Fréttablaðið - 25.11.2009, Page 36
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
24 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég vona
að þetta
muni ekki
eyðileggja
vináttu
okkar
Nei, nei,
hafðu ekki
áhyggjur af
því, vinskap-
ur okkar þolir
heiðarlegan
slag
Hæ,
mamma,
þetta er
ég.
Já, hæ Palli
minn, eitthvað
títt?
Nja, bara hitt og þetta. Aðallega
þetta!
ARG
!!!!!
Jæja, athugum hvort
ég geti giskað á hvað
hver vill í morgunmat!
Kornhringir? Hveiti-sætindi?
Þetta kalla
ég fjöl-
breyttan
pakka!
Vei! Vei!
Hrísgrjónabúðingur?
Gamall starfsbróðir minn, Hafliði Helgason að nafni, sagði mér eitt
sinn þá kenningu að heillavænlegast væri
að hafa einungis temmilega mikið af
hæfileikum en þeim mun meira af þraut-
seigju. Vegna þess að þeir sem hafa mikla
hæfileika eru líklegir til þess að misnota
þá eða telja sig þurfa að hafa minna fyrir
hlutunum uns einn góðan veðurdag að
lífið sjálft sýnir þeim með voveiflegum
hætti að það sé hinn mesti misskilningur.
Sá sem hefur minna af hæfileikum er
hins vegar meðvitaður um að hann
þarf að sinna sínu viðfangsefni af alúð
ef vel eigi að vera og það leiðir hann á
gæfubraut.
ÞESSI Hafliðakenning kemur upp í
kollinn núna því ég er að velta því
fyrir mér hvort hana megi yfirfæra
á þjóðir. Spurningin yrði þá hvort
þjóðum væri hollast að hafa
temmilega mikið af auðlindum
en þeim mun meira af þraut-
seigju. Ég hef nefnilega
fundið fyrir ónota hrolli
þegar menn grípa til
þeirrar klisju að Ísland
eigi eftir að ná sér á
strik þar sem landið
eigi svo mikið af
auðlindum. Þær hafa
nefnilega reynst mínu fólki haldlaust
reipi.
ÉG er alinn upp í þorpi á Vestfjörðum þar
sem stutt er á gjöful mið. En það er sama
hversu miðin eru gjöful, þau verða ekki
þorpinu til happs eftir tilkomu kvóta-
kerfisins. Og nú þegar óspillt náttúra
telst meðal mestu auðlinda getur mitt
heimafólk státað af tveimur auðlindum
sem ekki verður í askana látið. Hvað
vilja menn líka með allar þessar auðlind-
ir? Var það ekki einmitt skortur Breta á
auðlindum sem var til þess að þeir urðu
stórveldi á sínum tíma? Með hugviti og
þrautseigju komust þeir í auðlindir ann-
arra og skutust þannig á stjörnuhimininn.
Síðan þegar eftirsóknarverðustu auðlind-
ir framandi þjóða voru orðnar breskar
spiluðu þeir rassinn úr buxunum.
ÉG er ekkert voðalega hrifinn af þessari
kenningu. En því er þó þannig farið um
þessar mundir í héruðum hér á Suður-
Spáni að trjágreinar eru að svigna undan
safaríkum ólífum. Þetta væri dásamleg
sjón ef ekki stæðu bændur álútir hjá og
veltu því fyrir sér hvort það sé virkilega
þess virði að fara með þær í fabrikkuna.
NÚ er það bara að treysta á hugarþelið
eitt árið enn.
Auðlindin og hugvitið
Lagersala
í nóvember
Dæmi um afslátt:
Takmarkað magn af vegg- og eyjuháfum
frá Miele og Elica 30-50%
Pottar, pönnur og smááhöld frá Cristel 50%
Takmarkað magn af Liebherr kæliskápum 30%
Að auki ýmis heimilistæki 20-25%
30-50% afsláttur
Vesturvör 30c
Kíktu á Kársnesið – Ferðin borgar sig!
www.kvikkfix.is
Umfelgun 4.600 kr.
16” felgur og minni
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki