Vikan - 13.02.1958, Blaðsíða 8
FAGRIK MUNDi
tÍR GULLI
OG SILFRI
Sendnm gegn póstkröfu.
Guðlaugur Magnússon
SKARTGRIPAVERZLUN
Laugavegl 22 A. — Simi 15272.
Valur- Vandar- Vöruna
SULTUR — Á V AXTAHL AUP
MARMELAÐI — SAFTIR
MATARLITUR — SÓSULITUR
EDIKSÝRA — BORÐEDIK
TÓMATSÖSA — ÍSSÓSUR
— Sendum um allt land —
Efnagerðin Valur h.f.
Box 1313. — Sími 19795 — Reykjavík.
TRICHLORHREINSUN
(ÞURBHREINSUN)
SDLVALLAGÖTU 74 • SÍMI 13237
BARMAHLÍÐ 6 SÍMI 23337
- _____á
Prjónastofan Hlín h.f.
Skðlavörðustig 18. Símar 12779 og 14508.
Prjónavörur höfum við framleitt í
siðastliðin 25 ár úr íslenzku og er-
lendu gami.
Höfum ávallt á boðstólum fyrsta
flokks vinnu, og fylgjumst vel með
tíakunni.
Sendum gegn póstkröfu um land aUt.
Ég þakka þeim sem verzlað hafa í
Sölutuminum við Amarhól ánægju-
leg kynni, og bið þá um að beina við-
skiptum sínum í
Hreyfilsbúðina.
Pétur Pétursson.
Alla vikuna í
skóm frá
HECTOR
Laugaveg 11
Laugaveg 81
írd mínum bœjardyrum
skrifar fyrir kvenfólkið, iun
Uvenfólkið og hugðarefni þess
Sko kerlingarnar!
Þetta vai- snjalt hjá þeim!
Þessi orff kváðu við um all-
an bæ á kosninganóttina,
þegart útvarpið byrjaði að
tiikynna að Barnaspitala-
sjóður Hringsins mundi
hafa símavörslu alla nótt-
ina, til að taka á móti gjöf-
um og áheitum. Og milli
þess sem nýjustu 'kosninga-
tölur bárust, voru menn
minntir á að heita á Hring-
inn.
Auðvitað kemur það í hlut
Sjálfstæðismanna að opna
budduna í þetta sinn, og
það gera þeir sjálfsagt með
ánægju. Algengt var að
Hringnum væru lofaðar 50
króna í barnaspítala og eiga
hálfa aðra millj. króna i
sjóði. Þetta er alveg furðu-
lega há upphæð, þegar þess
er gætt hve bærinn er smár
og félagskonur í Hringn-
um aðeins um 160. En þó
liðið sé ekki stórt, leggur
það á sig gífurlegt erfiði
og fyrirhöfn, svo að sem
minnst fari í kostnað. Það
liggur t. d. ekki svo lítil
vinna í því að útbúa sölu
merkja á hverju ári: festa
bönd í merki, telja þau í
umslögin, afgreiða þau til
sölubarna, auglýsa o. m. fl.
Það hlýtur að vera þess-
um konum mikil uppörfun
að sjá árangurinn af starfi
sínu, sem nú er að byrja að
koma í ljós. Á þeim sjö
Þessi unga stúlka hefur lítið herbergi. I dyr-
um sem hún ekki þarf að nota hefur hún komið
fyrir bókahillu og sængurfatakassa.
krónur ef D-listinn kæmi
S mönnum í bæjarstjórn í
Reykjavík, 100 krónum ef
þeir yrðu 9 og 150 krónum
yrðu þeir 10. Daginn eftir
byrjuðu Hringkonur svo að
vinna úr áheitunum, greina
frá þau áheit sem ekki
höfðu dugað, og sækja féð
til þeirra' sem hafði orðið
að ósk sinni. Síðast þegar
ég hafði spurnir af upp-
hæðinni, var hún orðin 11
þúsund krónur og voru þó
engan veginn öll kurl komin
til grafar. Já, það er víst
óhætt að segja að hugmynd-
in var bráðsnjöll.
Þó er þetta aðeins brot af
því fé, sem safnaðist í
Barnaspítalasjóð Hringsins
þennan dag. Fyrir merki
komu inn 70—80 þúsund
krónur (í 5 og 10 króna
seðlum), enda er þetta mál-
efni sem allir vilja leggja
lið.
