Fréttablaðið - 25.11.2009, Side 46

Fréttablaðið - 25.11.2009, Side 46
34 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. land, 6. skóli, 8. skarð, 9. pfn., 11. tveir eins, 12. framvegis, 14. gim- steinn, 16. hvað, 17. væta, 18. hylli, 20. ónefndur, 21. yfirbragð. LÓÐRÉTT 1. þurrka út, 3. rún, 4. líkamlegt afl, 5. styrkur, 7. kvængast, 10. kvk nafn, 13. herma, 15. málmur, 16. rámur, 19. golf áhald. LAUSN LÁRÉTT: 2. kúba, 6. fg, 8. rof, 9. mig, 11. ll, 12. áfram, 14. tópas, 16. ha, 17. agi, 18. ást, 20. nn, 21. stíl. LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. úr, 4. bolmagn, 5. afl, 7. giftast, 10. gró, 13. apa, 15. sink, 16. hás, 19. tí. „Ég hlusta vanalega á Létt- Bylgjuna. Það er enginn sérstak- ur þáttur í uppáhaldi, hún er bara í gangi allan daginn.“ Margrét H. Ægisdóttir, forstöðukona Mekka í Kópavogi. Skuldamál viðburða- fyrirtækisins élan product- ions á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Pálmadóttur er aftur komið á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur. Skuldin snýr að ágreiningi um lokagreiðslu vegna brúðkaups þeirra hjóna fyrir tveimur árum. Eins og Fréttablaðið greindi frá var hætt við að taka málið fyrir í héraðsdómi enda ætluðu aðilar málsins að reyna samningaleiðina. Þær virðast hafa siglt í strand. Hið íslenska glæpafélag stendur fyrir sínu árlega glæpakvöldi á Grand Rokk á fimmtudags- kvöldið. Í ár koma út átta glæpasögur sem er svipaður fjöldi og undan- farin ár. Sex af þessum átta rithöfundum lesa upp úr verkum sínum. Stefán Máni og Arnaldur Indriðason verða ekki með en af þessum sex má helst nefna Yrsu Sigurðardóttur og Viktor Arnar Ingólfsson. Skosku útgáfunni af einleik Jóns Atla Jónassonar, Djúpið, hefur verið boðið til bæði Ástralíu og London. Þessi uppfærsla hlaut einróma lof gagnrýnenda. Verkið mun fara víðar því nú standa yfir samningaviðræður við leikhúsfólk í Frakklandi, Þýskalandi, Slóveníu og á Spáni um uppsetningu þess. Síðustu sýningar á íslensku útgáfunni eru í kvöld í Borgarleik- húsinu - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI „Þetta var mjög skemmtilegt,“ segir sjónvarps- maðurinn Sölvi Tryggvason, sem hefur sent frá sér skáldsöguna Flottastur@feisbúkk ásamt vini sínum Helga Jean Claessen. „Þetta var gert til að búa til bros eða jafnvel tvö.“ Sagan er nokkurs konar grínádeila á Face- book-síðuna þar sem fólk segir ekki endilega allan sannleikann um sjálft sig. Hún fjallar um Hákon Karl, kallaðan Hákarl, sem hefur misst PR-stöðu sína í Glitni og íbúðina í Skuggahverf- inu. Hann er fluttur heim til mömmu sinnar og allt er í mínus, nema í blekkingarheimi Face- book þar sem allt er ennþá í miklum blóma. Góðærið kemur því töluvert við sögu í bók- inni og eru sumar setningarnar byggðar á ummælum frá útrásarvíkingunum, þó svo að engar þeirra séu hafðar beint eftir þeim. „Þetta er meira út frá hugarheimi ákveðinna manna og síðan er þetta fært í stílinn,“ segir Sölvi, sem er að gefa út sína fyrstu skáldsögu. Hann notar sjálfur Facebook eins og vel flestir Íslendingar og er kominn með um þúsund vini, rétt eins og aðalpersónan Hákon Karl sem er að sjálfsögðu kominn með eigin Facebook-síðu. Helgi Jean Claessen sendi í fyrra frá sér bók- ina Kjammi – bara krútt sem þarf knús, þar sem hann gerði góðlátlegt grín að bókum Arn- aldar Indriðasonar. Helgi segir að blekkingar- lífið sem hægt sé að lifa á Facebook sé tekið föstum tökum í nýju bókinni. „Þú getur í raun- inni lifað allt öðru lífi á Facebook en þú gerir í raun og veru. Þú þarft ekki að ljúga neitt, held- ur sleppa því að segja ákveðna hluti,“ segir hann. „Þetta er eiginlega blekking því þú færð aldrei rétta mynd af fólki.“ - fb Grínádeila á blekkingarheim Facebook Í SKUGGAHVERFINU Helgi Jean Claessen og Sölvi Tryggvason í Skuggahverfinu þar sem söguhetjan Hákon Karl átti íbúð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Þegar Egill Örn hjá Forlaginu stakk upp á því að gefa út aðra bók stakk ég upp á því að bókin yrði 320 blaðsíður. Þetta er því alvöru doðrantur um hrunið,“ segir skopmyndateiknarinn Hall- dór Baldursson. Í dag kemur út bókin Skuldadagar þar sem finna má teikningar hans frá árunum 2007 og til dagsins í dag. Halldór fer eilítið hjá sér þegar hann er spurður hvaða þjóð- þekkti einstaklingur komi oft- ast fyrir í bókinni. Því þegar öllu er á botninn hvolft er það lík- ast til ritstjóri Morgunblaðsins, vinnustaðar Halldórs, sem þykir sigurstranglegastur. Það er að segja Davíð Oddsson. „Að öllum líkindum stendur baráttan milli Davíðs og Geirs H. Haarde. Ef það hefði ekki verið skipt um ríkis- stjórn í miðju hruni þá hefði Geir sennilega rústað þá keppni.