Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 18

Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 18
18 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR UMRÆÐAN Anna Skúladóttir skrifar um Orkuveitu Reykjavíkur Í ljósi umræðu undanfarnar vikur um fjárhagsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur vil ég koma á fram- færi upplýsingum úr reikningum Orkuveitunnar, ef það mætti varpa skýrara ljósi á stöðu fyrirtækisins. Efnahagur Mikil umræða hefur verið um mikla skuldsetningu félagsins en langtímaskuldir þess eru að mestu í erlendri mynt. Gengisvísitala íslensku krón- unnar hefur rúmlega tvöfald- ast frá miðju ári 2007 sem hefur haft þau áhrif að erlendar skuld- ir fyrirtækis- ins hafa hækk- að samsvarandi. Tekin hafa verið lán í erlendri mynt til að fjár- magna fjárfest- ingar á undanförnum árum. Mik- ill vaxtamunur hefur verið á milli innlendra og erlendra vaxta á síð- asta áratug og nemur ávinningur Orkuveitu Reykjavíkur vegna lægri vaxtagreiðslna um 30 milljörðum frá árinu 2002. Til samanburðar má geta þess að stofnkostnaður 90 MW virkjunar nemur 25-30 milljörð- um króna. Langtímaskuldir Orku- veitu Reykjavíkur endurgreiðast á næstu 25 árum. Það fer því eftir stöðu íslensku krónunnar gagn- vart erlendum myntum á greiðslu- degi hver fjárhæð afborgana verð- ur. Á móti erlendum skuldum eru raforkusölusamningar í bandaríkja- dölum til jafnlangs tíma og lánin, eða 20-25 ára. Þessir samningar koma ekki fram í efnahagsreikningi fyrirtækisins nema að litlu leyti. Engu síður er hér um að ræða inn- byggða gengisvörn en þessar tekj- ur eiga að ganga til greiðslu á vöxt- um og afborgunum langtímaskulda sem teknar eru til fjármögnunar virkjana til raforkuframleiðslu. Einnig er rétt að vekja athygli lesenda á því að Orkuveita Reykja- víkur á umtalsverðar eignir sem ekki koma fram í efnahagsreikn- ingi s.s. auðlindir, lóðir, lendur og vörumerki svo eitthvað sé nefnt. Heitt vatn til húshitunar kemur t.d. að 60% hluta frá borholum í Reykja- vík og nágrenni sem eru afskrifað- ar að miklu leyti. Þannig má færa rök fyrir því að eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur sé vanmetið. Sjóðstreymi Ekki er hægt að meta fjárhagslegan styrk eða veikleika félags eingöngu út frá niðurstöðum úr efnahags- reikningi. Nauðsynlegt er að horfa til sjóðstreymis. Sjóðstreymi Orku- veitu Reykjavíkur byggir á sterk- um grunni. Yfir 70% landsmanna eiga í viðskiptum við fyrirtækið vegna kaupa á raforku, dreifingu rafmagns, heitu vatni, köldu vatni, fráveituþjónustu eða ljósleiðara frá Gagnaveitu Reykjavíkur. Hér er um að ræða grunnþjónustu samfélags- ins á afar hagstæðu verði. Neðan- greint línurit sýnir þróun á verð- skrá rafmagnssölu og heitu vatni frá 1997-2009. Eins og þarna kemur fram hefur á þessu tímabili orðið raunlækkun á sölu á heitu vatni sem nemur um 27% og 33% á sölu á raforku til smásölu. Raforkusala til stóriðju hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og er áætluð í útkomuspá ársins um 5 milljarðar króna. Þessar tekj- ur byggja á samningum um raf- orkusölu, svokölluðum „take & pay“ samningum, þar sem kaupandinn skuldbindur sig til að kaupa raf- magnið óháð því hvort hann notar það. Þessir langtímasamningar eru í USD og tengdir álverði. Tekjur að frádregnum rekstrar- gjöldum, eða sem kallað er EBIT- DA, eru áætlaðar á þessu ári 12 milljarðar króna. Þessari fjárhæð er