Fréttablaðið - 25.11.2009, Side 34
22 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
GEORGE BEST LÉST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 2005.
„Ég eyddi fullt af peningum
í áfengi, stelpur og hrað-
skreiða bíla. Restinni sóaði
ég.“
George Best var norður-írsk-
ur landsliðsmaður í knatt-
spyrnu. Hann þótti einn
allra besti knattspyrnumað-
ur heims en var auk þess orð-
aður við mikla drykkju og
kvennafar.
MERKISATBURÐIR
1491 Umsátur hefst um Gran-
ada, síðustu borg Mára á
Spáni.
1867 Alfred Nobel fær einka-
leyfi á dínamítinu.
1902 Stanley, fyrsti vélbáturinn
á Íslandi, er sjósettur.
1975 Súrínam fær sjálfstæði frá
Hollandi.
1989 Hellarannsóknafélag Ís-
lands er stofnað í Reykja-
vík.
1993 Messósópransöngkonan
Teresa Berganza kemur
fram á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveit Íslands
í Háskólabíói.
1999 Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna ákveður að 25.
nóvember skuli vera al-
þjóðlegur baráttudagur
gegn kynbundnu ofbeldi.
Þennan dag árið 1961
var Sundlaug Vesturbæjar
í Reykjavík vígð að við-
stöddum borgarfulltrúum,
íþróttamönnum og öðrum
sem höfðu beitt sér fyrir því
að sundlaugin yrði gerð.
Birgir Kjaran, alþingis-
maður og formaður bygg-
ingarnefndar, flutti ræðu
og rakti aðdragandann að
byggingunni.
Hugmyndin um sundlaug í Vesturbænum
mun fyrst hafa komið fram árið 1939 þegar KR
eignaðist lóð við Kaplaskjólsveg og gerði þá ráð
fyrir sundlaug. Íþróttabandalag Reykjavíkur sendi
árið 1946 áskorun til bæjarstjórnar um að sund-
laug yrði gerð og eftir það fór að komast skriður
á málið.
Árið 1953 var skipað í
tvær nefndir vegna bygging-
arinnar; önnur var bygging-
arnefnd, skipuð af borgar-
stjórn Reykjavíkur, hin var
fjáröflunarnefnd tilnefnd
af Íþróttabandalagi Reykja-
víkur. Í árslok 1953 höfðu
safnast 150 þúsund krónur
en auk þess lagði Reykja-
víkurborg til fé. Söfnunarféð
var notað til að kaupa lista-
verk í afgreiðslusal og til að kaupa stórt fiskabúr
sem var sett upp í anddyri laugarinnar. Það var
gestum til augnayndis í fjöldamörg ár.
Sundlaugin er í dag búin 25 metra aðallaug,
12,5 metra barnalaug, þremur heitum pott-
um, nuddpotti, eimbaði, gufubaði og
barnarennibraut.
ÞETTA GERÐIST: 25. NÓVEMBER 1961
Sundlaug Vesturbæjar vígð
Inga Dóra Björnsdóttir, doktor í
mannfræði, hefur lagt sitt af mörk-
um til að gera íslenskum kjarnorku-
konum skil. Bók hennar um Ólöfu
eskimóa kom út árið 2004 og nú er
bókin Kona þriggja eyja um Ásu Guð-
mundsdóttur Wright, velgjörðarkonu
íslenskra vísinda, komin út. Í tilefni
þess mun Inga Dóra segja frá stuðn-
ingsstarfi Ásu við náttúruvernd og
vísindi í opnum fyrirlestri í Háskóla
Íslands í hádeginu í dag auk þess sem
sýning með munum úr safni Ásu verð-
ur opnuð í Þjóðminjasafni Íslands á
laugardag.
En hver var Ása Wright? „Íslensk-
ir vísindamenn þekkja hana vel
en hún er kannski ekki jafn þekkt
meðal almennings,“ segir Inga Dóra.
„Hún var læknisdóttir úr Stykkis-
hólmi sem hélt ung til Englands þar
sem hún lærði hjúkrun. Hún giftist
breskum lögfræðingi og varð hefð-
arfrú í Cornwall. Þar stofnaði hún
öflugt kvenfélag og létu þau hjón-
in mikið að sér kveða. Þau þraukuðu
seinni heimsstyrjöldina í London en
fluttu úr gráma eftirstríðsáranna til
Karíbahafseyjarinnar Trínidad rétt
undan norðausturströnd Venesúela og
keyptu þar búgarð inni í frumskógi,“
lýsir Inga Dóra og heldur áfram: „Á
búgarðinn heimsótti þau bandaríski
vísindamaðurinn William Beebe
sem var búinn að koma upp rann-
sóknarstöðvum á vegum New York
Zoological Society víða um heim og
aðstoðaði eiginmaður Ásu hann við
að kaupa land skammt frá. Þar kom
hann á fót rannsóknarstöð og þangað
fóru að streyma bandarískir og bresk-
ir náttúruvísindamenn til að vinna að
rannsóknum. Margir þeirra bjuggu
á búgarði Ásu og eiginmanns henn-
ar og urðu þeir þess fljótlega vísir að
landið þeirra var óviðjafnanlegt og
dýra-, fugla- og plöntulíf engu líkt.“
Inga Dóra segir vísindamennina þó
ekki aðeins hafa sóst eftir að stunda
rannsóknir heldur líka í félagsskap
Ásu, sem var sterkur og litríkur
persónuleiki.
