Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.11.2009, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 25.11.2009, Qupperneq 42
30 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI Liverpool er úr leik í Meistaradeildinni eftir úrslit gær- kvöldsins en það varð ljóst þegar heimamenn í Fiorentina unnu 1-0 sigur á Lyon. Það nægði því ekki enska liðinu að vinna Debrec- en í Ungverjalandi. Á sama tíma fóru Evrópumeistarar Barcelona illa með lærisveina José Mourin- ho í Inter og eru fyrir vikið komn- ir í allt aðra og betri stöðu í sínum riðli. Fiorentina var annað tveggja liða sem tryggðu sér sæti í sex- tán liða úrslitunum því Arsenal er komið þangað líka eftir 2-0 sigur á Standard Liege. Liverpool-menn vonuðust eftir litlu kraftaverki fyrir leik en það leit ekki dagsins ljós. Þeir þurftu alltaf á treysta á Frakkana en Lyon brást þeim í gær. Miðað við frammistöðu Liverpool í gær þá er það þó ekki mikill missir fyrir Meistaradeildina að liðið skuli ekki vera í hópi þeirra sextán bestu. Liverpool kláraði sitt verkefni en þó ekki með miklum stæl því sóknarþungi liðsins var ekki mik- ill á móti langslakasta liði riðils- ins. Liverpool fékk ekki mörg færi í leiknum og var síðan heppið að fá ekki á sig jöfnunarmark í lokin. „Þú uppskerð það sem þú átt skil- ið í fótbolta. Aðalvonbrigðin voru að þurfa að teysta á önnur lið,“ sagði Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, eftir leik. „Meistaradeildarbikar- inn er stærsti bikarinn sem liðið stefnir á í upphafi tímabils og þetta eru því mikil vonbrigði. Eina hugg- unin okkar er að við getum unnið Evrópudeildina,“ sagði Gerrard. Sigurmark Liverpool kom eftir aðeins fjögurra mínútna leik þegar David N’Gog fékk skallasendingu frá Jamie Carragher eftir horn- spyrnu og afgreiddi boltann í netið með hælnum. Fiorentina slapp við það að fara í úrslitaleik á móti Liverpool á Anfield í lokaumferðinni með því að vinna 1-0 sigur á Lyon á heima- velli. Eina mark leiksins skoraði Juan Vargas úr vítaspyrnu eftir hálftíma leik en ítalska liðið var sterkari aðilinn í leiknum og átti sigurinn skilinn á móti Lyon sem var þegar komið áfram. Skömmu áður en Vargas skoraði höfðu Ítalirnir átt tvö stangarskot á 30 sekúndna kafla. Liverpool-menn geta huggað sig við það að það verða fleiri Evrópu- kvöld á Anfield í vetur því liðið kemur inn í Evrópudeildina eftir áramót. „Við erum vonsviknir. Við urðum að klára okkar verkefni sem við gerðum en því miður voru úrslitin í hinum leiknum okkur ekki hag- stæð. Við fengum á okkur tvö mörk í lokin í leikjunum á móti Lyon og það réð úrslitum í þessum riðli,“ sagði Rafael Benitez, stjóri Liver- pool. „Við eigum eftir að bæta okkar leik þegar menn koma til baka úr meiðslum og ég er hundrað prósent viss um að við endum meðal fjög- urra efstu í úrvalsdeildinni,” sagði Benitez. Barcelona vann öruggan 2-0 sigur á Inter á Camp Nou þar sem heima- menn fóru á kostum og yfirspiluðu Ítalina í fyrri hálfleik. Barcelona þurfti ekki á stórstjörnunum Lionel Messi og Zlatan Ibrahimovic að halda en þeir voru tæpir fyrir leik- inn og Pep Guardiola gat leyft sér að hvíla þá fyrir El Clasico á móti Real Madrid á sunnudaginn. Börsungar eru fyrir vikið komn- ir í allt aðra og betri stöðu í sínum riðli. Barcelona er nú með tveggja stiga forskot á Inter og Ruben Kazan sem eru jöfn að stigum. Inter tekur einmitt á móti Rússun- um í lokaumferðinni á San Siro sem verður einn af stórleikjum hennar. Arsenal tryggði sér endanlega sæti í útsláttarkeppninni með 2- 0 sigri á Standard Liege en Ars- enal-liðinu nægði jafntefli til að tryggja sig áfram. Standard Liege getur enn náð Olympiacos en þarf þá að treysta á Arsenal í lokaumferðinni. Stuttgart og Unirea Urziceni mætast í hreinum úrslitaleik í loka- umferðinni um sæti í næstu umferð eftir að liðin unnu sína leiki í kvöld. Rangers er hins vegar úr leik og endar í neðsta sæti síns riðils eftir 0-2 tap fyrir Stuttgart á heimavelli. ooj@frettabladid.is sport@frettabladid.is Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * FRÁ SÓMA ER KOMINN TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið einn af fáum ljósum punktum í annars fremur lélegu tímabili hjá enska B-deildarliðinu Reading til þessa. Liðið lyfti sér reyndar upp úr fallsæti um helgina með góðum 2-1 sigri á Blackpool þar sem Gylfi skoraði fyrsta mark leiksins. Núverandi samningur Gylfa við Reading rennur út í lok leik- tíðarinnar en hann hefur þó átt í viðræðum við félagið um nýjan samning. „Félagið hefur boðið mér nýjan samning og ég tel góðar líkur á því að við klárum þetta mál í vikunni,“ sagði Gylfi í samtali við Fréttablaðið í gær. „Mér líst mjög vel á samninginn enda er hann stór og fínn. Hann er reyndar helst til langur en ég held að mér takist að stytta hann og að hann verði annað hvort til tveggja eða þriggja ára.