Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 1

Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI FRÆÐIRIT Fyndin, forvitnileg, lygileg og skrítin Sérblað um fræðirit FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Fréttablaðið er með 143% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009. Allt sem þú þarft... MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 71,4% 29,3% MIÐVIKUDAGUR 25. nóvember 2009 — 279. tölublað — 9. árgangur Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég keypti happdrættismiða af skátunum haustið 1998 að þvímig minni beint til Orland Skátarnir buðu fjölskyld-unni í DisneyworldHafdís Ósk Sigurðardóttir barnabókahöfundur keypti sér happdrættismiða einu sinni sem oftar og var næstum búin að missa af vinningnum. Fyrir vinninginn fór hún með fjölskylduna til Flóríd Hafdís Ósk varð barn í annað sinn í Disney World og tók bæði Mínu og galdrahattinn með sér heim. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA JÓLAKAFFI-TÓNLEIKAR Árnesingakórsins í Reykjavík verða haldnir í Haukaheimilinu á Ásvöllum í Hafnarfirði sunnudaginn 29. nóvember og hefjast klukkan 15. Kórinn syngur nokkur hátíðleg lög, boðið verður upp á glæsilegt hlaðborð og síðan er safnast saman við píanóið og sungin gömul og góð jólalög með börnunum. Einnig verður haldinn basar en aðgangseyrir er 1.500 krónur. Betra lof betri lí Airfree lofth Byggir á nýr • Frjókornum • Vírusum o • Gæludýra • Er hljóðlau • Tilvalið á he Opið virka da Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is Jólagjöfi n sem börnin elska VEÐRIÐ Í DAG HAFDÍS ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Kíkti á Mínu Mús og Guffa í boði skáta • á ferðinni • jólin koma Í MIÐJU BLAÐSINS Minnist velgjörðarkonu Inga Dóra Björnsdóttir skrifaði bók og heldur fyrirlestur um kjarnakon- una Ásu Guðmunds- dóttur Wright. TÍMAMÓT 22 Berð u Á Grínádeila á Facebook Sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason hefur sent frá sér skáldsöguna Flottastur@feisbúkk. FÓLK 34 DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur er að sligast undan miklum málafjölda. „Það er hrúgað stöðugt á dómstólana eins og þeir séu botn- laus hít sem taki endalaust við,“ segir Helgi Jónsson, dómstjóri í Reykjavík. Margar vikur tekur að afgreiða umsóknir um greiðsluaðlögun og Héraðsdómur virðist vera að kafna í slíkum málum. „Það er alveg hár- rétt,“ samsinnir Helgi. „Ofan á allt annað var þessu skellt á okkur fyrir- varalaust í maí í vor og ekki gert ráð fyrir neinum mannafla í verk- ið. Þetta teppir alveg einn aðstoðar- mann og einn dómara að hluta.“ Að sögn Helga hafa samtals 254 beiðnir um greiðsluaðlögun komið til Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í maí. Óafgreidd mál séu í dag 85 talsins. Miklar annir séu einn- ig í þessum málum í Héraðsdómi Reykjaness. Greiðsluaðlögunarmálin eru alls ekki þau einu sem eru að sprengja dómstólana utan af sér. Helgi bendir á að í Reykjavík séu til dæmis þegar komin 983 einka- mál með munnlegum málflutningi. Þau verði líklega um 1.100 áður en árið sé á enda. Í meðalári sé fjöldi slíkra mála um 750. Útlit sé fyrir enn fleiri mál á næsta ári. „Það er búið að afnema alla aðstoð við dómara í munnlega flutt- um einkamálum og sakamálum. Okkur var lofað aðstoðarmönnum strax í sumar en það hefur ekki verið staðið við það,“ segir Helgi. Ragna Árnadóttir dómsmála- ráðherra segist hafa bent á þá lausn að fjölga dómurum og aðstoðar- mönnum. „Af því að ég hef ekki af neinu að taka hérna í ráðuneytinu bendi ég á hækkun dómsmálagjalda á móti. Að þessu er unnið og ég