Fréttablaðið - 25.11.2009, Qupperneq 38
26 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
> LÍKIR LEIKARAR
Leikararnir Toby Maguire og
Jake Gyllenhaal leika bræður
í kvikmyndinni Brothers. Í ný-
legu viðtali sagði Gyllenhaal
að það hafi oft gerst að fólk
haldi hann vera Spiderman.
„Fólk hefur sagt við mig að
ég líkist Toby mikið og marg-
ir halda að ég sé Spiderman.
En til að koma í veg fyrir frek-
ari misskilning þá er ég ekki
Spiderman.“
Það ríkir mikið prjónaæði á
Íslandi um þessar mundir.
Til marks um það er komin
út ný prjónabók og kennslu-
diskur fyrir byrjendur og
lengra komna.
„Við vildum forvitnast hvað sé að
gerast í allri þessari prjónagrósku
á Íslandi,“ segir Erla Sigurlaug Sig-
urðardóttir, sem gefur út bókina
Prjónaperlur – prjónað frá grasrót-
inni, ásamt frænku sinni, Halldóru
Skarphéðinsdóttur. „Halldóra er
þaulvön, en ég byrjaði bara í fyrra
og þegar ég missti vinnuna fór ég
að hugsa um þessa bók. Við Hall-
dóra fórum á stúfana og söfnuðum
alls konar uppskriftum frá prjóna-
konum héðan og þaðan af landinu
og einum karli sem við erum mjög
stoltar að hafa fundið,“ segir Erla,
en í bókinni gefa átján prjónarar
uppskriftir sínar auk höfundanna.
Ein af þeim er Ragnheiður Eiríks-
dóttir, en hún er nú að gefa út DVD-
diskinn Prjónum saman. Diskur-
inn er sá fyrsti sinnar tegundar
hér á landi, með prjónakennslu á
íslensku.
„Þetta er eitthvað sem hrein-
lega vantaði í okkar prjónaflóru
svo ég ákvað bara að sinna þessu.
Mér rann blóðið til skyldunnar,“
segir Ragnheiður og hlær. „Það er
til mjög mikið af myndböndum á
netinu sem fólk nýtur sér, en það
eru alls ekki allir sem treysta sér
til að nota leiðbeiningar á ensku,“
segir Ragnheiður, en á disknum fer
hún yfir rúmlega fjörutíu aðferðir
í prjóni fyrir byrjendur og lengra
komna.
Það er nokkuð ljóst að algjört
prjónaæði ríkir á Íslandi um þess-
ar mundir og aðspurðar segja bæði
Erla og Ragnheiður það tengjast
kreppunni að einhverju leyti. „Sjálf
byrjaði ég að prjóna til að sinna
sköpunarþörfinni. Ég fann loksins
þörfina í gegnum mömmu og Hall-
dóru sem eru báðar mjög vanar.
Þetta er bara smitandi og það er
rosalega gaman að sjá sína afurð
verða til í höndunum. Kannski er
það líka einhver tilfinning núna í
kreppunni, einhver nægjusemi,“
segir Erla og Ragnheiður tekur í
sama streng. „Ég held að það hafi
verið komin ákveðin prjónabylgja í
gang fyrir hrun og heimskreppuna
miklu, en síðan hafi þetta náð miklu
meiri útbreiðslu eftir hrun. Fólk er
kannski meira að leita inn á við og
að einhverri iðju sem er þægileg
og skilur eitthvað eftir sig,“ segir
Ragnheiður. alma@frettabladid.is
Mikil gróska í prjónaskap
PRJÓNAKONUR Þær Erla Sigurlaug og Ragnheiður Eiríksdóttir ætla að kenna Íslendingum þá list að prjóna. Erla gefur út bók en
Ragnheiður DVD-disk. Sjá má frekari upplýsingar á síðum þeirra, blog.eyjan.is/ragnheidur og prjonaperlur.blogspot.com
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Hugmyndin er að koma
íslenskum kvenkynshönn-
uðum á framfæri og láta
gott af okkur leiða um
leið,“ segir Þorbjörg Mar-
inósdóttir blaðamaður, en
hún stendur fyrir hönn-
unarpartíi á b5 fimmtu-
daginn 3. desember. Þar
munu íslenskir kven-
kynshönnuðir kynna
og selja vörur sínar og
hver hönnuður mun gefa
eina vöru til góðgerð-
armála. Þá er fólk hvatt
til að mæta með lítinn
jólapakka merktan aldri
og kyni sem mun fara til
þeirra sem minna mega
sín.
„Ég hef á hverju ári sett
gjafir undir tréð í Smáralind
fyrir börn og unglinga sem fá
annars fáar eða engar gjafir.
Það er nokkuð ljóst að þörfin
hefur aldrei verið eins mikil
og í ár og því ákvað ég að sam-
eina ástríðu mína fyrir góð-
gerðamálum og íslenskri hönn-
un,“ segir Þorbjörg. „Þetta er
í fyrsta sinn sem Designer
Desember er haldið. Það hefur
verið gífurlega vel tekið í þetta
bæði af hönnuðum og gestum
og því aldrei að vita nema
þetta verði árlegt. Ég þurfti
því miður að vísa ansi mörg-
um hönnuðum frá vegna pláss-
leysis og er alveg miður mín
yfir því að geta aðeins boðið
broti af þeim sem vildu vera
með að taka þátt. Ég er því að
skoða möguleikann á því að
hafa þetta tvö skipti í desem-
ber,“ útskýrir hún. Alls verða
fimmtán hönnuðir með að
þessu sinni og þar á meðal eru
E-label, Gyðja, Emami, Nakti
apinn og Volcano design.
„Það er frítt inn og verð-
ur stelpulegur jólakokkteill í
boði Smirnoff. Eldhúsið verð-
ur opið lengi fyrir svanga við-
skiptavini og klukkan 22 tekur
sjarmörinn Sjonni Brink við
með ljúfum tónum fram eftir
kvöldi,“ segir Þorbjörg og
vonast til að sjá sem flesta á
b5 milli klukkan 18 og 21, 3.
desember. - ag
Hönnuðir láta gott af sér leiða
LÆTUR GOTT AF SÉR LEIÐA
Þorbjörg sameinar ástríðu sína
fyrir góðgerðamálum og íslenskri
hönnun með hönnunarpartíi á b5
3. desember. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gólfþjónustan er með sérlausnir
í smíði borða fyrir fyrirtæki og heimili.
Við smíðum borð algjörlega eftir þínu
máli svo sem borðstofuborð, sófaborð
og fundarborð.
SÉRSMÍÐI ÚR
PARKETI
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
ÁHRIF BANKA Á REKSTRARUMHVERFI
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja
Þorsteinn Þorsteinsson, stjfm. Bankasýslu ríkisins
Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka
Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Arion banka
Ásmundur Stefánsson, forstjóri Landsbankans (NBI hf.)
GRAND HÓTEL, GULLTEIGUR
Fundarstjóri er Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Fundargjald með morgunverði er kr. 2.900. Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er að skrá þátttöku
fyrirfram á www.vi.is eða með tölvupósti á birna@vi.is.
Framsögumenn:
MORGUNVERÐARFUNDUR KL. 8:15 - 10:00 FIMMTUDAGINN 26. NÓV 2009
Í pallborði sitja ásamt Þórði og Birnu:
Linda Björk Gunnlaugsdóttir, forstjóri A. Karlsson
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins