Fréttablaðið - 25.11.2009, Side 19

Fréttablaðið - 25.11.2009, Side 19
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég keypti happdrættismiða af skátunum haustið 1998, að því er mig minnir, og hugsaði svo ekkert meira út í það. Í byrjun maí árið eftir var ég svo af rælni að skoða happdrættismiðahrúguna sem ég hef nú stundum bara hent án þess að kíkja eftir vinningi en ákvað að athuga þetta nánar og viti menn, ég hafði unnið ferðavinning. Vinning- urinn dugði í eitt ár svo við þurft- um að hafa hraðar hendur til að nota hann.“ Eftir nokkrar vanga- veltur ákvað fjölskyldan að skella sér í Disneyworld. „Við flugum beint til Orlando og vorum þar í viku og þræddum Disneygarðana. Við fórum í Disney World, Animal World og Sea World og drukkum í okkur það sem fyrir augu bar. Ég varð barn í annað sinn og hafði síst minna gaman af ferðinni en níu ára sonur minn. Svona ferð er algjört ævintýri fyrir fjölskyldur.“ Fjölskyldan lagði svo land undir dekk, leigði sér bílaleigubíl og ók til St. Petersburg. „Þar bjuggum við á fínu hóteli sem var í miðj- um sundlaugargarði og það fannst okkur ekki leiðinlegt, sérstaklega þar sem þetta var í ágúst og afskaplega heitt. Svo keyrðum við bara um allt og nutum þess að vera til.“ Hafdís hefur alltaf styrkt skát- ana ásamt mörgum öðrum góð- gerðafélögum og sér ekki eftir því þótt annar eins vinningur hafi ekki orðið fyrir henni, hvorki fyrr né síðar. „Ég hugsa stundum um hvað ég var heppin að kíkja á happ- drættismiðann því annars hefð- um við fjölskyldan misst af þess- ari skemmtilegu ferð og það hefði verið mikil synd.“ - bb Skátarnir buðu fjölskyld- unni í Disneyworld Hafdís Ósk Sigurðardóttir barnabókahöfundur keypti sér happdrættismiða einu sinni sem oftar og var næstum búin að missa af vinningnum. Fyrir vinninginn fór hún með fjölskylduna til Flórída. Hafdís Ósk varð barn í annað sinn í Disney World og tók bæði Mínu og galdrahattinn með sér heim. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA JÓLAKAFFI-TÓNLEIKAR Árnesingakórsins í Reykjavík verða haldnir í Haukaheimilinu á Ásvöllum í Hafnarfirði sunnudaginn 29. nóvember og hefjast klukkan 15. Kórinn syngur nokkur hátíðleg lög, boðið verður upp á glæsilegt hlaðborð og síðan er safnast saman við píanóið og sungin gömul og góð jólalög með börnunum. Einnig verður haldinn basar en aðgangseyrir er 1.500 krónur. Betra lof betri lí Airfree lofth Byggir á nýr • Frjókornum • Vírusum o • Gæludýrafl • Er hljóðlau • Tilvalið á he Opið virka da Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is Jólagjöfi n sem börnin elska Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is sími 512 5473 Fimmtudaga

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.