Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 36

Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 36
BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 24 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég vona að þetta muni ekki eyðileggja vináttu okkar Nei, nei, hafðu ekki áhyggjur af því, vinskap- ur okkar þolir heiðarlegan slag Hæ, mamma, þetta er ég. Já, hæ Palli minn, eitthvað títt? Nja, bara hitt og þetta. Aðallega þetta! ARG !!!!! Jæja, athugum hvort ég geti giskað á hvað hver vill í morgunmat! Kornhringir? Hveiti-sætindi? Þetta kalla ég fjöl- breyttan pakka! Vei! Vei! Hrísgrjónabúðingur? Gamall starfsbróðir minn, Hafliði Helgason að nafni, sagði mér eitt sinn þá kenningu að heillavænlegast væri að hafa einungis temmilega mikið af hæfileikum en þeim mun meira af þraut- seigju. Vegna þess að þeir sem hafa mikla hæfileika eru líklegir til þess að misnota þá eða telja sig þurfa að hafa minna fyrir hlutunum uns einn góðan veðurdag að lífið sjálft sýnir þeim með voveiflegum hætti að það sé hinn mesti misskilningur. Sá sem hefur minna af hæfileikum er hins vegar meðvitaður um að hann þarf að sinna sínu viðfangsefni af alúð ef vel eigi að vera og það leiðir hann á gæfubraut. ÞESSI Hafliðakenning kemur upp í kollinn núna því ég er að velta því fyrir mér hvort hana megi yfirfæra á þjóðir. Spurningin yrði þá hvort þjóðum væri hollast að hafa temmilega mikið af auðlindum en þeim mun meira af þraut- seigju. Ég hef nefnilega fundið fyrir ónota hrolli þegar menn grípa til þeirrar klisju að Ísland eigi eftir að ná sér á strik þar sem landið eigi svo mikið af auðlindum. Þær hafa nefnilega reynst mínu fólki haldlaust reipi. ÉG er alinn upp í þorpi á Vestfjörðum þar sem stutt er á gjöful mið. En það er sama hversu miðin eru gjöful, þau verða ekki þorpinu til happs eftir tilkomu kvóta- kerfisins. Og nú þegar óspillt náttúra telst meðal mestu auðlinda getur mitt heimafólk státað af tveimur auðlindum sem ekki verður í askana látið. Hvað vilja menn líka með allar þessar auðlind- ir? Var það ekki einmitt skortur Breta á auðlindum sem var til þess að þeir urðu stórveldi á sínum tíma? Með hugviti og þrautseigju komust þeir í auðlindir ann- arra og skutust þannig á stjörnuhimininn. Síðan þegar eftirsóknarverðustu auðlind- ir framandi þjóða voru orðnar breskar spiluðu þeir rassinn úr buxunum. ÉG er ekkert voðalega hrifinn af þessari kenningu. En því er þó þannig farið um þessar mundir í héruðum hér á Suður- Spáni að trjágreinar eru að svigna undan safaríkum ólífum. Þetta væri dásamleg sjón ef ekki stæðu bændur álútir hjá og veltu því fyrir sér hvort það sé virkilega þess virði að fara með þær í fabrikkuna. NÚ er það bara að treysta á hugarþelið eitt árið enn. Auðlindin og hugvitið Lagersala í nóvember Dæmi um afslátt: Takmarkað magn af vegg- og eyjuháfum frá Miele og Elica 30-50% Pottar, pönnur og smááhöld frá Cristel 50% Takmarkað magn af Liebherr kæliskápum 30% Að auki ýmis heimilistæki 20-25% 30-50% afsláttur Vesturvör 30c Kíktu á Kársnesið – Ferðin borgar sig! www.kvikkfix.is Umfelgun 4.600 kr. 16” felgur og minni Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.