Hringkonur eru nú bún-
ar að leggja fram 3 millj.
mánuðum, sem liðnir eru
síðan barnadeildin var opn-
uð á Landspítalanum, hafa
285 börn notið þar læknis-
hjálpar og hefur hvert ein-
a.sta af „litlu hvitu rúm-
unum" sem þar eru, verið
skipað hvern dag.
Þetta sýnir greinilega
hversu mikil þörf er fyrir
fórnarstarf þessarra ágætu
kvenna. Við hinar, sem
framtakslausari erum og
óduglegri, erum stoltar af
þeim.
Siðsemi á Spáni.
Spánn er það land, sem
ísienzkir ferðamenn hafa
hvað mest heimsótt á und-
anförnum árum. Margar
konur hafa á ferðalagi sínu
á Spáni komizt að raun um,
að sumt það sem þykir góð
latína hér, er hin mesta
ósiðsemi á Spáni. Maður
Kona segir frá matarnautn bðnda sins
Það er alkunna að leiðin að hjarta mannsins er gegn-
um maga hans. Það hefur því ekki verið nein smáræðis
ást, sem liann Sumarliði bar í brjósti til kerlu sinnar, ef
marka má þessa vísu eftir Hallgrím Pétursson.
íig gef honum fisk með flautum
og fergjað skyrið óskammtað,
átján stykki af ísum blautum,
ellefu hrogn og svilja spað,
og sextán merkr af sullugrautum
hann Sumarliði minn étur það.
getur t. d. átt það á hættu
að vera tekinn fastur á
flestum baðströndum Spán-
ar, ef maður dirfist að láta
sjá sig í sundbol í tvennu
lagi. Og þeirri reglu ka-
þólsku kirkjunnar er fylgt
fast eftir, að konur hafi
eitthvað á höfðinu og hylji
upphandleggina í kirkju.
Auðvitað er það hinn
mesti dónaháttur að ryðjast
inn í annað land og móðga
íbúana með þvi að þver-
brjóta siðareglur þeirra. Til
þess að ekki leiki neinn vafi
á því hvers konar klæðnað-
ur sé siðsamlegur eða ósið-
samlegur þar í landi, hefur
yfirmaður kaþólsku kirkj-
unnar, erkibiskupinn í To-
ledo, nýlega gefið eftirfar-
andi reglur:
Það er ósiðlegt að láta
ermarnar ekki hylja upp-
handleggina.
Jafnvel litlar'telpur verða
að vera í pilsum, sem ná
niður að hné.
Það er siðlaust að ganga
berfættur.
Drengir mega ekki vera
í fötum, sem sýna mjaðm-
irnar.
Fari konur í kirkju, verða
þær að vera í sokkum og
kjólum, sem ná upp í háls,
hylja meiri hluta leggjanna
og hafa ermar.
Skólar og klaustur mega
ekki taka við stúlkum, sem
ganga ósiðlega klæddar.
Það er ekki svo lítil hætta
í því f ólgin fyrir ungan
karlmann og unga konu að
vera ein á afviknum stað.
Trúlofað fólk má ekki
leyfa sér neina ósiðlega eða
nána hegðun.
Þá vitum við til hvers er
ætlazt af okkur, ef við sækj-
um Spánverja heim á næsta
sumri. Og þið skulið ekki
ímynda ykkur að boð kirkj-
unnar séu eitthvað sem
enginn tekur mark á á
Spáni.
Uppátæki kvenna
úti í heimi
• Fínustu dömurnar í
New York eru nú faxnar að
bursta hunda sína oft á dag
til að fá sem mest hár af
þeim. Hárið fara þær með
til Sylvíu nokkurrar Thorne,
sem spinnur það og vefur úr
þvi hálsklúta og peysur.
• 1 Bandaríkjunum hafa
verið sett á stofn fyrirtæki,
sem leigja út pelsa. Efnað-
ar stúlkur, sem þó vita aura
sinna tal, borga 200 dali á
ári og geta svo spókað sig
í nýjum pelsi i hverri viku,
rétt eins og þær eigi klæða-
skáp fullan af minkapelsum,
safalapelsum og hreysi-
lcattapelsum.
• Það er þó ekki aðeins
kvenfólkið sem er hégóma-
gjarnt. Florence nokkur
Barry rakar saman fé í
New York á því að selja
snobbuðum karlmönnum
notuð föt af frægum mönn-
um. Hið nýstárlega fyrir-
tæki hennar þrífst svo vel,
að nú er hún búin að setja
upp aðra verzlun, þar sem
konur geta keypt ný föt
fyrir peningana sem menn-
irnir þeirra þykjast spara á
að kaupa notuð föt.
