Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 27

Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009 7fræðirit ● fréttablaðið ● „Þessi bók hafði byltingarkennd áhrif á alla hugsun manna um vís- indasögu og vísindaheimspeki, strax þegar hún kom út árið 1962 ,“ segir Stefán Páls - son sagnfræð- ingur um eftir- lætisfræðibók sína, Um gerð vísindabyltinga (The Structure of Scientific Revolutions) eftir Thomas S. Kuhn. „Í bókinni tekur Kuhn sólmiðju- kenningu Kóperníkusar sem dæmi um það hvernig sýn okkar á nátt- úruna þróast ekki smátt og smátt heldur gjörbreytist í skyndileg- um stökkum eða byltingum,“ segir Stefán. „Þessar hugmynd- ir um snögga og róttæka endur- skoðun hugmynda og gilda féll vel í kramið hjá uppreisnaræsku sjöunda áratugarins og vesal- ings Kuhn uppgötvaði sér til mik- illar skelfingar að hann var orð- inn fyrirmynd hippa og róttæk- linga, sem hann kærði sig ekkert um enda enginn byltingamaður í pólitískum skoðunum. En bókin stendur enn fyrir sínu.“ - kg Hafði byltingarkennd áhrif Stefán Pálsson. Thomas S. Kuhn „Ég held að engin fræðirit hafi haft jafn mikil áhrif á mig og Al- fræðisafn AB, sem Almenna bóka- félagið gaf út á íslensku í kring- um árin 1966 til 1968,“ segir Ill- ugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðlamað- ur með meiru, spurður um sitt eftirlætis- fræðirit. Illugi segist ekkert hafa þráð heitar þegar hann var átta ára en að eignast Alfræðisafnið, sem voru tólf til fimmtán bækur. „Þetta voru stórar og miklar myndabækur um him- ingeiminn, mannslíkam- ann, jörðina og öll vís- indaleg efni. Öðlingur- inn hún móðir mín lét það eftir mér að kaupa allar bækurnar, en þær hafa vafalaust verið rándýr- ar og stór biti fyrir ein- stæða móður. Svo lá ég í þessum bókum árum saman og kunni þær næstum utanbókar. Mér þætti dálítið skrýtið að sjá son minn, sem nú er á svipuðum aldri, liggja í svona bókum en engu öðru, en það gerði ég mér til mikillar ánægju. Flest sem ég veit um vís- indi er enn byggt á þess- um ágætu bókum, þótt þær séu að mörgu leyti orðnar úreltar,“ segir Illugi. - kg Þráði ekkert heitar Illugi Jökulsson. Alfræðisafn AB var hafsjór upplýsinga um vísindi fyrir hinn átta ára Illuga. „Uppáhaldsfræðibókin er sú sem ég er mest innblásin af hverju sinni,“ segir Þorgerður Einars- dóttir, prófessor í kynjafræði. Sú bók sem heillar Þorgerði mest í augna- blikinu er Innan áru kynjajafn- réttis: Vinnu- menning, kynja- tengsl og fjöl- skylduábyrgð eftir Gyðu Margréti Pétursdótt- ur, sem er fyrsta doktorsritgerðin í kynjafræði frá Háskóla Íslands. „Í bókinni er lýst hvernig bæði kyn sveipa um sig áru jafnréttis, eða orðræðu jafnréttis, því ójafnrétti er ekki félagslega viðurkennd- ur valkostur í nútímasamfélagi,“ segir Þorgerður. „Bókin spann- ar allt lífið, íslenskt atvinnulíf og vinnumenningu, launin, einkalíf- ið, verkaskiptinguna, frítímann, menninguna, börnin og svo fram- vegis. Hún er fræðilega sterk með nýjustu sjónarmið fræðanna og fléttar kynjavíddina listilega vel saman við hefðbundna þekkingu. Hún er líka aðferðafræðilega sterk með góðan vísindaheimspekileg- an grunn og góða innistæðu fyrir ályktunum og niðurstöðum. Bókin er fræðileg nýsköpun með hagnýtt gildi eins og það gerist best,“ segir Þorgerður. - kg Fræðileg nýsköpun Gyða Margrét Pétursdóttir, höfundur doktorsritgerðar í kynjafræði við HÍ. Þorgerður Einarsdóttir. Í MESTU UPPÁHALDI Bók fyrir fólk á aldrinum 10 til 106 ára sem hefur gaman af að hugsa. Hver rakar rakarann sem rakar alla sem raka sig ekki sjálfir? Hvað varð um týnda jólasveininn? Er hægt að koma sjö krökkum á sex stóla, þannig að hver hafi sitt sæti? Getum við ferðast inn í fortíð eða framtíð og snúið aftur? Er talan níu tengd afmælisdögum alls frægs fólks? Þessar spurningar og miklu fleiri eru settar fram í bókinni AHA! Ekki er allt sem sýnist. Í henni eru furðulegar þrautir og þversagnir fyrir alla sem eru klárir og skemmtilegir. Heimur hf. 512-7575, Pantanir: aha@heimur.is Aha - þá þarftu ekki að leita lengur að jólagjöfinni fyrir þá! JÓLABÆKURNAR ERU ÓDÝRARI Í OFFICE 1 Skeifan, Smáralind, Korputorg, Hafnarfjörður, Selfoss, Egilsstaðir og Akureyri. ® PI PA R \ TB W A • SÍ A • 9 2 20 4

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.