Vikan - 09.08.1956, Side 15
I SKUGGA GÁLGANS
Framh. af hls. 13.
.,Þið skiljið væntanlega mælt mál. Ég hef kaupanda að jörðinni. Hann
vill gefa fyrir hana hundrað dali.“
Ég sagði: „En afsalið? Hvernig getur hún skrifað undir afsalsbréfið,
án þess að öllum verði Ijóst, að þér vitið, hvar hún er niður komin?“
„Það er mjög einfalt.“ Shayne hneppti frá sér frakkanum og dró gult
umslag úr vasa sínum. „Ég hef einfaldlega dagsett afsalsbréfið þremur
dögum eftir lát föður hennar. Hún seldi jörðina með öðrum orðum á
meðan hún sat í gæzluvarðhaldi og beið dóms.“
Ég sneri mér að Gwen. „Þetta er hægt, Gwen. Ég sé ekki, að nein
hætta fylgi því, þótt þú ráðstafir jörðinni á þann hátt, sem herra Shayne
leggur til.“
Carson blístraði lágt. „Hundrað dalir, maður minn!" tautaði hann.
„Eftir hverju ertu að bíða, Gwen?“
Shayne tók upp veskið sitt og dró fram tuttugu spánýja fimm dollara
seðla. Hann braut sundur afsalsbréfið. „Nafnið þitt hérna neðst á blaðið,
og þú átt peningana."
Gwen hoi’fði á mig og Wint til skiptis.
Ég sagði: „Ég held ég mundi selja, Gwen. Jörðin er þér einskis virði
eins og komið er. En þetta fé getur létt þér vistina hérna. Jafnvel hér
er máttur peninganna mikill. Þú getur keypt þér ýmis smáfríðindi." Ég
leit á Carson. „Ég efast til dæmis ekki um, að Carson reynist mútuþægur.“
Hann glotti, hneigði sig hæðnislega og sneri sér að Gwen. „Þinn auð-
mjúkur þræll, stúlka mín.“
Shayne brosti. „Jæja, Gwen?“ Það skrjáfaði í seðlunum í hendi hans.
Og þá steig Wint fram og horfði beint í augun á lögfræðingnum.
„Svarið er nei,“ sagði hann rólega. „Jörðin er ekki til sölu.“
Framliald í nœsta blaði.
Maðurinn sem sagðist vera guð Framn. af bis. s.
Hann tjáði áhangendum sínum: „Ég mun aldrei deyja.
Ég er ódauðlegur. Þjóðir kunna að rísa og falla, en ég mun
lifa áfram og menn munu dásama mig og tilbiðja til eilífðar.“
Þessi spá hans reyndist samt fölsk, því hann dó 1927. Á
dánarvottorðinu er hann einfaldlega kallaður T. H. Smyth og
hin skráða dánarorsök er lifrarsjúkdómur.
Mjög mikil leynd var yfir útför Pigotts, en héraðsmenn
standa á því fastar en fótunum, að hann hafi verið grafinn
uppréttur, til þess að allt væri reiðubúið, þegar kæmi að upp-
risunni.
,,Ástarmusterið“ stendur enn og er dvalarstaður fáeinna
gamalla kvenna, sem af stakri þolinmæði bíða þess, að mað-
urinn, sem er grafinn fyrir framan stofugluggann, komi aftur
— maðurinn, sem þær enn þann dag í dag efast ekki um að
hafi sagt satt, þegar hann kvaðst vera Jesú Kristur.
Skattskrá
Reykjavíkur
er til sýnis í Skattstofu Reykjavíkur, Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu frá föstudegi 3. ágúst til fimmtudagsins
16. ágúst, að báðum dögum meðtöldum, alla virka daga
frá kl. 9 til kl. 16 daglega, nema laugardaga til kl. 12
á hádegi.
í skattskránni eru skráð eftirtalin gjöld: Tekjuskatt-
ur, eignarskattur, eignarskattsviðauki, stríðsgróða-
skattur, tryggingargjald, skírteinisgjald, námsbóka-
gjald, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, iðgjöld samkv. 29.
og 43. gr. laga um almannatryggingar og iðgjöld til
atvinnuleysistryggingasjóðs samkv. lögum nr. 29/1956.
Kærufrestur er tvær vikur, og þurfa kærur að vera
komnar til Skattstofu Reykjavíkur eða í bréfakassa
hennar í síðasta lagi kl. 24 fimmtudaginn 16. ágúst
næstkomandi.
Skattstjóriim í Reykjavík,
Halldór Sigfússon.
IILKVIMIMING
um útsvör 1956
Þá fellur í gjalddaga einn f jórði hluti álagðs útsvars,
að frádreginni lögboðinni fyrirframgreiðslu (helmingi
útsvarsins 1955), sem skylt var að greiða að fullu eigi
síðar en 1. júní síðastliðinn.
Sérreglur gilda um fasta starfsmenn, en því aðeins,
að þeir greiði reglulega af kaupi.
Vanskil greiðslna samkvæmt framanrituðu valda. því,
að allt útsvarið 1956 fellur í eindaga 15. ágúst næstk.,
og verður þá lögtakskræft, ásamt dráttarvöxtum.
Reykjavík, 30. júlí 1956.
BORGARRITARI.
ÁC154
15