• Stúlkur sem sitja yfir
börnum i Bandaríkjunum
nxeðan foreldrarnir fara út,
eru nú að færa sig upp á
skaftið. Þær fara fram á
kauphækkun á helgidögum
og vilja fá ríflega auka-
greiðslu á hátiðisdögum
eins og jólunum. Auk þess
vilja þær að foreldrarnir
greiði barnagæzluna fyrir-
fram með ávísun, svo þær
tapi ekki á því ef þeir
skyldu . hætta við að fara
út.
* Skólastelpur í Michi-
gan hafa ákveðið að hafa
einn „Subbudag" á ári.
Þann dag ætla þær að
koma í skólann í bættum
gömlum fatadruslum, til
að vekja athygli piltanna
á því hvað þær séu venju-
lega snyrtilega til fara.
Skinnklútur á ungu stúlkurnar
m--->
Svona skýluklútur hefur
marga kosti: það er auð-
vellt að búa hann til, hann
er hlýr og hlífir eyrunum
í vetrarkuldunum og síðast
en ekki sízt, hann myndar
klæðilegan ramma um and-
litið.
EFNI: 1 hann þarf 65
sm. af 30 sm. breiðu gerfi-
skinni, og gamla peysu í
fallegum lit i fóðrið og
böndin.
AÐFEBÐ: Sniðið tvo
þríhyrninga, annan úr
skinninu, hinn úr peysunni.
Lengsta hliðin á að vera
65 sm. löng og klúturinn
30 sm. þar sem hann er
breiðastur (frá lengstu hlið-
inni yfir í hornið). Saumið
saman á röngunni, en skilj-
ið eftir gat svo hægt sé að
sntia klútnum við. Klippið
síðan tvö 42. sm. löng og
8 sm. breið bönd úr peysu-
efninu, saumið þau saman á
röngunni og snúið þeim við
(2 sm. fara í sauminn).
Klippið nú 2 liornin af
skýluklútnum, þannig að
endarnir verði jafnbreiðir
böndunum, sem í þá eru
festir, eða 3 sm. Eins og
þið sjáið, er næstum minna
verk að sauma höfuðfatið
en útskýra hvernig eigi að
fara að því.
NÝ stjarna á nýja árinu.
Einskonar Brando í
pilsi. Furðulegasta stúlkan
sem ég hef nokkurntíma
kynnst.
Hún heitir Diane Varsi.
Hún er aðeins nítján ára,
en hún hefur þegar að baki
sér tvö misheppnuð hjóna-
bönd.
Óvenjulega glæsileg
framtíð kann að bíða henn-
ar. Kunnáttumennirnir í
Hollywood virðast að
minnsta kosti reikna með
því. Þeir fá henni um þess-
ar mundir hvert stórhlut-
verkið á fætur öðru.
Tekst henni eða tekst
henni ekki að komast upp
ð stjörnuhimininn ? Við
skulum virða hana dálítið
betur fyrir okkur.
Þegar ég talaði við hana,
var andlit hennar gjörsam-
lega ,,ósnyrt“ — enginn
varalitur, elckert púður og
þar fram eftir götunum.
Hún var lika stuttklippt.
Hún var í svartri prjóna-
peysu, snjáðu og teygðu
gráu pilsi og háum svörtum
ullarsokkum.
Þessu tók ég fyrst eftir.
En ég tók eftir fleiru.
Ég tók eftir því, að Diane
er ekkert sérlega lagleg.
Og ef það er aðalatriðið
fyrir upprennandi stjörnur
að þær séu brjóstamiklar,
þá á Diane vissulega ekki
mikla framtíð.
Hvemig komst hún þá til
Hollywood ?
Hún fór þangað fótgang-
andi með vinkonu sinni.
Það er ekki blöðum um
það að fletta, að Diane fer
sinar eigin götur.
Hún hefur alla tíð gert
það.
Hún hætti menntaskóla-
námi af því henni leiddist
hinar þröngu, litlausu skóla-
stofur, og ákvað að gerast
sín eigin skólastýra. Hún
eyddi sex stundum á dag
í að mennta sig, las kynst-
ur af bókum um eðlisfræði,
efnafræði, list, guðfræði og
heimspeki.
Eftir það byrjaði hún á
„tilraununum" sínum. Hún
sagði mér sjálf söguna: „Eg
gerðist tízluidama. Eg vís-
aði gestum til sætis í veit-
ingahúsi. Eg tíndi epli á
stórum búgarði.
Eg vann i kertaverk-
smiðju — í vaxinu.
Þá var ég nærri því orð-
in þjóðlagasöngvari. Þetta
var svo klippt og skorið —
svo einfalt -— að ég fékk
ást á því.“
En þess í stað lagði hún
af stað fótgangandi með
vinkonu sinni frá San Fran-
cisco til Hollywood. Það er
400 mílna leið. Hún segir
svona frá þessu:
„Við sváfum oft undir
berum himni. Eina nóttina
sváfum við í fjörunni. En
stundum vorum við teknar
upp í bíla.
Eg átti aðeins fimmtíu
dollara þegar við fórum frá
San Francisco. Eg ætlaði
mér ekki að hafa neina við-
dvöl í Hollywood.“
Diane hefði líka haldið
áfram — eitthvað út í busk-
ann — ef hún hefði ekki
kynnst ungum manni í Los
Angeles.
„Hann var á leikskóla og
einn daginn elti ég hann
þangað,“ tjáði hún mér.
„Eg fékk áhuga á því,
sem þar var að gerast, og
ég ákvað að verða leikkona.
Eg giftist, en ég lofaði
því einu sinni að ljóstra
ekki upp um nafn manns-
ins.
Eftir fjóra mánuði skild-
um við. Og fáeinum dögum
seinna uppgötvaði ég, að ég
var með barni.“
Nú á Diane son sem hún
kallar Sean.
„Afi minn sendi mér
húsaleigupeninga og ég hélt
áfram að læra að Ieika,“
bætti hún við.
Það var eigandi og for-
st öðumaður leikskólans,
maður að nafni Jeff Corey,
sem útvegaði henni hlut-
verk í myndinni „Peyton
Place“. Þai' leikur hún dótt-
ur Lana Turner.
Hún hafði hvorki lesið
bókina né kvikmyndarhand-
ritið, en fékk hlutverkið eft-
ir að hafa talað einu sinni
við framleiðanda myndar-
innar.
Þegar myndatökunni
lauk, buðust henni um-
svifalaust ný hlutverk.
Hún lék aðalhlutverkið í
mynd um afbrotaungling.
Og fyrir nokkrum vikum
byrjaði hún að leika í ann-
arri þar sem Gary Cooper
leikur föður hennar.
Nú er hún búin að gera
sjö ára samning við Twen-
tieth Century-Fox kvik-
myndafélagið.
En á meðan á öllu þessu
gekk, giftist Diane James
Dickson kvikmyndafram-
leiðanda. Þó að þau séu ekki
skilin að lögum, fór hjóna-
bandið út um þúfur eftir
íáeinar vikur og skilnaðar-
mál er • í bígerð.
Eg spurði Diane hvort
það kæmi henni ekki á
óvart, hve vel henni hefði
vegnað í Hollywood. Hún
svaraði:
„Nei. Eg hef ekki haft
tíma til að verða undrandi.
Og ég trúi því ekki enn, að
ég eigi eftir að verða kvik-
myndastjarna. Mér finnst
að eitthvað hljóti að koma
fyrir, og þá gufar þetta upp
eins og allt hitt.
Þar að auki er ég ekki
búin að sætti mig við að
vera leikkona. Eg er aðeins
búin að sætta mig við að
vera móðir.
Sean er fyrir öllu. Nú er
hann orðinn fjórtán mán-
aða.“
Getur þessi Öra, greinda
stúlka í rauninni leikið ?
Lesandinn verður að bíða
með dóm sinn þar til hann
fær að sjá myndirnar henn-
ar.
En á því er enginn vafi,
að hér er stúlka á ferð
sem gædd er óvenjulegum
töfrum, óvenjulegum per-
sónuleika.
Að þeirri niðurstöðu hlýt-
ur maður að komast eftir
að hafa talað við hana.
Diane er vissulega ekki
steypt í sama mótið og all-
ar hinar. Og það sem hún
sagði, þegar við kvöddumst,
undirstrikar þetta. Fáar
Hollywoodstjörnur hefðu
þorað að tala svona; hrein-
skilni af þessu tagi má
heita óþekkt í kvikmynda-
borginni. Hún sagði:
„öll þessi vinna veldur
því, að ég er farin að vera
andvaka á nóttinni. Þess-
vegna er ég með þessar
ótætis bólur í andlitinu."
VIKAN
minnir áhugaljós-
myndara á ljós-
myndakeppni blaðs-
ins. Auglýst er eftír
mjmdum sem á ein-
hvern hátt má setja
í samband við starf-
semi Flugfélags Is-
lands. Keppninni lýk-
ur 22. febrúar.
Verðlaun:
Flugferð til London
og heim aftur.
8
VTKAN
VIICAN
51