan hefur verið að leita að, síðan fréttir bárust um, að möguleikar væru á því að hann væri á leiðinni hingað til lands. Því miður misstu starfsmenn okkar er- lendis sjónar á honum, þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir. Engum datt í hug að hann mundi sýna þá óskammfeilni að taka á sig gerfi frægs, indversks prins og koma hingað með fylgdarlið. Lögreglufulltrúinn, sem hefur málið með höndum, gerði allt sem í hans valdi stóð. Hann lagði svo fyrir, að allar grun- semdir, hversu smávægilegar sem þær kynnu að vera, sem skartgripasalar eða skartgripir væru viðriðnir, yrðu lagðar fyrir sig. Síðan lét hann halda uppi fyrir- spurnum hjá öllum öðrum merkum skart- gripasölum um það, hvort þeir hefðu orð- Framháld á bls. 18. Hvergi heima ... Framhald af bls. 6. Hún fór upp í rúmið og las nokkrav blaðsíður, en þegar hún leit upp sá hún, að hann stóð enn við gluggann. — Er eitthvað að, Lew? Mér þykir leitt, ef ég hef eyðilagt . . . ,-r- Það er ekki það, sagði hann og kom að rúminu. Hann fitjaði upp á nefið. — Það var dálítið einkennilegt þama við hitt borðið. Ég var mikli maðurinn, sem var að sýna þeim lítillæti. — Þú gerðir það alls ekki þannig. Þú varst eðlilegur og alveg prýðilegur. — Þú veizt hvað ég á við. Ég settist hjá þeim og byrjaði að spyrja hvað hann gerði núna, eins og ég þekkti hann í raun og veru. Þá fóru þau að tala um starf hans, barnið heima og húsið, þar sem hann væri að útbúa leikherbergi í kjallaranum sjálfur. Þú sást konuna hans, heldur daufleg stúlka. Hún lifnaði öll við, þegar hún fór að tala um þetta. Og þá var allt orðið breytt. Ég var ekki leng- ur mikli maðurinn. Ég var eins og nokk- urs konar taminn api. Ég get ekki skýrt þetta. Ég stóð fyrir utan þetta allt og þau voru að segja mér hvernig væri fyrir innan. Það var eins og þau vorkenndu mér eitthvað. Og hver eru þau svo eiginlega? Hvað hefur hann? Eitthvert lítilfjörlegt skrifstofustarf. Ég veit ekki hvernig þetta var, elskan. Ég var að sýna þeim vinsemd og svo var eins og það væru þau, sem væru að vera vin- gjarnleg við mig. Eins og ég hefði svo- sem ekkert til að státa af. Hún ætlaði að fara að svara honum, en ákvað svo að betra væri að segja ekkert í þetta sinn. Hann leit rannsakandi á hana og brosti undarlegu brosi. — Hún minnti mig á þig, elskan, eins og þú varst fyrir nokkrum árum. — Að hvaða leyti? — Ég veit það ekki. Ég get ekki kom- ið orðum að því. Þessi Brennershjón . . . Þau höfðu svo kynleg áhrif á mig. TTANN kom heim á hótelið um klukk- an hálf tólf morguninn eftir. Hún var búin að pakka niður í töskurnar og beið hans. Það var kynlegur sektarsvipur á andliti hans, þegar hann kom inn. — Ertu búinn að fá ferðaáætlunina ? spurði hún. — Kulin sýndi mér tilboðið. Mér geðj- aðist ekki að því. Hann heldur að hann eisri hér í skiptum við einhvern krakka- kjána, býst ég við . . . Málrómur hans var hás og hávær. — En hann kemst ekki upp með neitt þvílíkt. Enda sagði ég honum það. Jóhanna leit rólega á hann. Tólf ár var hún búin að búa með þessum manni. Hún þekkti hann. Hún vissi hvernig hann brást við, ef hann reiddist. Þessi reiði- svipur var uppgerð. Hún fann að hann var að reyna að halda virðingu sinni. Og vissi, að hún gæti ekki látið hann vita það, án þess að eyðileggja allt saman. — Ætlarðu að fara fram á betri skil- mála? — Auðvitað, sagði hann reigingslega. — En ég hugsa að hann gangi ekki að þeim. Það lítur út fyrir að við verðum að eyða þessu hálfa ári fram að næsta keppnistímabili í að hreinsa svæðið bak við húsið okkar og reyna að koma af stað einhverjum gróðri. — Við verðum að bíða og sjá til, svar- aði hún, og sneri sér frá honum. Með titr- andi fingrum kveikti hún sér í sígarettu. Það var eins og margar hátíðaskrúðgöng- ur kæmu marserandi inn í líf hennar. Heilsuvernd HEILBRIGÐISMALA- STOFNUN Samein- uðu þjóðanna vinnur mikið og þarft verk viðs- vegar mn heim. A henn- ar vegum er liafin mark- vis barátta gegn þeim aragrúa plága, sem herj- ar á mannfólkið í þeim afkymum veraldar, þar sem heilsuvemd á lengst í land. Myndin er tekin í Laos i Indo-Kína. Stúlkan er að fá peni- cillinsprautu við hita- beitissjúkdómi, sem ár- lega verður tugum millj- óna að bana. 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.