tel að að ég geti aflað þessum tillögum fylgis miðað við þær undirtektir sem þær fengu á Alþingi um daginn,“ segir ráðherra. - gar Dómstólar sagðir að kafna í málafjölda Greiðsluaðlögunarmál og aukning einkamála með öðru sprengir utan af sér hér- aðsdómstóla. Margra vikna bið er eftir afgreiðslu á greiðsluaðlögun. Ekki staðið við fyrirheit um aukinn mannafla. Dómsmálaráðherra boðar lausn vandans. VÍSINDI Það á að leyfa börnum að vera svolítið skítug endrum og eins. Í grein sem birtist í vísinda- ritinu Nature Medicine kemur fram að of mikið hreinlæti geti komið í veg fyrir að sár grói eðlilega. Vísindamenn frá Kaliforníu- háskóla í San Diego segja að venjuleg baktería á húðinni hjálpi til að hrinda af stað efnaskipta- ferli sem komi í veg fyrir bólgur þegar fólk fær sár eða meiðir sig. Niðurstöður vísindamannanna ýta stoðum undir svokallaða hreinlæt- istilgátu (e. hygiene hypothesis). Samkvæmt henni er hollt fyrir börn að komast í snertingu við örverur því slíkt komi í veg fyrir ofnæmi seinna á lífsleiðinni. - th Bandarískir vísindamenn: Börn eiga að fá að vera skítug Kjötkrókurinn „Sósíalistar verða nú að borga fullu verði þá kúvendingu sína þegar þeir sneru ótrauðir inn á braut frjálshyggjunnar,“ skrifar Einar Már Jónsson. Í DAG 16 TÓNLIST „Við fundum þetta lag og okkur fannst það fullkomið,“ segir Ítalinn Boris Zuccon, stjórnandi síðunnar Eurodanceweb.net. Lag hljómsveitarinnar Merzedes Club, Meira frelsi, hefur verið valið í alþjóðlega söngvakeppni síðunnar sem nú fer fram í níunda sinn. „Við vissum af hljómsveitinni því hún tók þátt í undankeppni Eurovision og sýndi litrík tilþrif. Við fylgjumst með danstónlistar- senunni úti um allan heim og vorum forvitin að heyra eitthvað nýtt frá Merzedes Club,“ segir Boris. Hlynur Áskelsson í Merzedes Club er ánægður með þátttökuna í keppninni. - fb / sjá síðu 34 Merzedes Club enn vinsæl: Í alþjóðlegri söngvakeppni MERZEDES CLUB Lag hljómsveitarinnar, Meira frelsi, tekur þátt í söngvakeppni á Netinu. Strekkingsvindur og sums staðar hvassviðri á landinu í dag. Éljagangur norðan til en rigning eða slydda austanlands. VEÐUR 4 4 4 3 22 UMHVERFISMÁL Glókollur, sem er minnsti fugl Evrópu og kallaður fuglakóngur í Skandinavíu, er einn af nýlegum landnemum á Íslandi. Útbreiðsla fuglsins hefur verið könnuð skipulega á Vesturlandi, þar sem glókollar finnast allvíða, og er nú ljóst að hann hefur orpið hér á hverju sumri undanfarin ár. Lengi vel var hann einungis flækingsfugl hérlendis en finnst nú víða um land og virðist sem tegundin hafi náð góðri fótfestu. Róbert A. Stefánsson, forstöðumaður á Náttúrustofu Vesturlands, segir að útbreiðsla glókolls sé smám saman að aukast þótt mikið bakslag hafi orðið veturinn 2004-2005 þegar fuglinn virðist hafa hríðfallið. „Fyrstu árin á eftir fjölgaði glókollum hægt en síð- ustu tvö ár virðist stofninn hafa tekið rækilega við sér aftur og stofninn nálgast nú að vera jafnstór og hann var sumarið 2004.“ Náttúrustofan hefur fylgst með útbreiðslunni á Vesturlandi frá árinu 2003. Verkefnið verður kynnt á ráðhúsloftinu í Stykkishólmi annað kvöld. - shá Minnsti fugl Evrópu verpir nú á Íslandi á hverju sumri: Glókollur hefur numið land GLÓKOLLUR Agnarsmár en harður af sér. Hann finnst nú víðast hvar. BLEK, EKKI MINK Húðflúruð áströlsk fyrirsæta nýtur óskiptrar athygli í Sydney þar sem hún mótmælir framleiðslu loðfelda. N O R D IC PH O TO S/ A FP Liverpool úr leik Það nægði Liver- pool ekki að vinna í Ungverjalandi. Fiorentina vann og fór áfram í Meistara- deildinni. ÍÞRÓTTIR 30

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.