Fréttablaðið - 25.11.2009, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 25.11.2009, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 25. nóvember 2009 3 Skólavefurinn hefur verið leiðandi í gerð vefefnis fyrir skóla. Með tíman- um eignaðist vef- urinn margar hljóð- bækur og út frá því var stofnuð síðan hlusta.is. Nú hafa þessir tveir vefir tekið höndum saman annað árið í röð og bjóða upp á fallegar og góðar jólagjafir sem kosta lítið sem ekkert. „Enn sem komið er er þetta í þremur flokkum. Við erum með bækur, hljóðdiska og dagatöl,“ segir Páll Guðbrandsson markaðs- stjóri. „Dagatöl hafa verið vinsæl- ust hjá krökkunum. Hljóðbækurn- ar eru sennilega veglegasta gjöfin. Þeim er hægt að hlaða niður og eini kostnaðurinn er tómur diskur. Einnig er hægt að ná í kápur sem má prenta út. Þetta verður alveg eins og keypt út úr búð, virkilega flott,“ segir Páll. Hljóðdiskarnir eru hugsaðir til niðurhals og geisladiskagerðar, en dagatölin og bækurnar til útprent- unar og skreytingar. Það eina sem þarf er tómur geisladiskur eða prentari. Hægt er að nálgast efnið endurgjaldslaust í gegnum www. skolavefur.is og fá allar nánari leiðbeiningar um framkvæmd og hugmyndir að útfærslum. „Upphaflega varð þessi hug- mynd til í fyrra rétt eftir hrun. Við vild- um aðstoða fólk sem gat ekki keypt mikið af jólagjöfum að búa til eitthvað fallegt. En einnig erum við að reyna að útrýma þeirri kreddu að hljóðbæk- ur séu bara fyrir þá sem hafa aðgang að Blindrabókasafninu hér á landi,“ segir Páll. Þeir sem vilja geta komið á Bókasafn Seltjarnarness hinn 10. desember klukkan 17.00 en þá ætla vefirnir tveir að vera með jóla- verkstæði og bjóða fólki aðstoð við að búa jólagjafirnar til. Þar verða geisladiskar og kápur til taks og annar efniviður sem getur nýst við gjafasmíðina. Allir velkomnir, ungir sem aldnir. niels@frettabladid.is Bjóða upp á næstum því ókeypis jólagjafir Skólavefurinn og hlusta.is bjóða upp á praktískar og persónulegar jólagjafir í ár. Auðveldlega má búa til góða gjöf með hjálp tölvutækninnar, hvort heldur sem er bækur, dagatöl eða hljóðdiska. Jökull Sigurðsson framkvæmdastjóri og Páll Guðbrandsson, markaðsstjóri hjá Skólavefnum, vilja gefa fólki kost á að gefa ódýrar en skemmtilegar jólagjafir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hjálparstarf kirkjunnar sinnir hjálparstarfi bæði innanlands og utan og fyrirtæki hafa úr nokkrum möguleikum að velja, vilji þau styðja gott málefni. „Fyrir nokkrum árum stofnuðum við Framtíðarsjóð fyrir íslensk ungmenni en skjólstæðingar hans eru 16-20 ára. Foreldra skjólstæð- inga Framtíðar- sjóðsins skortir yfirleitt mennt- un en það tengist oft því að vera í láglaunastarfi og mörg hafa því af efnahags- legum ástæð- um ekki getað stutt börn sín til náms. Hjálpar- starfið hefur reynt að rjúfa þenn- an vítahring og veitt ungmennum forgang sem ekki fá námsstuðn- ing frá hinu opinbera með greiðslu skólagjalda og bókakaupum vegna framhaldsskólanáms sem er ekki lánshæft,“ segir Bjarni Gíslason, upplýsinga-og fræðslufulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Hann segir enn fremur að fyrirtæki hafi verið mjög dugleg að styrkja þetta starf sem og önnur innlend og erlend. „Bjarni segir það nú algengt að fyrirtæki sendi ekki út jóla- kort eða gefi ekki jólagjafir held- ur láti andvirði þess renna til góðs málefnis. „Við erum svo heppin að margir hafa munað eftir okkur.“ Hann segir starfið erlendis líka mikilvægt. „Okkur Íslendinga hefur aldrei skort vatn en víða um heim er skorturinn mjög mikill. Í þorpi í Malaví getur einn brunn- ur breytt lífi þorpsbúa því hrein- læti verður betra. Þetta léttir líka vinnuálaginu á konur og stúlkur. Stúlkur geta farið í skóla og konur sinnt betur uppeldi.“ Á Indlandi eru mörg börn í þrælavinnu vegna skulda og kúg- unar fátækra foreldra sinna og þau látin vinna fyrir léleg laun við vondar aðstæður. Það má eiginlega segja að þau séu veðsett. Bjarni segir að Hjálparstarf kirkjunnar leysi þessi börn úr skuldaánauð. „Verkefninu er þó ekki lokið því að fræða þarf foreldra og börn um réttindi sín og veita þeim lang- tímastuðning. Foreldrar fá hjálp til að auka tekjur og hvert þrælabarn er búið undir almenna skólagöngu. Þetta er nýtt líf og ekkert annað,“ segir Bjarni sem segir starf sitt skemmtilegt. „Það er stórkostlegt að geta sinnt því að hjálpa þeim sem minna mega sín að öðlast nýtt líf, sérstaklega vegna þess að það þarf svo lítið til.“ unnur@frettabladid.is Styðja við framtíðarbörn Bjarni Gíslason Hægt er að styrkja ýmis góð málefni í gegnum vef hjálparstarfsins www.help.is. Til dæmis er hægt að gefa fjölskyldum í Afríku geit. Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is sími 512 5473 Laugardaga Létt Bylgjan kemur þér í jólaskap Bragi Guðmundsson og Jóhann Örn Ólafsson spila uppáhalds jólalögin þín, alla virka daga frá 8 - 18

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.