Fréttablaðið - 25.11.2009, Page 2

Fréttablaðið - 25.11.2009, Page 2
2 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR SAMFÉLAGSMÁL „Það getur gefið fólki virkilega mikið að fá að knúsa dýr,“ segir Jóhanna Ósk Eiríks- dóttir hjúkrunarfræðingur um þá nýbreytni sem hófst á líknardeild Landspítalans í gær að fá sérstakan hund í heimsókn á deildinni. Hundurinn sem heimsótti líknar- deildina í Kópavogi gær er á vegum Rauða krossins. Að sögn Daggar Guðmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Rauða krossinum í Kópavogi, eru um þrjú ár síðan heimsóknir hunda hófust á ýmsar stofnanir. Til dæmis eru heimsóknir á hjúkrunar- heimilið í Sunnuhlíð, sambýli aldr- aðra með heilabilun í Roðasölum, í athvarf fyrir fólk með geðraskanir og í Kópavogsfangelsið auk líknar- deildarinnar. Hundarnir eru í eigu sjálfboðaliða sem þurfa að sögn Daggar að gang- ast undir sérstakt mat með dýrum sínum áður en þeir gerast svokallað- ir heimsóknarvinir. Hundana segir hún af öllum mögulegum tegund- um. Aðalatriðið sé að þeir hafi góða skapgerð og séu hlýir. „Sjálfboðaliðarnir eru fólk sem hefur áhuga á að gefa af sér og láta gott af sér leiða. Sumir eru í þessu árum saman. Hér í Kópavoginum erum við með tólf til fimmtán hunda sem flestir fara inn á stofnanir og sambýli. Sumir fara líka á einka- heimili,“ segir Dögg, sem kveð- ur verkefnið hafa gengið mjög vel. „Það er oft verið að heimsækja eldra fólk sem átti sjálft hund þegar það var yngra og þá er hundurinn mik- ill gleðigjafi. En það er mest verið að heimsækja fólk sem er félagslega einangrað.“ Á líknardeild Landspítalans var beðist undan myndatökum í gær. „Þetta eru fyrstu skrefin og við vitum ekki hvernig þetta mun virka,“ segir Jóhanna Ósk Eiríks- dóttir. Hún bendir á að slíkar heim- sóknir séu vandmeðfarnar enda þarf sérstaka undanþágu til að fá þær samþykktar. „Til dæmis er sumum meinilla við hunda og það þarf að passa upp á að dýrið sé bara á tilteknum stað því sumir geta verið með ofnæmi. En þetta eru hundar sem er virkilega treyst til þess að koma og eru hvers manns hugljúfi,“ útskýrir hún. gar@frettabladid.is Gefur fólki virkilega mikið að knúsa dýr Heimsóknir hunda frá Rauða krossinum hófust á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í gær. Á vegum Rauða krossins er fjöldi sjálfboðaliða sem fer með hunda sína í heimsóknir á stofnanir til að gleðja vistmenn, oftast eldra fólk. KÆRKOMINN VINUR Guðbjörg Þórarinsdóttir á Laugateigi fékk í gær heimsókn frá Ólöfu Guðbrandsdóttur og hundinum hennar Aroni og saman fóru þau í göngutúr. Guðbjörg verður áttræð eftir helgi og er að jafna sig eftir fótbrot. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Manninum sem féll ofan í húsgrunn við sumarbústað við Flúðir um síðustu helgi er enn haldið sofandi í öndunarvél, sam- kvæmt upplýsingum frá lækni á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Nokkrar aðgerðir hafa verið gerðar á manninum, en ekki er ljóst hvort hann þarf að undir- gangast fleiri. Hann slasaðist alvarlega við fallið þar sem sjö steypustyrktarjárn stungust inn í hann víðs vegar um líkamann. - jss Slasaðist alvarlega á Flúðum: Haldið sofandi í öndunarvél Heiðrún, veitir Orkuveitu- mönnum nokkuð af þessum veitingum? „Ég veit það ekki.“ Heiðrún Ólafsdóttir vill ekki að Orkuveit- an bjóði í dýrt jólahlaðborð fyrst laun starfsmanna hafa verið lækkuð. LÖGREGLUMÁL Sérstakur saksóknari gerði í gær húsleit hjá Byr og MP Banka vegna rannsóknar á kaupum eignarhaldsfélagsins Exeter Hold- ing á stofnfjárbréfum í Byr eftir bankahrun í fyrra. Yfirheyrslur vegna málsins hófust einnig í gær. Sérstakur saksóknari hefur grun um brot á auðgunarbrota- kafla hegningarlaga, meðal annars umboðssvik. Sex ára fangelsisvist getur legið við slíku broti. Segir í tilkynningu frá sérstökum sak- sóknara að um verulega fjárhags- lega hagsmuni sé að ræða og að rannsóknin tengist fjölda manns. Málið snýst um viðskipti með stofnfjárhluti í Byr. Einkahluta- félagið Arkea fékk um milljarð króna að láni frá Byr í október og desember í fyrra. Fjármunirnir runnu til dótturfélags Arkea, Exeter Holding, sem notaði féð til að kaupa stofnfé í Byr, meðal annars af MP Banka og Jóni Þorsteini Jónssyni, þáverandi stjórnarformanni Byrs. Rannsóknin teygir anga sína til Húnahorns, félags í eigu Ragnars Z. Guðjónssonar, sparisjóðsstjóra Byrs, og meintra viðskipta þess við Exeter Holding með stofnfjárhluti í Byr. Ragnar hefur sagt að engin slík