Fréttablaðið - 25.11.2009, Qupperneq 12
12 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR
RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN OG AÐGANGUR ÓKEYPIS.
Þátttakendur þurfa að skrá sig á www.frae.is eða á www.lme.is
Á meðan á ráðstefnunni stendur verður sýning á fyrirmyndarverkefnum (Best Practices)
sem styrkt hafa verið af Menntaáætlun Evrópusambandsins, Leonardo da Vinci og Grundtvig.
ÁREITA FERÐAFÓLK Ferðafólk í Suður-
Afríku hefur orðið fyrir miklu áreiti af
hálfu bavíana, sem óhræddir brjótast
inn í bíla og hús þar sem þeir brjóta
og bramla, hirða hluti og jafnvel ráðast
á fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak-
sóknari, segir hæpið að fullyrða að upplýsingum um
mál Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóra, hafi verið lekið frá embætti hans. Rannsóknin
hafi verið á vitorði margra, um tugur manna hafi
verið yfirheyrður, auk þess sem starfsmenn sýslu-
manns hafi komið að því að kyrrsetja eignir Baldurs.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem sérstakur sak-
sóknari sendi frá sér í gær, þar sem hann svarar
grein frá lögmanni Baldurs sem birtist í Morgunblað-
inu sama dag. Í greininni sagði Karl Axelsson, lög-
maður Baldurs, að honum ofbyði umræðan um mál
Baldurs og sakaði starfsmenn sérstaks saksóknara
og Fjármálaeftirlitsins um að leka upplýsingum um
málið til fjölmiðla. Hann fer fram á að rannsókninni
verði hætt.
Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins,
sagði einnig í fjölmiðlum í gær að upplýsingum væri
ekki lekið til fjölmiðla frá embættinu.
Baldur er grunaður um að hafa búið yfir innherja-
upplýsingum um stöðu Landsbankans þegar hann
seldi bréf í bankanum fyrir á annað hundrað millj-
ónir króna skömmu fyrir hrun í fyrrahaust. Sér-
stakur saksóknari fékk kyrrsetningu á eignum hans
í þarsíðustu viku
vegna rannsóknar-
innar. - sh
Sérstakur saksóknari segir hæpið að fullyrða um leka frá embættinu:
Um tíu yfirheyrðir vegna máls Baldurs
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
tók í fyrrakvöld marijúana, til-
búið til sölu, að andvirði um 4,5
milljónir króna í götusölu.
Á Laugavegi, á efstu hæð í fjöl-
býli, upprætti lögreglan kanna-
bisræktun, tæpar 80 plöntur, á
ýmsum stigum ræktunar, og var
tæplega helmingur þeirra á loka-
stigi. Hafði lögreglumaður á leið
til vinnu gengið framhjá húsinu
og fundið kannabiskeim. Hann
hringdi í samstarfsmenn sína, sem
runnu á lyktina og knúðu dyra hjá
húsráðanda, manni á þrítugsaldri.
Hann gekkst við að eiga ræktun-
ina. Hjá honum fundust um 300
grömm af marijúana, sem búið
var að þurrka og var tilbúið til
sölu. Einnig fannst nokkurt magn
af sterum. Jafnframt 70 þúsund
krónur sem talið er að séu ágóði
af fíkniefnasölu.
Næst bar lögreglu niður skammt
frá miðbæ Hafnarfjarðar, í litlu
tvíbýli. Lögreglumenn höfðu fylgst
með húsnæðinu skamma stund
þegar húsráðandi, karlmaður á þrí-
tugsaldri, kom út úr íbúðinni. Hann
var stöðvaður og honum snúið til
baka. Mikinn kannabisþef lagði þá
frá íbúðinni. Nýbúið var að klippa
niður ræktun þar inni. Við húsleit
fundust tuttugu plöntur og um 700
grömm af marijúana sem var búið
að þurrka og var tilbúið til sölu.
Mennirnir viðurkenndu báðir
sölu á efnunum. - jss
KANNABISRÆKTUN Lögreglan tók kíló
af marijúana, sem tilbúið var til sölu á
götunni.
Þefvís lögregluþjónn rann á kannabislykt á leið sinni til vinnu og fann nokkuð umfangsmikla ræktun:
Tóku kannabis fyrir 4,5 milljónir
VIÐSKIPTI Frjálsi lífeyrissjóður-
inn var valinn besti lífeyrissjóður
á Íslandi af Investment Pension
Europe (IPE) á árlegri verðlauna-
hátíð sem fram fór í Dublin á
Írlandi í síðustu viku. IPE er eitt
virtasta fagtímarit Evrópu um
lífeyrismál.
Lífeyrissjóðurinn var sömu-
leiðis valinn næstbesti lífeyris-
sjóður í Evrópu af lífeyrissjóðum
sem eru minni en einn milljarður
evra, jafnvirði um 183 milljarða
króna, að stærð. Þá er hann jafn-
framt næstbesti lífeyrissjóðurinn
í Evrópulöndum sem eru með
færri en eina milljón íbúa. - jab
Frjálsi sló í gegn á Írlandi:
Bestur og næst-
bestur í Evrópu
VIÐSKIPTI Dómstóll í Delaware
í Bandaríkjunum féllst í gær á
gjaldþrotabeiðni Decode, móður-
félags Íslenskrar erfðagreiningar
(ÍE). Beiðnin var send fyrir viku.
Greiðslustöðvunin gildir fram
í janúar og mun fyrirtækið halda
starfsemi áfram þangað til. Fram
að þeim tíma mun bandaríska
félagið Saga Investments fjár-
magna rekstur ÍE hér á landi og
selja erlendar eignir félagsins
upp í skuldir. Opnað verður fyrir
önnur tilboð í reksturinn. - jab
Decode í greiðslustöðvun:
Beiðnin sam-
þykkt vestra
BALDUR GUÐLAUGSSONÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON
MENNTAMÁL Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra hefur beðið
sveitarfélögin að rökstyðja nánar
hugmyndir
um að fækka
lögbundnum
kennslustund-
um í grunnskól-
um um þrjár til
fjórar á viku.
Fréttablaðið
sagði frá því í
gær að Sam-
band íslenskra
sveitarfélaga
hefði kynnt
henni hugmyndir um breytingar
á grunnskólalögum til að auð-
velda sveitarfélögunum að
hagræða í rekstri skólanna.
Katrín segist vilja skoða
fagleg áhrif hugmyndanna og fá
nánari upplýsingar um hve mikið
sveitarfélögin telja sig geta spar-
að með breytingunni. Hún vill
ekki tjá sig um líkur á því að hún
leggi fram frumvarp um breyt-
ingar í samræmi við tillögurnar á
næstunni. - pg
Menntamálaráðherra:
Vill frekari rök
fyrir fækkun
kennslustunda
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
VIÐSKIPTI Slitastjórnir gömlu
bankanna fá lengri frest en áður
til að höfða mál til að fá óeðli-
legum fjármálagjörningum rift,
samkvæmt frumvarpi sem Gylfi
Magnússon, efnahags- og við-
skiptaráðherra, kynnti í ríkis-
stjórn í gærmorgun. Slitastjórn-
irnar höfðu lýst áhyggjum af of
skömmum fresti í bréfi til tveggja
ráðuneyta. „Okkar mat var að það
væri alveg rétt,“ segir Gylfi.
Slitastjórnirnar lýstu einnig
öðrum áhyggjum, meðal annars
af því að gloppa í lögum um varn-
arþing gerði það að verkum að
þeir sem færðu lögheimili sín til
útlanda lentu í vari fyrir riftunar-
málum. Gylfi segir þetta mál lög-
fræðilega flókið og verði líkast til
í skoðun fram yfir jól. - sh
Nýtt ráðherrafrumvarp:
Frestur til að
höfða riftunar-
mál lengdur