Ása varð ekkja árið 1955 og árið
1966, þegar hún var farin að missa
heilsuna, var farið af stað með söfnun
til að kaupa landið af henni. Það var
síðan fyrsta náttúrufriðland í Karíba-
hafinu og er í dag þjóðarstolt Tríni-
dadbúa. Landið heitir Asa Wright
Nature Center og dregur að sér fjölda
gesta.
Þrátt fyrir sextíu ára dvöl á erlendri
grund hafði Ása ekki gleymt Íslandi.
Hún átti enga afkomendur og gaf Vís-
indafélagi Íslendinga tuttugu þúsund
Bandaríkjadali á fimmtíu ára afmæli
félagsins hinn 1. desember árið 1968
og stofnaði Verðlaunasjóð Ásu Guð-
mundsdóttur Wright til minningar
um eiginmann sinn, foreldra, systkini
og nánustu ættingja. Verðlaun hafa
verið veitt íslenskum vísindamanni á
hverju ári síðan og eru þau talin einn
mesti heiður sem íslenskum vísinda-
og fræðimönnum getur hlotnast. Þá
gaf Ása Þjóðminjasafni Íslands sams
konar upphæð, auk þess sem hún
sendi muni úr innbúi sínu yfir hafið
en hún var af hefðarheimili og átti
mikið af dýrgripum.“
Inga Dóra uppgötvaði Ásu árið
1968 þegar hún rakst á glerskáp með
munum hennar í kjallara Þjóðminja-
safnsins. Ekki hefur verið haldin
formleg sýning á þeim fyrr en nú.
vera@frettabladid.is
INGA DÓRA BJÖRNSDÓTTIR: HELDUR MINNINGU ÁSU WRIGHT Á LOFTI
Velgjörðarkona vísinda
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðfinnur Sigurður
Sigurðsson
fyrrv. lögregluvarðstjóri og forvarnar-
fulltrúi, Hátúni 12, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 18. nóvember. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 27. nóvember,
klukkan 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hins látna er bent á Hjartavernd.
Helen Sigurðsson
Sigurður Kr. Guðfinnsson Aldís Hugbjört Matthíasdóttir
Stefán Birgir Guðfinnsson Rositsa Slavcheva Guðfinnsson
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson
Helga Björg Guðfinnsdóttir Ingólfur Marteinn Jones
barnabörn og barnabarnabarn.
Eiginkonan mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
Magnea Thomsen
Lundi 1, Kópavogi, áður til heimilis að
Ennishlíð 4 í Ólafsvík,
lést sunnudaginn 15. nóvember. Útförin fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 28. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina
Sumargjöf í Ólafsvík.
Guðmundur J. Sveinsson
Sigurður Sveinn Guðmundsson Guðrún Jenný Sigurðardóttir
Anna Margrét Guðmundsdóttir Unnar Freyr Bjarnason
Tómas Guðmundsson Sonja Erna Sigurðardóttir
og barnabörn.
MOSAIK
Við sendum öllum sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Astrid Skarpaas
Hannesson.
Sérstakar þakkir til þeirra sem heiðruðu minningu
hennar, einnig starfsfólks Seljahlíðar fyrir hlýlega og
góða umönnun.
Hannes Jóhannsson Kristín Einarsdóttir
Gunhild Hannesson Sigurvin Ólafsson
Jóhann Hannesson Rósa Sævarsdóttir
Ásta Hannesdóttir Andreas Lemark
Linda Sunde Peter Sunde
Finnur Ólafsson
Þórunn Perla, Hannes Hugi, Karin Kristín, Sofie, Margrete,
Magnus og Sonja.
ÁTTI FJÖLMARGA DÝRGRIPI Ása Wright var í mörg ár að senda muni úr innbúi sínu til Íslands
en sýning með mununum verður opnuð í Þjóðminjasafninu á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
AFMÆLI
CHRISTINA
APPLEGATE
leikkona er
38 ára.
ÞÓREY SIG-
ÞÓRSDÓTTIR
leikkona og
kennari er
44 ára.
HANNES
SMÁRASON
athafna-
maður er 42
ára.
Bjartur bókaforlag gefur
út tíu ný íslensk skáld-
verk í ár sem met í
sögu forlagsins. Höf-
undar lesa upp úr
sjö þessara verka
klukkan átta í kvöld
á Sólon í Banka-
stræti.
L esið verður
upp úr eftirfar-
andi bókum:
Aþena (ekki
höfuðborg-
in í Grikk-
landi;),
Fær-
eyskur dansur, Heim til
míns hjarta, Mynd af
Ragnari í Smára,
Spor, Harmur
englanna og Góði
elskhuginn.
Hver höfundur
les í tíu mínútur.
Upplestur á Sólon
STEINUNN
SIGURÐAR-
DÓTTIR
Les upp úr
bók sinni
Góði elsk-
huginn.