viðskipti hafi átt sér stað; MP hafi gert veðkall í bréfunum og þau síðan verið seld Exeter. Byr og MP Banki sendu frá sér yfirlýsingar síðdegis. Í yfirlýsingu Byrs segir að starfsfólk spari- sjóðsins sé fegið að málið sé í far- vegi. Húsleitin hafi engin áhrif á almenna starfsemi eða viðskipta- vini sparisjóðsins. Í yfirlýsingu MP Banka segir að samkvæmt upplýs- ingum bankans snúi gagnaöflunin að ákveðnum viðskiptavinum bank- ans en ekki bankanum sjálfum eða starfsmönnum hans. Ágúst Sindri Karlsson, aðaleig- andi Exeter Holding og fyrrverandi stjórnarmaður, sendi frá sér yfir- lýsingu í gær þar sem hann sagð- ist ekki hafa vitað um fyrri eigend- ur stofnfjárbréfanna þegar Exeter keypti þau á sínum tíma. - sh Sérstakur saksóknari leitaði hjá Byr og MP Banka vegna rannsóknar á viðskiptum með stofnfé í Byr: Leituðu gagna vegna gruns um umboðssvik BYR Ekki náðist í Ragnar Z. Guðjónsson eða Jón Þorstein Jónsson í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR PÓLLAND, AP Lech Walesa, fyrrver- andi forseti Póllands, er kominn í mál við Lech Kaczynski, núverandi for- seta. Walesa krefst afsök- unarbeiðni frá Kaczynski eða skaðabóta ella. Tilefnið er orð Kaczynskis í sjónvarps- viðtali þar sem hann fullyrðir að Walesa hafi verið njósnari á vegum kommúnistastjórnarinnar í Póllandi á fyrri hluta áttunda ára- tugarins. Kaczynski segir að Walesa hafi notað dulnefnið Bolek. Walesa segir ekkert hæft í þessu. - gb Skaðabótamál í Póllandi: Walesa í mál við Kaczinsky LECH WALESA FÉLAGSMÁL Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi verða lækkaðar úr 350 þúsund krónum á mánuði í 300 þúsund, samkvæmt drögum að frumvarpi sem félagsmálaráð- herra kynnti í ríkisstjórn í gær- morgun. Stöð 2 sagði frá. Árni Páll Árnason félagsmála- ráðherra segir að bæturnar verði aldrei hærri en 75 prósent af launum yfir 200 þúsundum í stað áttatíu prósenta áður. Hins vegar verði fæðingarorlofstíminn sá sami og áður. - shá Orlofsgreiðslur lækka: Orlofstíminn sá sami og áður NÝJA-SJÁLAND, AP Stjórnendur skipa á ferð um Suður-Kyrra- hafið hafa fengið viðvaranir um stóra ísjaka sem virðast hafa brotnað af íshellu Suðurskauts- landsins. Jakarnir eru á reki í áttina að Nýja-Sjálandi. Sá stærsti var í gær kominn í 260 kílómetra fjar- lægð frá Stewart-eyju, sem til- heyrir Nýja-Sjálandi. Þrjú ár eru síðan nokkrir ísjak- ar sáust fyrst í námunda við Nýja-Sjálands, en þá hafði slíkt ekki gerst síðan 1931. Að þessu sinni eru jakarnir mun fleiri og hafa sést á gervi- hnattarmyndum. - gb Sending frá Suðurskautinu: Ísjakar á leið til Nýja-Sjálands ÍSJAKAR Á FERÐ Sjaldgæft er að ísjaka reki svo langt í norður. NORDICPHOTOS/AFP ENGLAND, AP Seðlabanki Englands veitti tveimur bönkum 62 milljarða punda leynilegt lán þegar bankakreppan skall á haustið 2008. Þetta kom fram í máli Mervins King seðlabankastjóra sem í gær sat fyrir svörum breskrar þingnefndar. Það voru bankarnir Royal Bank of Scotland og HBOS sem fengu lánin sem samtals námu 12.600 milljörðum íslenskra króna. King sagði að bankinn hefði ákveðið að veita lánin vegna ástandsins sem hafði skapast. Gríðarlegur titringur hefði verið á markaðnum og lánalínur bankanna hefðu lokast í kjölfarið á falli Lehman Brothers-bankans. Til þess að reyna að endurheimta traust almennings á bankakerfinu hefði stjórn bankans samþykkt að fara þessa leið. Ákveðið hefði verið að halda lánveit- ingunni leyndri þar til jafnvægi kæmist á fjármála- starfsemi á ný. King tók fram að lánin hefðu verið endurgreidd að fullu í janúar. Á fundi þingnefndarinnar kom einnig fram að Alistair Darling fjármálaráðherra hefði samþykkt að skrifa undir lánin og þar með verið tilbúinn að afskrifa upphæðina ef allt hefði farið á versta veg. Þingmenn Frjálslyndra demókrata hafa gagnrýnt lánveitinguna og óskað eftir skýringum frá Darling um það hvers vegna henni var haldið leyndri fyrir þinginu. - th Seðlabankastjóri Englands upplýsir um lánveitingar til tveggja banka: Veittu 12.600 milljarða leynilán KING OG DARLING Þingmenn hafa krafið Alistair Darling um skýringar á því hvers vegna láninu var haldið leyndu. Verðum að veiða ref Súðavíkurhreppur skorar á umhverfis- ráðherra að hætta við að fella niður endurgreiðslu vegna refaveiða á árinu 2010. Sveitarfélögin hafa meðal ann- ars nýtt endurgreiðslur til að minnka kostnað vegna dýrbíta og útkalla þegar refur herjar á æðarvarp. UMHVERFISMÁL SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.