Vikan


Vikan - 21.06.1956, Blaðsíða 7

Vikan - 21.06.1956, Blaðsíða 7
einu sinni, snýkjudýrið þitt? Á ég aldrei að fá frið fyrir þessu suði þínu “ Og „Bjallan“ hélt áfram. Hann gekk fyrir hverjar húsdyr í bænum; alls staðar var bón hans synjað og honum sagt að hafa sig á brott. En þrátt fyrir allt hélt hann þolinmóður áfram, en enginn rétti honum svo mikið sem einn eyri. Þá hélt hann út á bóndagarðana. Svo örmagna, að hann gat varla valdið hækj- unum, dróst hann áfram eftir regnvotri jörðinni. Allir ráku hann frá sér. Það var einmitt einn af þessum drungalegu dög- um, þegar hjörtu mannanna eins og loka sér, þegar menn verða auðveldlega gramir og drungi veðursins eins og sezt að í sál- um þeirra — og enginn, enginn réttir fram hönd sína til þess að gefa eða hjálpa. Þegar hann hafði leitað árangurslaust í öll þau hús, er hann kannaðist við, fleygði hann sér ofan í skurð, sem lá að landi Chicot-bóndans. Hann „krækti sig lausan“, þ. e. a. s. hann lét hinar löngu hækjur síga niður með sig og lagðist endilangur ofan í skurðinn. Þama lá hann svo grafkyrr. Hungrið steðjaði fastar en nokkru sinni að honum, en hann var of þvældur og þreyttur, til þess að skynja hina takmarkalausu eymd sína. Ennþá hafði hann þó von, veika, reikula von um að fá eitthvað, eitthvað að borða. Vonin yfirgefur manninn aldrei. Við vænt- um einhverrar óljósrar hjálpar frá guði eða náungum okkar, án þess að vita þó með vissu, hvernig, hvenær og hvar þeir geta orðið okkur til góðs. Hópur svartra hænsna nálgaðist hann. Þau leituðu að fæðu á jörðinni, sem er móðir okkar allra og allar skepnur nærir. 1 sífellu kroppuðu þau upp svolítið korn eða þá örlítið skorkvikindi og leituðu svo hægt áfram. — Án þess að hugsa horfði „Bjallan" á þau. Skyndilega kom honum sú hugsun í hug, hve óumræðilega sælt það væri, að steikja eina slíka hænu yfir loga af þurru hrísi. Hann hugsaði þetta frekar með maganum en höfðinu, því að eiginlega var þetta frekar uppfinning en hugsun. Honum kom ekki í hugarlund, að hann með því að framkvæma þetta gerði sig brotlegan við lögin. Hann þreif upp stein, sem hjá honum lá, og heppnaðist að drepa þá hænuna, sem næst honum var. Hún barði vængjunum og féll á hliðina á jörð- ina. Hinar hænumar vögguðu burt og flýðu. ,,Bjallan“ klifraði því næst upp á hækj- umar og ætlaði að ná í bráð sína. Tilburð- ir hans vom þá ekki ósvipaðir göngulagi hænsnanna. Þegar hann hafði náð í svörtu hænuna, fékk hann skyndilega svo kröftugt högg í bakið, að hann missti hækjurnar og þaut sjálfur mörg skref áfram. Uppblás- inn af reiði, kastaði sjálfur Chicot sér yfir illræðismanninn og barði hann misk- unnarlaust. Hann barði eins og hann væri viti sínu fjær, barði — eins og enginn nema bóndi getur barið þann, sem frá honum stelur — með hnefum og hnjám gaf hann honum bylmingshögg — ves- lingnum, sem alls kostar var ófær til þess að bera hönd fyrir höfuð sér. Allt heimilisfólkið kom nú einnig og að- stoðaði húsbónda sinn dyggilega við að berja næstum allt líf úr betlaranum. Loks hafði það svalað sér. Betlarinn var þrifinn óþyrmilega upp, borinn burt, lokaður inni í úthýsi — og lögreglan sótt! „Bjallan“ var nær dauða en lífi. Blóðið lak úr honum og hungrið ætlaði alveg að gera út af við hann. Þannig lá hann á gólfinu. Það varð kvöld, nótt og aftur morgun. Enn hafði hann ekkert fengið að borða. Undir hádegi komu lögregluþjónarnir og opnuðu dyrnar með mestu varnárni. Þeir höfðu búizt við ákafri mótspyrnu, því að Chicot sagðist svo frá, að-betlar- inn hefði fyrst ráðizt á sig og hann hefði aðeins með erfiðismunum og snarræði get- að forðað sér undan honum. „Stattu á fætur,“ kallaði yfirlögreglu- þjónninn. En „Bjallan“ gat hvorki hreyft legg né lið. Hann reyndi raunar að lyfta sér upp á hækjurnar, en það lánaðist engan veginn. Þetta hlutu að vera látalæti og brellur, helber þrjózka í manninum, og hinir vopnuðu verðir laga og réttar þrifu hann þjösnalega upp og fleyðu hon- um með afli á hækjurnar. Þá greip hann þessi meðfæddi ótti við lögregluþjónana, — óttinn, sem grípur músina, þegar hún sér köttinn. Og með gífurlegum erfiðismunum tókst honum að halda sér uppréttum. „Af stað!