“ Gylfi er fæddur árið 1989 og varð því tvítugur í ár. Hann getur ekki neitað því að hann er í nokkuð góðum málum hjá Reading. „Jú, þetta er búið að ganga ágæt- lega. Liðið byrjaði reyndar illa á tímabilinu en það hefur verið að spila betur í undanförnum leikjum og er byrjað að klífa upp töfluna. Það eru margir nýir leikmenn hjá liðinu og nýr þjálfari og það tók sinn tíma að koma þessu öllu saman,“ segir Gylfi. Hann hefur verið í herbúðum Reading síðan hann var sextán ára gamall en það var ekki fyrr en á þessu tímabili sem hjólin fóru að snúast almennilega. „Ég er mjög sáttur við þau tækifæri sem ég hef fengið. Þetta er allt öðruvísi en í fyrra enda hafa ungu leikmenn- irnir verið að fá mun fleiri tækifæri en áður. Við höfum líka allir verið að standa okkur vel og því haldið sætum okkar í liðinu. Ég get því alls ekki kvartað.“ Hann segir markmiðið að komast í ensku úrvalsdeildina, hvort sem það verði með Reading eða öðru liði. „Ég er ánægður eins og er að spila í þessari sterku deild í hverri viku. Það er því gott að gera ekki of langan samning og sjá svo til hvað gerist. Þessi deild er góður stökkpallur fyrir leik- menn á mínum aldri enda fullt af sterkum liðum að fylgjast vel með því sem gerist í deildinni. Það er því aldrei að vita hvað verður.“ GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON: SKRIFAR LÍKLEGA UNDIR NÝJAN SAMNING VIÐ READING Í VIKUNNI Get ekki kvartað undan lífinu í Reading KÖRFUBOLTI Jakob Örn Sigurðar- son og félagar í Sundsvall Dra- gons töpuðu í gær mikilvægum leik í sænsku úrvalsdeildinni þegar þeir lágu 73-80 á heima- velli á móti Plannja Basket í viðureign liðanna í 3. og 4. sæti deildarinnar. Sundsvall var með frumkvæð- ið nánast allan leikinn en missti leikinn frá sér á skelfilegum kafla í lok fjórða leikhluta. Jakob var með 17 stig, 5 stoð- sendingar og 4 fráköst í leikn- um en hann var stigahæstur hjá Sundsvall. - óój Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Sundsvall í gær: Annað tapið í röð > Kvennaboltinn í sviðsljósinu Kvennaboltinn á sviðsljósið í kvöld því heil umferð verður í Iceland Express deild kvenna í körfubolta og annar tveggja leikja N1-deildar kvenna í handbolta er toppbaráttuslagur milli Vals (2. sæti) og Fram (3. sæti) í Vodafone-höllinni. Stærstu körfuboltaleikir kvöldsins verða í Keflavík (Keflavík-Hamar) og í Grindavík (Grinda- vík-Haukar). Snæfell og Valur mætast einnig í Stykkishólmi og botnlið Njarðvíkur sækir topplið KR heim en KR-konur hafa unnið alla leiki sína í sumar. Auk toppleiks Vals og Fram í handboltanum taka Víkings- konur á móti Haukum. Körfu- boltaleikirnir byrja klukkan 19.15 en handboltaleikirnir hefjast klukkan 19.30. E-riðill: Debrecen-Liverpool 0-1 0-1 David N´Gog (4.) Fiorentina-Lyon 1-0 1-0 Juan Vargas, víti (29.) STAÐAN Fiorentina* 5 4 0 1 12-6 12 Lyon* 5 3 1 1 8-3 10 Liverpool 5 2 1 2 4-5 7 Debrecen 5 0 0 5 5-15 0 F-riðill: Rubin Kazan-Dynamo Kiev 0-0 Barcelona-Inter Milan 2-0 1-0 Gerrard Pique (10.), 2-0 Pedro Rodríguez (26.) STAÐAN Barcelona 5 2 2 1 5-2 8 Inter 5 1 3 1 5-6 6 Ruben Kazan 5 1 3 1 4-5 6 Dynamo Kiev 5 1 2 2 6-7 5 G-riðill: Glasgow Rangers-Stuttgart 0-2 0-1 Sebastian Rudy (16.), 0-2 Kuzmanovic (59.) Unirea Urziceni-Sevilla FC 1-0 1-0 Sjálfsmark (45.) STAÐAN Sevilla* 5 3 1 1 10-4 10 Unirea Urziceni 5 2 2 1 7-5 8 Stuttgart 5 1 3 1 6-6 6 Rangers 5 0 2 3 4-12 2 H-riðill: AZ Alkmaar-Olympiacos 0-0 Arsenal-Standard Liege 2-0 1-0 Samir Nasri (35.), 2-0 Denilson (45.+2) STAÐAN Arsenal* 5 4 1 0 12-4 13 Olympiacos 5 2 1 2 3-5 7 Standard Liege 5 1 1 3 6-8 4 AZ 5 0 3 2 3-7 3 *Komin áfram MEISTARADEILD LIVERPOOL-MENN ÚR LEIK Það nægði Liverpool ekki að vinna Debrecen því Fiorentina vann Lyon á sama tíma og tryggði sér sæti í 16 liða úrslitunum. Barcelona sýndi meistaratakta. GÓÐIR HEIMA Fiorentina vann alla heimaleiki sína í Flórens og tryggði sér sæti í 16 liða úrslitunum. MYND/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.