ætlað að standa undir greiðslu vaxta og afborgana. Umræðan undanfarið hefur meðal annars snú- ist mikið um það hvort Orkuveita Reykjavíkur geti staðið við skuld- bindingar sínar gagnvart erlendum lánardrottnum, þegar meirihluti tekna er í íslenskum krónum. Neðangreint súlurit sýnir hvern- ig EBITDA stendur undir greiðslu vaxta og afborgana erlendra lána á yfirstandandi ári miðað við mis- munandi gengi íslensku krónunn- ar. EBITDA hækkar með lækkandi gengi krónunnar þar sem um 20% tekna eru í erlendum gjaldeyri og vegna þessa stendur EBITDA undir greiðslu vaxta og afborgana lang- tímaskulda þótt gengi íslensku krónunnar falli niður í 260 stig. Vaxtakjör Ástæða þess að EBITDA stendur undir þessum greiðslum þrátt fyrir að höfuðstóll skulda hafi vaxið um 108% vegna veikingar krónunnar er fyrst og fremst afar hagstæð vaxtakjör. Meðalvextir erlendra lána Orkuveitu Reykjavíkur eru nú 1,15%. Vaxtakjör Orkuveitu Reykja- víkur á langtímaláni frá Evrópska fjárfestingabankanum sem undir- ritað var 20.nóvember sl. eru örlít- ið hærri. Orkuveitan hefur náð að fjármagna fjárfestingar sínar með langtímalánum, til allt að 25 ára með afar hagstæðum kjörum. Nú þegar kreppir að skiptir þetta höfuðmáli. Nokkur umræða hefur verið um áhættuna sem Orkuveitan býr við vegna tengingar raforkusölusamn- inga við álverð. Orkuveitan hefur ekki keypt varnir til að tryggja sig gagnvart lækkun álverðs en unnið er að stefnumótun um m.a. grein- ingu áhættuvarna vegna raforku- sölusamninga og viðeigandi aðgerð- ir, vegna vaxandi tekna tengdum álverði. Sterk fylgni er á milli þró- unar álverðs og vaxta og því hafa útgjöld Orkuveitunnar lækkað umtalsvert meira vegna lækkunar vaxta en samsvarandi lækkun tekna vegna lægra álverðs. Á árinu 2009 hafa vextir haldið áfram að lækka en álverð hækkað. Gert er ráð fyrir að vextir fari hækkandi þegar efna- hagskreppan gefur eftir. Fjárfestingar og fjármögnun Á þessu ári nema fjárfestingar Orkuveitu Reykjavíkur um 19 milljörðum króna og á næsta ári er gert ráð fyrir rúmlega 18 millj- arða fjárfestingum. Þessar fjárfest- ingar eru fyrst og fremst vegna 5. áfanga Hellisheiðarvirkjunar sem er 90MW áfangi og fráveitufram- kvæmda á Vesturlandi, Álftanesi og Kjalarnesi. Fráveituframkvæmd- irnar miða að því að koma fráveitu- málum á þessum stöðum í sama horf og er á höfuðborgarsvæðinu. Þessar framkvæmdir eru mann- aflsfrekar en gera má ráð fyrir að um 1.500-2.000 mannár þurfi til að byggja 90MW virkjun. Jafnframt skapa fjárfestingar í virkjunum gjaldeyristekjur til framtíðar. Fjármögnun frá Evrópska fjár- festingabankanum er fyrir helm- ingi kostnaðar við 5. áfanga Hell- isheiðarvirkjunar og helmingi Hverahlíðavirkjunar en ekki ligg- ur fyrir á þessari stundu hvort farið verður í byggingu Hverahlíð- arvirkjunar. Bindandi raforkusölu- samningur liggur fyrir vegna raf- orkuframleiðslunnar við 5. áfanga en ekki Hverahlíðavirkjun. Orkuveitan hefur einnig leit- að til lífeyrissjóðanna í tengsl- um við 10 milljarða skuldabréfa- útboð til fjármögnunar á þessum framkvæmdum. Samantekt Geta Orkuveitu Reykjavíkur til að standa við skuldbindingar sínar er sterk, fyrst og fremst vegna hárr- ar framlegðar af rekstri félags- ins, lágri vaxtabyrði og afborgan- ir langtímalána dreifast á langan tíma, eða 25 ár. Gufuaflsvirkjanir Orkuveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum og Hellisheiði hafa mjög háa fram- legð. Þannig