“ hrópaði yfirlögregluþjónn- inn. — Hann gekk. Allt heimilisfólkið horfði á, hvernig hann var fluttur burt. Konurnar ógnuðu honum með steyttum hnefum, og karlmennirnir hlógu hæðnis- lega að honum og lítilsvirtu hann eftir getu. Nú var hann tekinn fastur. Loksins höfðu menn þá fengið frið fyrir honum. Hann staulaðist áfram á milli lögreglu- þjónanna. Með áköfum erfiðismunum tókst VISSIRÐU ÞETTA? TTVAÐ er veitingahús? Skæðar tung- ur segja, að það sé staður, þar sem þjónninn ætlist til að fá fimm krónur í þjórfé fyrir að fá gestinum fimmtán króna reikning fyrir tveggja króna flösku af Coca-Cola. TTVER er rétt skilgreining á for- stjóra? Jú, það er náunginn, sem talar við aðkomufólkið, svo að hitt starfsfólkið hafi vinnufrið. TTVAÐ er borg? Það er staður þar sem þú gerir þá uppgötvun, um það leyti sem þú borgar síðustu af- borgunina af úthverfishúsinu þínu, að þú ert kominn niður í miðbæ. honum að sveifla sér áfram fram á kvöld. Hann var orðinn örmagna og vissi ekki lengur, hvað um var að vera. Hann var allt of sljór til þess að skynja nokkuð lengur. Á leiðinni staðnæmdust allir, sem mættu þeim — og bændurnir nöldruðu í barm sér: „Þetta er þjófurinn!“ Undir kvöld komu þeir til höfuðbæjar héraðsins. Svona langt hafði hann aldrei komið. Hann vissi eiginlega ekki, hvað allt þetta átti að þýða, og hvað ætti að ske. Allir þessir hræðilegu, óvæntu hlutir, öll þessu ókunnu andlit og ókunnu hús gerðu hann ruglaðan. Hann mælti ekki orð frá vörum — hann hafði heldur ekk- ert að segja. Auk þess hafði hann ekki í mörg ár talað við nokkurn mann, svo hann var næstum búinn að gleyma að tala, og hugsanir hans voru líka allt of reikular til þess, að hann gæti komið þeim í orð. Hann var settur í fangelsið. Menn hugs- uðu ekki út í það, að betra væri að gefa honum eitthvað að borða, og svo beið það þá til næsta dags. En þegar menn í býti næsta morgun komu inn til hans til þess að yfirheyra hann, lá hann liðinn á gólfinu. Og menn undruðust stórum! Witfirringwr í vnlda&tól Framhald af bls. 3. :ástæðu, að Commodus var búinn að gera ríkið gjaldþrota, myrti lífvörðurinn nýja keisarann og tók sér einræðisvald. Borgin eilífa hafði séð sitt af hverju um dagan, en það sem nú átti fyrir henni að liggja, var einsdæmi í veraldarsögunni. Borgarbúar vöknuðu við það einn morg- uninn, að lífvörðurinn gekk fylktu liði til miðbæjarins. Þar steig foringi hans upp á ræðupallinn fyrir framan hof Castors og Polluxar. Boðskapur hans var ekki langur, en mikilvægi hans var þeim mun meira. Þar sem lífvörðurinn hafði verið svik- inn um kaupgreiðslur, tilkynnti hann, og það var enginn keisari til þess að inna þær af hendi, hafði sú ákvörðun verið tek- in að bjóða embætti þjóðhöfðingjans upp! „Jæja, Rómverjar góðir, hvað er mér boðið í Rómaveldi... í allan hinn sið- menntaða heim . .. ?“ Það sló dauðaþögn á áheyrendur. Það burfti ekki mikið ímyndunarafl til þess að átta sig á því, að það voru vitaskuld þeir — borgararnir — sem voru undir hamrinum, framtíð þeirra og velferð. Og svo gerðist það sem menn höfðu kannski síst af öllu búist við. Það kom á daginn, að það voru þeir menn meðal Rómverja, sem ekki hikuðu við að líta á landið — og landsmenn — sem hverja aðra verzlunarvöru. Tveir öldungadeildarmenn byrjuðu að bjóða í ríkið! Já, fólkið, sem þarna var saman komið, varð vitni að því hvernig tveir landar þeirra toguðust á um Róma- veldi í skjóli auðlegðar sinnar — bitust um voldugasta ríki veraldar. Um sólarlag var Rómaveldi slegið Marcusi Julianusi öldungadeildarmanni. Kepjjinautur hans gafst upp, þegar Mar- cus bauð upphæð sem nú mundi samsvara yfir 20,000 milljónum króna! . Og þessa nótt svaf nýr keisari í höll- inni á Capitol: ne-hæð. En hann átti ekki eftir að búa þar lengi . . . — CYRIL WARWICK 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.