“ Halldór viðurkennir að kreppan hafi reynst vatn á myllu hans. Hann hafi ekki þurft að kafa djúpt eftir efnivið. „Þegar ég blaða í gegnum hina bókina mína, Í gróf- um dráttum, þá velti ég því fyrir mér hvað þetta voru lítilfjörleg mál. Ég skil bara ekkert í því hvað ég var eiginlega að æsa mig yfir þeim,“ útskýrir Halldór. Og eins og sönnum þátttakanda í jóla- bókaflóðinu sæmir heldur Halldór útgáfuteiti hinn 1. desember. Og samanburðurinn við bókina frá 2006 kemur enn og aftur upp á yfirborðið. „Þá fannst bankastjór- unum og stjórnmálamönnunum það ekkert tiltökumál að mæta. Nú reynir aðeins meira á þá.“ - fgg Doðrantur Halldórs um hrunið DAVÍÐ LÍKLEGUR SIGURVEGARI Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, vinnustaðar Halldórs, og Geir H. Haarde koma líklega oftast fyrir í bók Halldórs. „Við fundum þetta lag og okkur fannst það fullkomið fyrir Eurodanceweb,“ segir Ítalinn Boris Zuccon, stjórnandi síðunnar Eurodanceweb.net. Lag hljómsveitarinnar Merzedes Club, Meira frelsi, hefur verið valið í alþjóðlega söngvakeppni síðunnar sem er nú haldin í níunda sinn. „Við vissum af hljómsveitinni því hún tók þátt í undankeppni Eurovision og sýndi litrík tilþrif. Við fylgjumst með danstónlistarsenunni úti um allan heim og vorum forvitin að heyra eitthvað nýtt frá Merzedes Club,“ segir Boris. Keppnin stendur á milli vin- sælla danslaga frá 39 þjóðum. Dómnefnd sem er skipuð plötu- snúðum, blaðamönnum og upp- tökustjórum víða um heim velur sinn sigurvegara en einnig geta netverjar kosið uppáhaldslagið sitt á síðunni. Úrslit verða tilkynnt í flokkunum tveimur í lok ársins. Ísland hefur þrisvar sinnum áður tekið þátt í keppninni, sem fer ein- göngu fram á netinu. Í fyrra keppti Páll Óskar fyrir Íslands hönd með endurhljóðblöndun af laginu Betra líf og lenti í næstneðsta sæti. Árið 2003 tók GusGus þátt með laginu Call of the Wild og lenti í þrett- ánda sæti en besta árangrinum náði Bjartmar Þórðarson árið 2007 þegar hann varð ellefti með lagið Vil annan dag í paradís. „Íslandi hefur ekki gengið vel til þessa en við höldum að ykkur gangi betur í ár því lagið hefur mjög alþjóðlegan hljóm,“ segir Boris um Meira frelsi. „Íslendingar hafa núna einn mánuð til að kjósa Merzedes Club.“ Sigurvegarar keppninnar fá glæsileg sýndarverðlaun frá Euro- danceweb. Engin peningaverðlaun eru í boði og ekkert meira fæst fyrir sigurinn, nema auðvitað heiðurinn sem honum fylgir. Reyndar stefna Boris og félagar á að halda tónleika á Ítalíu á næsta ári til að fagna tíu ára afmæli Eurodanceweb þar sem fjöldi tónlistarmanna myndi koma fram. Hlynur Áskelsson úr Merzedes Club er ánægður með þátttökuna í keppninni. „Þetta hlýjar mér um hjartaræturnar en kemur mér ekki á óvart. Við prufukeyrðum þetta lag í Portúgal á sínum tíma og þá var Merzedes Club að trekkja að, enda er Barði frábær tónlistarmað- ur,“ segir Hlynur og á þar við höf- undinn Barða Jóhannsson. Hlynur útilokar ekki endurkomu Merzedes Club í framhaldinu með tilheyr- andi tónleikaferð. „Við gáfum út stórkostlega plötu sem við náðum aldrei almennilega að fylgja eftir. Það yrði æðislegt ef við myndum vinna þetta því við erum orðin svo blönk núna. Við gerum hvað sem er fyrir meira brúnkusprey og nokkrar evrur.“ freyr@frettabladid.is HLYNUR ÁSKELSSON: GERUM HVAÐ SEM ER FYRIR BRÚNKUSPREY Merzedes Club keppir í alþjóðlegri söngvakeppni MEÐAL ÞEIRRA BESTU Merzedes Club keppir um besta danslagið á síðunni Eurodance- web.net. Stjórnandi síðunnar, Bruno Zuccon, segist vera ákaflega hrifinn og spáir laginu tölu- verðri velgengni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /D A N ÍE L TILBOÐ Í VEITINGASAL Súpa fi skur og kaffi 990 Lúðusneiðar................1590 Lúðufl ök......................1590 Laxafl ök.......................1590 Allir fi skréttir..............1490 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Þór Tulinius. 2 Orkuveitu Reykjavíkur. 3 Júlíus Vífill Ingvarsson.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.