eru meira en 80% af tekjum virkjunar eftir þegar allur rekstrarkostnaður hefur verið greiddur. Sjóðsflæði frá virkjun sem komin er í fullan rekstur er mjög hátt og því mikil geta til að greiða vexti og afborganir þeirra lána sem tekin eru til byggingar þeirra. Gera má ráð fyrir að árleg- ar tekjur 90MW virkjunar nemi um 3 milljörðum króna. Nýr fjármögnunarsamningur við Evrópska fjárfestingabankann að fjárhæð 170 milljónir evra, eða um 31 milljarður íslenskra króna, styður ofangreinda niðurstöðu en bankinn leggur sjálfstætt mat á fjárhagsstöðu þeirra fyrirtækja sem þeir lána til. Lækkun á gengi íslensku krón- unnar veldur því að lykiltölur fyrir- tækisins versna mjög s.s. eigin- fjárhlutfall. Rétt eins og með mörg önnur fyrirtæki hér á landi skiptir það Orkuveitu Reykjavíkur miklu máli að gengi íslensku krónunn- ar styrkist og vextir á innlendum markaði lækki. Eiginfjárhlutfall Orkuveitunnar verður lágt þar til gengi krónunnar styrkist en við 10% styrkingu krónunnar hækk- ar eiginfjárhlutfall í 20,3% að öðru óbreyttu. Það er von mín að þessar upp- lýsingar gefi lesendum betri yfir- sýn yfir fjárhagsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur. Höfundur er framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitu Reykjavíkur. Staðreyndir um fjárhagsstöðu OR NVT 105 100 95 90 85 80 75 70 65 60 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 Þróun gjaldskrár rafmagns og hita í samanburði við vísitölu neysluverðs RafmagnHeitt vatn Gengisvísitala 200 226 250 280 300 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Afborganir langtímaskulda EBITDAHandbært fé frá rekstri ANNA SKÚLA- DÓTTIR 399,- 399,- 299,- vél 299,- 399,- 29 ,- 399,- ve æri Marel Food Systems hf. Birting lýsingar Marel Food Systems hf. hefur birt lýsingu vegna útboðs á nýjum hlutum í félaginu og töku hinna nýju hluta til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf. Nálgast má lýsinguna næstu 12 mánuði á vef Marel Food Systems hf., www.marel.com. Prentuð eintök er hægt að nálgast hjá útgefanda, Marel Food Systems hf., Austurhrauni 9, Garðabæ. Hinir nýju hlutir í Marel Food Systems hf. verða seldir í hlutafjárútboði til fagfjárfesta, dagana 26. og 27. nóvember 2009. Boðnir verða út allt að 92.400.000 nýir hlutir í Marel Food Systems hf. á verðbilinu 63-65 krónur á hlut. Verði umframeftirspurn í útboðinu hefur stjórn Marel Food Systems hf. áskilið sér rétt til þess að fjölga þeim hlutum sem boðnir verða til sölu í útboðinu um allt að 46.200.000 hluti. Heildarfjöldi hluta sem seldir verða í útboðinu er því að hámarki 138.600.000 hlutir. Stefnt er að því að hinir nýju hlutir verði teknir til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf. eigi síðar en 9. desember 2009. Allir hlutir í Marel Food Systems hf., þar með taldir hinir nýju hlutir, eru í einum flokki og eru jafnréttháir. Ákveði stjórn Marel Food Systems hf. að fjölga ekki þeim hlutum sem boðnir verða til sölu verður heildarfjöldi hluta í Marel Food Systems hf. að hlutafjárhækkun lokinni allt að 708.400.000 hlutir. Verði hlutum í útboðinu fjölgað að ákvörðun stjórnar, verður heildarfjöldi hluta í Marel Food Systems hf. að hlutafjárhækkun lokinni að hámarki 754.600.000 hlutir. Nánari upplýsingar um útboðið og skilmála þess má finna í lýsingu Marel Food Systems hf. Garðabær, 25. nóvember 2009.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.